Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Blaðsíða 59
24.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Blási Evrópubúa upp. (5)
4. Bókstaf tússum stirðlega þegar við dútlumst. (9)
10. Greini frá einum 10%. (6)
11. Einn enn hefur mikið af vökvanum. (10)
13. Ó, gas spili með mikil verðmæti. (11)
14. Blaðafulltrúi missir fullt til sveitafólksins. (8)
15. Telja tré endurnýja. (8)
16. Hlammi slanga sér á farartæki (11)
19. En aftur eru fljótar illa útlítandi. (9)
23. Sá sem er án óhófs er foreldralaus. (15)
26. Tek ker hálfvegis úr bar engla. (7)
27. Meiðsli okkar fræða okkur um að sýna samúð. (11)
30. Lakara frí einhvern veginn hjá veiðisælum. (9)
32. Án klakagrass og veiklyndur. (10)
33. Fer á kaf undir með gull frá samkomum. (10)
34. Engir eða fugl. (9)
35. Pilla frá grískri eyju var gagnleg í skólastofum. (11)
LÓÐRÉTT
1. Eyðileggi höfuðborg með áfengi. (9)
2. Biblíupersóna fékk bandið frá happdrættinu. (7)
3. Staðsetningu bókabúðar ber oft á góma. (7)
5. Hnappur kenndur við þráð er stærðfræðihugtak. (9)
6. Afsíðis má vegi sjá með ögn. (8)
7. Auðjarl og ásynja tengd tunglinu skapa vegalengd. (8)
8. Tónn í bát. (6)
9. Ekki brúka orð sem eru skætingur. (8)
12. Ritstúfur um örður hríslu. (11)
17. Tónleikar í helmingi Nasa blandast saman í sérstöku hljóð-
færi. (10)
18. Þvær geimflaugarnar. (6)
20. Sá með langa putta er þjófóttur. (12)
21. Jáb, Urður þú færð krem. (10)
22. Stírurnar hafa ljós. (5)
23. Amtmenn rek einhvern veginn fyrir höfðingja. (10)
24. Eys Tryggingarstofnun rugluðum atlas út í haf. (10)
25. Það er barningur að smíða vísuna. (9)
28. Engin vísa íþróttafélags fjallar um eftirrétt. (8)
29. Kallið ef flækist til bæjar í utanverðum Hvalfirði. (8)
31. Hvirfill á stól. (6)
Þá hefur það gerst. Norð-maður er orðinn heimsmeist-ari í skák! Við hljótum að
óska frændum okkar til hamingju
með Magnus og heimsmeistaratit-
ilinn. Lokatölur í einvíginu, 6 ½ : 3
½, eru mælikvarði á þá yfirburði
sem Magnus Carlsen hafði yfir
hinn geðþekka indverska heims-
meistara, Viswanathan Anand. Ís-
lenskir skákunnendur hafa fylgst
náið með frammistöðu norska
undrabarnsins allt frá því að hann
tefldi fyrst hér á landi 13 ára gam-
all í mars árið 2004 og vann Anatolí
Karpov í hraðskákhluta Reykjavik
rapid á NASA við Austurvöll og
gerði síðan jafntefli við Garrí Kasp-
arov í atskák-hluta mótsins. Þessar
skákir vöktu á Magnusi gríðarlega
athygli heima fyrir og nú tæplega
10 árum síðar berast þær fréttir að
skákæði hafi gripið um sig með
norsku þjóðinni. Minna fór fyrir
Magnusi þegar hann tefldi á
Reykjavíkurskákmótinu 2006; hann
var þá orðinn magnaður bar-
áttumaður sem var á fleygiferð upp
styrkleikalistann.
Áhugi á þessu einvígi út um allan
heim náði nýjum hæðum og tengd-
ist einkum persónu Magnusar Carl-
sen sem verður 23 ára gamall eftir
viku og er næstyngsti heimsmeist-
ari skáksögunnar.
Hinn nýi heimsmeistari er góð
fyrirmynd, kurteis, snyrtilega
klæddur og á sér svipuð áhugamál
og aðrir ungir menn, ágætur á skíð-
um, grimmur í fótbolta, „tístir“ og
bloggar. Hann hefur efnast vel á
verðlaunafé og auglýsingasamn-
ingum, t.d. fyrir tískuvörur G-Star
Raw. Er enn ólofaður og býr í for-
eldrahúsum í Bærum í grennd við
Ósló. Lítill vafi leikur á því að góð-
ur stuðningur foreldra og systra
hefur skipt miklu máli fyrir Magn-
us en þau ferðast með honum út
um allar þorpagrundir. Við skák-
borðið er hann allajafna pollrólegur
og virkar stundum dálítið syfjuleg-
ur. Hann virðist hafa hæfileika til
þess að vinna úr gríðarlega magni
upplýsinga – og kann einnig að
forðast upplýsingar! Og þegar horft
er yfir þessar tíu skákir einvígisins
er vart hægt að benda á slakan leik
hjá Magnusi. Anand náði sér aldrei
á strik en í 9. skákinni vissi hann að
einungis sigur kom til greina, hann
lagði allt undir:
9. einvígisskák:
Viswanathan Anand – Magnus
Carlsen
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
f3 d5 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7.
cxd5 exd5
Algengara er 7. … Rxd5 en að
venju sniðgengur Magnus þekkt-
ustu leiðir.
8. e3 c4 9. Re2 Rc6 10. g4 O-O
11. Bg2 Ra5 12. O-O Rb3 13. Ha2
b5 14. Rg3 a5 15. g5 Re8 16. e4
Rxc1 17. Dxc1 Ha6 18. e5 Rc7 19.
f4 b4 20. axb4 axb4 21. Hxa6 Rxa6
22. f5 b3
Spurningin var auðvitað sú hvort
peðastormur hvíts á kóngsvæng
væri meira en ógnandi en þetta frí-
peð. „Houdini“ metur stöðuna að-
eins betri á svart.
23. Df4 Rc7 24. f6 g6 25. Dh4
Re8 26. Dh6 b2
- Sjá stöðumynd -
27. Hf4!
Fífldjarfur leikur, að því er virð-
ist ekki lakari en 27. Re2 sem einn-
ig kemur til greina. Hótunin er 28.
Hh4 og mátar.
27. … b1(D)+ 28. Rf1??
Óskiljanleg mistök. Eftir 28. Bf1
verður svartur að gefa nýju drottn-
inguna til baka og framhaldið gæti
orðið: 28. … Dd1 29. Hh4 Dh5 30.
Rxh5 gxh5 31. Hxh5 Bf5 32. g6!
Bxg6 33. Hg5 Da5 34. Hg3. Menn
svarts er bundnir í báða skó og
ýmsir möguleikar leynast í stöð-
unni. Þarna fór lokatækifæri An-
ands í einvíginu.
28. … De1!
Með hugmyndinni 29. Hh4 Dxh4
30. Dxh4 Da5 og vinnur. Anand
gafst upp.
SKÁK
Magnus Carlsen er nýr heimsmeistari
Verðlaun eru veitt fyrir
rétta lausn krossgátunnar.
Senda skal þátttökuseð-
ilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 24. nóvember
rennur út á hádegi föstu-
daginn 28. nóvember.
Vinningshafi krossgát-
unnar 17. nóvember er
Hrafnhildur Ásgeirsdóttir, Glaðheimum 26, 104
Reykjavík. Hlýtur hún bókina Blóðhófnir eftir Gerði
Kristnýju í verðlaun. JPV gefur út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang