Morgunblaðið - 20.12.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.12.2012, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 0. D E S E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  299. tölublað  100. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG dagar til jóla 4 Gluggagægir kemur í kvöld www.jolamjolk.is ILLSKA EIRÍKS MIÐLAR ÓLÍKUM SJÓNARHORNUM LÍFEYRIS- SJÓÐIR TELJA SIG SVIKNA MÁLAR MANN- LÍFIÐ Í BORGINNI MEÐ VATNSLITUM VIÐSKIPTABLAÐ LISTRÆNN LÖGMAÐUR 10BÓKIN STÓR MUNNBITI 42 Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég er að sýna íbúð í 108 Reykja- vík. Sjötíu manns hafa boðað komu sína til að skoða hana. Íbúðin er á fjórðu hæð og það er engin lyfta í húsinu. Svona hefur þetta verið í allt haust. Þegar nýjar íbúðir koma til leigu er slegist um þær,“ segir Svanur Guðmundsson, löggiltur leigumiðlari hjá leiguvefnum húsa- leiga.is, um ástandið á markaðnum. Svanur gagnrýnir skattahækkan- ir á leigusala. Þær hafi ýtt undir að húsaleiga sé ekki talin til skatts. Guðlaugur Örn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Leigulistans, tekur undir með Svani að húsaleiga fari enn hækkandi. Sú þróun haldi áfram á meðan lítið sé byggt. Flytja af landi brott Vilhjálmur Einarsson, löggiltur fasteignasali hjá Eignaborg, telur hins vegar að leigan muni lækka, mesti kúfurinn hafi verið í haust. „Ég hef ekki trú á því að leigu- verðið muni hækka meira og að eftirspurnin verði eins mikil og verið hefur. Það verður að horfa til þess að mikill fjöldi fólks hefur flutt af landi brott og leigir nú út sínar eignir,“ segir Vilhjálmur sem telur skattahækkanir vinna gegn þeirri stefnu stjórnvalda að styrkja leigumarkað. Guðbjartur Hannesson velferð- arráðherra hefur kynnt aðgerðir sem hann telur að muni létta undir með mörgum illa stöddum leigj- endum. „Slegist um íbúðir“ sem koma í útleigu  Leigumiðlari segir framboð á leiguhúsnæði alltof lítið MSjötíu vildu skoða »12 65.000 fyrir herbergi » Á vef Leigulistans er 20 fm herbergi í Engihjalla til leigu fyrir 65.000 kr. og 30 fm íbúð á Bugðulæk fyrir 80.000 kr. „Ég hef ekki verið með stutt hár síðan Bítlaæðið hóf inn- reið sína. Ætli síðasta klippingin, þar sem hárið var svona stutt, hafi ekki verið um fermingu árið 1964. Þetta er orðin tæp hálf öld með sítt hár,“ segir Óttar Felix Hauksson tónlistarmaður og líkar vel við nýja útlitið. Hárskerinn Jón Guðmundsson á rakarastofunni Effect sá um jólaklippinguna. „Nonni „landsliðs“ hefur nefnt við mig nýjan stíl í nokkurn tíma og ég ákvað að slá til. Stund- um þarf að fara nýja leiðir og það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segir Óttar. Hann var spenntur að fara á hljómsveitaræfingu í kvöld og sýna nýja útlitið, en Óttar spilar með gömlum félögum sem hafa dálæti á Bítlunum og nefna sig Gullkistuna. Þeir munu troða upp á jólaböll- um milli jóla og nýárs og á þrettándanum á Kringlukránni. Þorbjörn Guðmundsson, handhafi blaðamanna- skírteinis númer eitt og fyrrverandi blaðamaður á Morg- unblaðinu, sat í stólnum hjá Trausta Thorberg og fékk jólaklippingu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hártíska Bítlaæðisins senn á enda hjá stutthærðum Óttari  Nýtt útlit poppara og heldri blaðamaður í hársnyrtingu  Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís- lands, áttu fund í gær þar sem þær ræddu m.a. baráttuna gegn ofbeldi. Sátt náðist milli Guðrúnar Ebbu og þjóðkirkjunnar síðastliðið sumar og bað kirkjan Guðrúnu Ebbu afsök- unar á því hvernig staðið var að er- indi hennar, þegar hún leitaði til kirkjunnar vegna meintra kynferð- isbrota föður síns, Ólafs Skúlasonar biskups. Guðrún Ebba hefur unnið ötullega að baráttunni gegn ofbeldi og segir m.a. þörf á að samþætta meðferð- arúrræði og áfallaþjónustu. »6 Sammála um að líta til framtíðar og draga lærdóm af Morgunblaðið/Eggert  Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir kom með 209 millj- ónir króna til landsins í gegn- um fjárfest- ingaleið Seðla- bankans fyrr í mánuðinum. „Þetta tengist langtíma- fjárfestingu í uppbyggingu úti á landi,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Hvað þetta sé, komi í ljós þegar framkvæmdum ljúki. »Viðskipti Heiðar Már kemur með 209 milljónir Heiðar Már Guðjónsson Formaður Rann- sóknarnefndar sjóslysa segir að Landeyjahöfn sé vandamálið, ekki Herjólfur, og vitnar til niður- stöðu athugunar á óhappi sem varð í innsigling- unni á árinu 2010. Nefndin skrifaði Sigl- ingastofnun og lýsti yfir áhyggjum af öryggi skips, áhafnar og far- þega. Ingi Tryggvason segir að at- vik sem síðar hafi orðið hafi ekki dregið úr áhyggjum nefndarinnar – heldur þvert á móti. Hann segir að ekki þurfi að bíða með nauð- synlegar ákvarðanir um höfnina eftir nýju áliti. Nefndin rannsakar nú alvarlegra óhapp sem varð í nóvember þegar Herjólfur rakst utan í hafnargarð og skemmdi skrúfu. »24 Höfnin er vandamálið – ekki ferjan  Óhapp rannsakað Herjólfur Skrúfan skemmdist. Slitameðferð á Fyrirtækja- skuldabréfasjóði MP banka er lokið. Endurheimtuhlutfall eigenda hlut- deildarskírteina sjóðsins reyndist yfir 92%, samkvæmt upplýsingum frá Júpíter rekstrarfélagi (áður MP sjóðir). Sigurður Hannesson, forstjóri Júpíters rekstrarfélags, segir að hátt endurheimtuhlutfall sjóðsins megi ekki síst rekja til þeirrar stefnumótunar að auka hlutfall rík- istryggðra eigna í sjóðnum um mitt ár 2008. »Viðskipti Eigendur fengu 92%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.