Morgunblaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.09.2013, Blaðsíða 1
ÍÞRÓTTIR MÁNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2013 Handbolti Kristófer skellti marki ÍR-inga í lás og tryggði þeim sigur á Akureyringum. Björgvin fór líka á kostum. Haukar keyrðu yfir ÍBV í síðari hálfleiknum í Vestmannaeyjum. 4 Íþróttir mbl.is FÓTBOLTI Víðir Sigurðsson Benedikt Bóas Sáralitlar breytingar, ef nokkrar, verða á þjálfarahópnum í efstu deild karla fyrir næsta keppn- istímabil. Miklar líkur eru á því að öll 12 liðin sem leika í deildinni að ári verði með sömu þjálfara og luku tímabilinu 2013. Keflavík, Fram og Fjölnir hafa ekki gengið endanlega frá sínum þjálfaramálum en þar eru starf- andi þjálfarar líklegastir.  Keflvíkingar og Kristján Guð- mundsson munu ræða framhaldið núna í vikunni.  Framarar hafa þegar rætt við Ríkharð Daðason um að halda áfram, samkvæmt því sem hann sagði við mbl.is á laugardaginn.  Fjölnismenn setjast niður með Ágústi Gylfasyni í vikunni og ganga frá samningum við hann, ef að líkum lætur, enda glæsilegur árangur að baki hjá liðinu í 1. deildinni.  Þá er samningur Rúnars Krist- inssonar við KR runninn út en al- veg ljóst að hann mun semja að nýju við Íslandsmeistarana, nema girnilegt tilboð berist að utan. Hinir átta eru allir samnings- bundnir sínum félögum.  Heimir Guðjónsson samdi á ný við FH fyrir helgina.  Ólafur Þórðarson samdi á ný við Víkinga úr Reykjavík fyrir helgina.  Hermann Hreiðarsson er samn- ingsbundinn ÍBV út næsta tímabil.  Logi Ólafsson er samningsbund- inn Stjörnunni út næsta tímabil.  Ólafur H. Kristjánsson er samn- ingsbundinn Breiðabliki í tvö ár í viðbót.  Magnús Gylfason er samnings- bundinn Val í tvö ár í viðbót.  Ásmundur Arnarsson er samn- ingsbundinn Fylki út næsta tíma- bil.  Páll Viðar Gíslason er samn- ingsbundinn Þór í tvö ár í viðbót. Á Akranesi verða hins vegar breytingar í kjölfar þess að ÍA féll niður í 1. deild. Þorvaldur Örlygsson tilkynnti á laugardag- inn að hann væri hættur með lið- ið. Ejub Purisevic er aftur á móti samningsbundinn Víkingum í Ólafsvík til tveggja ára í viðbót. Stefnir í sama þjálfarahóp  Keflavík, Fram og Fjölnir ræða við Kristján, Ríkharð og Ágúst um áframhald Morgunblaðið/Golli Keflavík Kristján Guðmundsson á eftir að ræða málin suður með sjó. FÓTBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þrír af fjórum markahæstu leik- mönnum hollensku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu eru íslenskir, eftir að þeir skoruðu allir fyrir sín lið um helgina. Alfreð Finnbogason er efstur á lista sem fyrr en í gær skor- aði hann sigurmark Heerenveen gegn Cambuur, 2:1. Með sigrinum komst Heerenveen að hlið Twente og PSV á toppi deildarinnar. Alfreð hef- ur nú skorað 10 mörk í fyrstu 8 leikj- um liðsins á tímabilinu. Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem varamaður snemma leiks hjá Ajax og skoraði tvö mörk, ásamt því að eiga stóran þátt í því þriðja, þegar liðið vann Go Ahead léttilega, 6:0. Aron Jóhannsson, landsliðsmaður Bandaríkjanna, er jafn Kolbeini í 3.-4. sæti markalista deildarinnar með 5 mörk en Aron skoraði sig- urmark AZ gegn PSV á laugardag- inn, 2:1. Gylfi sjötti í Englandi Gylfi Þór Sigurðsson er kominn í 6. sætið yfir markahæstu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hann skoraði mark Tottenham gegn Chelsea þegar liðin skildu jöfn, 1:1, á White Hart Lane. Gylfi hefur nú skorað helming marka Tottenham í deildinni, þrjú af sex. Þeir sem hafa skorað fleiri mörk en Gylfi í deildinni eru Daniel Stur- ridge hjá Liverpool með 5 Christian Benteke hjá Aston Villa, Olivier Giroud og Aaron Ramsey hjá Arsen- al og Yaya Touré hjá Manchester City sem eru með 4 mörk hver. Fjórir skoruðu í Noregi Og ef markalisti norsku úrvals- deildarinnar er skoðaður er Matthías Vilhjálmsson kominn í 3.-4. sætið yfir þá markahæstu þar í landi með 10 mörk. Matthías skoraði eitt marka Start sem vann góðan útisigur á Tromsö í gær, 3:2. Steinþór Freyr Þorsteinsson skor- aði líka í gær. Hann gerði mark Sandnes Ulf sem gerði 1:1 jafntefli við Lilleström. Tveir íslenskir varnarjaxlar sem skora ekki á hverjum degi voru á skotskónum þegar þeir mættust á laugardaginn. Indriði Sigurðsson kom Viking yfir gegn Hönefoss og lið hans komst í 2:0. Kristján Örn Sig- urðsson kom inn á sem varamaður hjá Hönefoss, minnkaði muninn í 2:1 og lagði svo upp jöfnunarmarkið, 2:2. Íslenskar landsliðskonur skoruðu líka í gær. Katrín Ómarsdóttir fyrir Liverpool (sjá aðra frétt á síðunni) og Fanndís Friðriksdóttir skoraði fyrir Kolbotn sem vann Vålerenga, 4:2, í Noregi. Íslenskir markaskorarar áberandi  Þrír af fjórum markahæstu í Hollandi eru Íslendingar  Gylfi hefur skorað helming marka Totten- ham í úrvalsdeildinni  Matthías og Start óstöðvandi í Noregi  Tvær landsliðskonur skoruðu í gær Alfreð Finnbogason Gylfi Þór Sigurðsson Morgunblaðið/Golli Meistarar KR-ingar tóku við Íslandsbikarnum í knattspyrnu eftir sigur á Fram í lokaumferðinni á laugardaginn. Þeir slógu stigamet deildarinnar. »6-7 Katrín Ómarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, varð í gær enskur meistari með Liverpool. Hún skor- aði jafnframt síðara mark liðsins í 2:0-sigri gegn Bristol, sem var hreinn úrslitaleikur liðanna um meistaratitilinn. Liverpool fékk 36 stig en Bristol 31 og liðin verða fulltrúar Englands í Meistaradeild kvenna á næsta ári. Arsenal, sem hefur einokað titilinn um árabil, varð að sætta sig við þriðja sætið. Katrín var í hópi margra öflugra leikmanna sem Liverpool fékk í sín- ar raðir síðasta vetur. Liðið hafði hafnað í neðsta sæti ensku atvinnu- deildarinnar undanfarin tvö ár en sneri heldur betur blaðinu við í ár. vs@mbl.is Katrín skor- aði í úrslita- leiknum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.