Morgunblaðið - 05.12.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.12.2013, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 5. D E S E M B E R 2 0 1 3  283. tölublað  101. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG dagar til jóla 19 Sendu jólakveðjur á www.jolamjolk.is JÁKVÆÐ ORKA OG KÆRLEIKUR DÚKKUHÚSIN HAFA SLEGIÐ Í GEGN ÞRÖSTUR GEKK MEÐ HUGMYND AÐ BÓK Í 20 ÁR VIÐSKIPTABLAÐ FJÖLSKYLDUVANDI 42HANDBÓK TOLLA 10 ÁRA STOFNAÐ 1913 Morgunblaðið/Ómar Réttir Búfjáreftirlitið vantar fjármagn.  Sex þingmenn úr atvinnuvega- nefnd Alþingis hafa lagt fram frum- varp um breytingar á lögum um velferð dýra. Lögin eiga að taka gildi um áramót en framkvæmd þeirra hefur ekki verið fjármögnuð. Matvælastofnun tilkynnti í lok október að búið væri að ráða sex búfjáreftirlitsmenn en hefur ekki getað gengið frá ráðningarsamn- ingum vegna óvissu um fjárveit- ingar. Hefur það skapað erfiðleika hjá þessum nýju starfsmönnum sem eiga að hefja störf 1. janúar. Frumvarpið gerir ráð fyrir að dregið verði úr kröfum um reglu- legt eftirlit á þeim bæjum þar sem allt er talið í lagi. Reiknað er með að nokkrar milljónir sparist. »24 Dregið úr kröfum um reglubundið eftirlit með búfé Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Ríkisstjórnarflokkarnir fengju samanlagt 43,4% fylgi ef gengið yrði til þingkosninga nú, sam- kvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið. Sjálfstæðis- flokkurinn fengi 23,3% atkvæða og Framsóknar- flokkurinn 20,1%. Þetta er nærri átta prósentu- stigum minnna en flokkarnir fengu í þing- kosningum í apríl sl. þegar Sjálfstæðisflokkurinn fékk 26,7% atkvæða og Framsóknarflokkurinn 24,4%. Könnunin var gerð dagana 2. og 3. desem- ber sl., eða eftir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í skuldamálum voru kynntar. Miðað við kosningarnar í vor bæta stjórnarand- stöðuflokkarnir allir við sig fylgi og Björt framtíð mestu, eða úr 8,2% í kosningunum í 13,7% nú. Hins vegar er niðurstaðan núna athyglisverðari í samanburði við síðustu könnun Félagsvísinda- stofnunar, sem gerð var í nóvember síðastliðinn, eða áður en skuldaleiðréttingarnar voru kynntar. Þá mældist Sjálfstæðisflokkurinn með 24,1% at- kvæða en Framsóknarflokkurinn með aðeins 13,2%, eða um 11 prósentustigum minna en í kosn- ingum. Síðan í nóvember hafa aðrir flokkar tapað fylgi, að Pírötum undanskildum. Alls tóku 811 þátt í könnuninni nú og þar af gaf 651 upp afstöðu sína. MStjórnarandstaðan … »6 Framsókn bætir við sig  Sjálfstæðisflokkurinn með 23,3% fylgi í nýrri könnun  Framsóknarflokkurinn með 20,1% en var með 13,2% í könnun Félagsvísindastofnunar í nóvember Fagurt var um að litast í Mývatnssveitinni sem víða var þakin klakaböndum í gær. Búast má við brunagaddi um landið í dag. Varað er við hættu á að vatn frjósi í lögnum í svo miklum kulda, ekki síst í sumarhúsabyggð að því er fram kemur í frétt frá VÍS sem hefur eftir Einari Sveinbjörnssyni hjá Veðurvaktinni að frostið geti orðið 15 til 22 stig frá því seinnipartinn í dag og fram á morgun. Í gærkvöldi olli bilun í Deildartunguæð heitavatnsleysi á Akranesi en viðgerð lauk síðar um kvöldið og var von á fullum vatnsþrýstingi í nótt. Gróður í klakaböndum við Mývatn Morgunblaðið/Birkir Fanndal Frostið getur orðið 15-22 stig frá því seinnipartinn í dag og fram á morgun  Aðeins sjö verslanir og versl- anakeðjur taka þátt í bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda sem er sendur út vikulega fyrir jólin og á að gefa mynd af mest seldu bók- unum. Engin af stóru bókabúðunum er með á listanum en þær vilja ekki vera með matvöruverslunum á lista sem er unninn af hagsmunaaðila, út- gefendum sjálfum. Þá furðar Verð- lagseftirlit ASÍ sig á því að stærsti bóksali á landinu, Eymundsson, neiti þátttöku í verðkönnun á jólabókum af því að matvöruverslanir selji nokkrar bækur fyrir jólin. »12 Bókaverslanir vilja ekki vera með  Stjórnvöld eru með það til skoð- unar að leggja fram lagafrumvörp sem myndu þrengja að núverandi starfsumhverfi föllnu bankanna. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru tilbúin drög að slíkum frumvörpum í fjármálaráðuneytinu sem gætu hugsanlega verið lögð fyrir Alþingi í vetur. Í frumvörpunum er meðal annars lagt til að settur verði tímafrestur á slitameðferð bankanna og að við gjaldþrotaskipti fái kröfuhafar að- eins greitt í krónum. »Viðskipti Skoða leiðir til að þrýsta á kröfuhafa  Viðskiptabankarnir eru orðnir nánast allsráðandi þegar kemur að nýjum fasteignaútlánum en á fyrstu sex mánuðum ársins veittu þeir 1.800 slík lán að andvirði 21 millj- arðs króna. Íbúðalánasjóður veitti hins vegar á sama tíma aðeins 468 fasteignalán fyrir 4,3 milljarða. Þetta kemur fram í ársriti Sam- taka fjármálafyrirtækja sem verð- ur kynnt á ársfundi SFF í dag. Sókn bankanna á fasteignalánamarkaði nær til allra landshluta. »Viðskipti Bankar allsráðandi á íbúðalánamarkaði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.