Morgunblaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.12.2012, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 2. D E S E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  301. tölublað  100. árgangur  MACBETH KREFST MIKILS AF LEIKARANUM EDDA HEIÐRÚN MEÐ MÁLVERK Í MUNNI ALVÖRULJÓÐ HREINSA TUNGU- MÁLIÐ AF KLISJU SUNNUDAGUR LJÓÐORKULIND SIGURÐAR 54RÖNTGENMYND AF SÁLINNI 52 Hönnun Tískufatnaður er meðal afurða sem unnar eru úr íslensku þangi.  Þang úr Breiðafirði er notað í vefjariðnaði í Evrópu, meðal ann- ars til framleiðslu á fatnaði, rúm- fatnaði og handklæðum. Þýskt fyrirtæki kaupir þangmjöl frá Þörungaverksmiðjunni á Reyk- hólum fyrir ákveðna gerð af þræði. Þangmjölið er malað fínt og bland- að saman við sellulósa og önnur efni áður en spunninn er þráður. Fatahönnuðir og framleiðendur taka við og búa til fatnað og ýmsar aðrar vörur. Við kynningu er lögð áhersla á hreinleika og vítamín-, steinefna- og snefilefnainnihald þangsins sem geti haft góð áhrif á húð og líkama. »22 Fatnaður fram- leiddur úr þangi úr Breiðafirði Hlutur sjúklinga » Hlutur sjúklinga í lyfjakostn- aði hækkar um 3,9% 1. janúar. » Hefur hækkað um 12,5% frá árinu 2010. » Hlutdeild ríksins hefur minnkað, segir lyfjafræðingur » Hlutur sjúklinga fylgir verð- lagsþróun, segir skrif- stofustjóri. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hlutur sjúklinga í greiðslu lyfja- kostnaðar hækkar úr 2.300 krón- um í 2.400 krónur þann 1. janúar árið 2013 samkvæmt breytingu á reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum. Hlutur almennra sjúklinga við lyfjakaup var 2.100 krónur árið 2010 og hefur hann því hækkað um tæp 12,5 % á þessum tíma. Að sögn Ólafs Adolfssonar lyfja- fræðings hjá Apóteki Vesturlands er um að ræða 7. reglugerðar- breytinguna á greiðsluþátttöku- kerfi almennra sjúklinga á síðustu þremur árum. Hann segir að þess- ar breytingar hafi gert það að verkum að hlutdeild ríkisins í lyfjakostnaði landsmanna hafi minnkað. „Það eru engin tilefni til þess að lækka hlutdeild ríkisins og hækka hlutdeild sjúklinga. Lyfjaverð á Ís- landi hefur verið að lækka. Samt sem áður er sjúklingum gert að borga meira,“ segir Ólafur. „Stjórnvöld hafa verið að koma þessum hækkunum inn smátt og smátt. Tölur sýna einfaldlega að ríkið er sífellt að lækka sinn hluta í lyfjakaupum,“ segir Ólafur. Hrönn Ottósdóttir skrifstofu- stjóri hjá velferðarráðuneytinu segir að hækkanir á hlut sjúklinga megi skýra með áætlaðri verð- lagsþróun sem gert sé ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. „Ríkið við- heldur sínu hlutfallslega framlagi þrátt fyrir þessa 3,9% hækkun,“ segir Hrönn sem undirritaði reglu- gerðarbreytinguna ásamt Guð- bjarti Hannessyni ráðherra. Hlutur sjúklinga hækkar  Hlutur sjúklinga í lyfjakostnaði hækkaði um 12,5% frá árinu 2010  Hlutur ríkisins lækkaði segir lyfjafræðingur  Segir verðlagsþróun skýra hækkun Morgunblaðið/Jim Smart Gjald Hætt var við vegagjaldið. Meirihluti efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis hefur fallið frá til- lögu sinni um að sett verði svokallað vegagjald á bílaleigur, en greint var frá tillögu þess efnis á forsíðu Morg- unblaðsins í gær. „Nefndin hefur í þinglegri meðferð fengið sjónarmið frá bílaleigum um það hvernig þeim þætti hagfelldast að skila þessum tekjum í ríkissjóð og í tengslum við það skoðuðum við meðal annars þessa leið,“ segir Helgi Hjörv- ar, formaður efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis, aðspurður hvers vegna fallið hafi verið frá þessari til- lögu, og bætir við: „Á henni reyndust hinsvegar vera ýmsir gallar, bæði fyrir ríkissjóð og fyrir greinina, sem ekki var tóm til að vinna úr í þeim tímaramma sem nefndin hefur.“ Að sögn Helga varð niðurstaðan því sú að þessar tekjur kæmu frekar í gegnum vörugjaldakerfi út næsta ár- ið. Það útiloki þó ekki að menn geti á þeim tíma unnið frekar með þær hug- myndir sem greinin sjálf hefur um heppilegustu leiðina í þessu máli. „Um leið höfum við ákveðið að fram- lengja heimildir þeirra til að selja bíla sem þeir hafa átt í aðeins sex mánuði, þannig að bíla sem þeir kaupa inn núna í vor geta þeir selt þegar í haust og það ætti að vera þeim hvatning til að kaupa nýja bíla þrátt fyrir auknar álögur,“ segir Helgi. skulih@mbl.is Hættu við að setja vegagjald  Helgi Hjörvar segir ýmsa galla hafa verið á gjaldinu Það er heldur betur jólalegt um að litast fyrir norðan og fjallið Kaldbakur er komið í hvítu sparifötin fyrir hátíðirnar. Jólin verða því að öll- um líkindum hvít á Norðurlandi og einnig Aust- urlandi en sömu sögu er ekki að segja fyrir sunn- an þar sem óvenjuhlýtt hefur verið í veðri undanfarið. Allt útlit er þó fyrir bláar tölur eftir helgina í höfuðborginni og víst að húfur og trefl- ar í jólapakkanum munu koma að góðum notum. Kaldbakur í hvítum klæðum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson  Starfsmönnum á bæjarskrifstofu sameinaðs bæjarfélags Garðabæjar og Álftaness mun fækka um fjóra en stöðugildum fækkar úr sex í tvö og hálft. Gunnar Einarsson, bæj- arstjóri Garðabæjar, segir það eðli- lega fækkun. „Það verður bara einn bæj- arstjóri og einn fjármálastjóri en þar fyrir utan eru sáralitlar breyt- ingar,“ segir Gunnar en að hans sögn ættu bæjarbúar ekki að verða varir við miklar breytingar við sameiningu. »35 Starfsfólki fækkar við sameiningu  Heildareign heimila í hluta- bréfasjóðum hefur tvöfaldast á undanförnum tólf mánuðum. Í lok síðastliðins októbermánaðar nam eign heimila í slíkum sjóðum 7,3 milljörðum króna, sem er tvöfalt hærri upphæð en á sama tíma fyr- ir ári. Á það er bent í fréttabréfi Júpi- ters, rekstrarfélagsins, þar sem vakin er athygli á þessari þróun, að þetta sé til marks um að ís- lensk heimili séu óðum að taka hlutabréf í sátt sem fjárfesting- arkost og sparnaðarform. Hlutabréfavísitala Kauphallar Íslands hefur hækkað um 13% það sem af er þessu ári. »28 Ásókn almennings í hlutabréf eykst dagar til jóla 2 Ketkrókur kemur í kvöld www.jolamjolk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.