Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
STIGAR OG TRÖPPUR Á
20% AFSLÆTTI*
ÁLHJÓLA
PALLAR
OG
-VEGGJA
PALLAR
AFSLÁTTUR*
25%
*
Sorpkvarnir
AF BRIMRÁSAR STIGUM OG TRÖPPUM
*Tilboðin gilda til áramóta eða á meðan birgðir endast
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
sagði í gær að mótmælin í Úkraínu,
vegna ákvörðunar þarlendra stjórn-
valda að skrifa ekki undir samstarfs-
samning við Evrópusambandið,
væru líkari skipulögðum ofsóknum
en byltingu. „Þau hafa lítið með sam-
band Úkraínu við Evrópusambandið
að gera,“ sagði forsetinn, sem var í
opinberri heimsókn í Armeníu.
Mótmælendur boðuðu almennt
verkfall í gær og hindruðu aðgang að
opinberum byggingum en tugþús-
undir kölluðu um helgina eftir kosn-
ingum vegna ákvörðunar stjórn-
valda um að falla frá sögulegu
samkomulagi við Evrópusambandið.
Þúsundir gengu að stjórnarráðs-
byggingum í gær og kölluðu eftir af-
sögn forsetans, Viktors Janúkóvítsj.
„Við erum þreytt á þessum glæp-
onum og stigamönnum,“ sagði einn
mótmælenda við AFP í gær. „Allt er
spillt. Við viljum vera nánari venju-
legum löndum og ekki Rússlandi,“
sagði hann.
Friðsamleg lausn
Lögregla og mótmælendur skipt-
ust á reyksprengjum og bensín-
sprengjum fyrir utan aðsetur forset-
ans í Kíev í gær. Fráfarandi
utanríkisráðherra Þýskalands,
Guido Westerwelle, sagði í tilkynn-
ingu að mótmælin bæru vitni til-
komumikilli skuldbindingu gagnvart
Evrópu og að þau sýndu að hjarta
úkraínsku þjóðarinnar slægi með
„evrópskum hætti“. Talsmaður An-
gelu Merkel kanslara sagði að mót-
mælin sendu skýr skilaboð og að
vonandi legði Janúkóvítsj við hlustir.
Evrópusambandið hvatti í gær til
þess að fundin yrði friðsamleg lausn í
málinu og biðlaði til stjórnvalda um
að halda aftur af sér gagnvart mót-
mælendum. Utanríkisráðherra Pól-
lands, Radoslaw Sikorski, sagði að
Leonid Kozhara, utanríkisráðherra
Úkraínu, hefði fullvissað hann um að
ekki stæði til að lýsa yfir neyðar-
ástandi í Kíev en orðrómur þess efn-
is hafði náð eyrum fjölmiðla í gær.
Forsætisráðherra Póllands, Do-
nald Tusk, og Francois Hollande
Frakklandsforseti fordæmdu í gær
ofbeldisfull átökin, sem þeir sögðu
hafa leitt til fjölda meiðsla hjá mót-
mælendum, lögreglu og blaðamönn-
um.
Þúsundir fóru fram
á afsögn forsetans
Hjarta úkraínsku þjóðarinnar slær með „evrópskum hætti“
AFP
Átök Forsætisráðherra Úkraínu, Mykola Azarov, sagði í gær að mótmælin í landinu, vegna ákvörðunar stjórnvalda
um að skrifa ekki undir samstarfssamning við Evrópusambandið, væru ólögmæt og komin úr böndunum.
Bandalag stjórnarandstæðinga í
Bangladess hefur staðfest að stjórn-
arandstöðuflokkarnir muni sniðganga
þingkosningarnar í janúar næstkom-
andi en frestur til að skila inn fram-
boðslistum rann út í gær.
Stjórnarandstæðingar, undir for-
ystu Þjóðernisflokks Khaleda Zia,
fyrrverandi forsætisráðherra, segjast
aðeins munu taka þátt í kosningunum
ef þær verða framkvæmdar af óháðri
bráðabirgðastjórn, þar sem ríkis-
stjórn Sheikh Hasina, sitjandi for-
sætisráðherra, sé ekki treystandi til
að halda sanngjarnar kosningar.
Frá 1990 hefur fjórum sinnum ver-
ið skipuð sérstök óháð bráðabirgða-
stjórn til að hafa umsjón með frjálsum
kosningum í Bangladess en Hasina
ákvað árið 2011 að falla frá því kerfi, á
þeim forsendum að það bryti gegn
stjórnarskránni og yki líkurnar á
valdaráni. Forsætisráðherrann hefur
þess í stað skipað bráðabirgðastjórn
sem m.a. er skipuð nánum banda-
mönnum hennar.
Átök og verkföll hafa sett mark sitt
á daglegt líf í landinu síðustu misseri.
Alls hafa 52 látið lífið í átökum frá því
í október, þar af 22 síðan 25. nóv-
ember síðastliðinn, þegar tilkynnt var
að þingkosningarnar yrðu haldnar 5.
janúar næstkomandi. Tveir létust í
gær í átökum milli stuðningsmanna
stjórnarinnar og stjórnar-
andstöðunnar en þeir síðarnefndu
hafa m.a. reynt að stöðva almenn-
ingssamgöngur með því að eyðileggja
lestarteina, kveikja í lestarvögnum og
ráðast á lestir með bensínsprengjum.
Navi Pillay, mannréttindastjóri
Sameinuðu þjóðanna, varaði um
helgina við því að ástandið í Bangla-
dess væri hættulega nálægt því að
verða að meiriháttar krísu. Hún sagði
meirihluta Bangladessa kalla eftir
friðsamlegum kosningum.
holmfridur@mbl.is
Stjórnarandstað-
an hyggst snið-
ganga kosningar
Óháð stjórn sjái um framkvæmdina
AFP
Umdeild Sheikh Hasina hefur
boðað til kosninga 5. janúar.
Þjóðernisflokkurinn hefur lýst sig tilbúinn til viðræðna
um kosningarnar en hefur sakað stjórnvöld um að
hafa beint spjótum sínum að leiðtogum flokksins. Að
minnsta kosti átta háttsettir einstaklingar í flokksfor-
ystunni hafa verið handteknir á síðustu vikum, grun-
aðir um að hafa stofnað til ofbeldis.
Árið 2013 hefur verið sérlega róstusamt í Bangla-
dess og átök aldrei meiri síðan landið vann sér sjálf-
stæði frá Pakistan árið 1971. Fleiri en 150 létu lífið í
mótmælum fyrr á árinu eftir að umdeildur refsidóm-
stóll dæmdi stjórnarandstöðuleiðtoga, þ. á m. Ghulam Azam, fyrrum leið-
toga Jamaat-e-Islami, til dauða fyrir fjöldamorð í sjálfstæðisstríðinu.
Leiðtogarnir fangelsaðir
ÁTAKAMESTA ÁRIÐ FRÁ 1971
Khaleda Zia
Jeff Bezos, stofnandi og fram-
kvæmdastjóri vefverslunarrisans
Amazon, segir fyrirtækið vinna að
heimsendiþjónustu með smáflug-
tækjum. Bezos uppljóstraði þessu í
fréttaskýringaþættinum 60 Minutes
sem sýndur var um helgina en hann
segir að þjónustan, sem hefur hlotið
nafnið Prime Air, muni gera Ama-
zon kleift að koma sendingum til
viðskiptavina aðeins 30 mínútum
eftir að þeir leggja inn pöntun á
vefsíðu fyrirtækisins.
Bezos segir að flugtækin muni
geta borið allt að 2,2 kg og að vör-
urnar verði sendar frá 96 risavöru-
húsum Amazon í Bandaríkjunum.
Samkvæmt Bezos eru 86% vara sem
fyrirtækið heimsendir undir þyngd-
armörkunum.
Bezos segir að enn sé unnið að
þróun kerfisins, m.a. eigi eftir að
skoða öryggisþætti þess betur og fá
samþykki flugmálayfirvalda. Hann
segist gera ráð fyrir að Prime Air-
þjónustan muni standa við-
skiptavinum til boða innan fjögurra
til fimm ára.
BANDARÍKIN
Hyggjast heimsenda með smáflugtækjum
Smáflugtæki Amazon.
2.162 einstaklingar, á sjúkrahúsum
og umönnunarheimilum í Bret-
landi, hafa látið lífið vegna ofþorn-
unar eða næringarskorts síðasta
áratug, samkvæmt tölum bresku
hagstofunnar. Tölurnar sýna að á
árunum 2003-2009 létust árlega að
meðaltali 223 af þessum sökum en
rétt yfir 200 árin 2010-2012.
Norman Lamb, ráðherra um-
mönnunar- og stuðningsþjónustu,
segir dauðsföll af völdum ofþorn-
unar eða næringarskorts al-
gjörlega óásættanleg og að stjórn-
völd muni vinna að því að gera
stjórnendur umönnunarheimila
ábyrga fyrir þeirri
þjónustu sem þau
veita.
Í samtali við
Daily Telegraph
segir Dot Gibson,
framkvæmdastjóri
landssamtaka
eldri borgara, að taka þurfi kerfið
til gagngerrar endurskoðunar. „Al-
menningur yrði yfir sig hneyksl-
aður ef farið væri með dýr á þenn-
an hátt; við þurfum að sýna sömu
hluttekningu þegar kemur að
umönnun aldraðra ástvina,“ sagði
hún.
BRETLAND
Vatn er lífs-
nauðsynlegt.
Þúsundir deyja vegna ónógrar aðhlynningar