Morgunblaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 1
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Stjórnvöld eru með það til skoðunar hvort
ástæða sé til þess að setja lög um hagsmunaverði
sem starfa fyrir erlenda aðila á Íslandi. Í slíkum
lögum gæti falist að gera þyrfti grein fyrir því
fyrir hverja hagsmunaverðir ynnu og hvaða
greiðslur þeir fengju.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráð-
herra vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því
var leitað en Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð-
armaður forsætisráðherra, segir að „sú umræða
hefur vissulega komið upp hvort ekki sé ástæða
til að setja slík lög. Reynslan sýnir að áhrif
margvíslegra þrýstihópa hafa farið vaxandi und-
anfarin ár og á sama tíma hafa kröfur um gagn-
sæi aukist. Sú staða sem Ísland er í um þessar
mundir, þar sem ýmsir aðilar hafa gífurlegra
hagsmuna að gæta varðandi skuldaskil föllnu
bankanna, hefur vakið athygli á því hvort þörf sé
á slíkri lagasetningu“.
Fá 120 þúsund krónur á tímann
Jóhannes bendir á að löndin í kringum okkur,
til dæmis Kanada, hafi mörg hver strangar regl-
ur um gagnsæi þrýstihópa og starfa þeirra sem
vinna fyrir hagsmunaaðila, meðal annars varð-
andi fjárhagslegan stuðning og greiðslur.
Í ítarlegri úttekt í viðskiptablaði Morgunblaðs-
ins er fjallað um þann stóra hóp ráðgjafa sem
starfar fyrir slitastjórnir Glitnis og Kaupþings og
stærstu kröfuhafa bankanna. Frá 2012 hafa búin
greitt um tíu milljarða í aðkeyptan lögfræði- og
ráðgjafarkostnað vegna vinnu í tengslum við
gerð nauðasamnings. Helstu ráðgjafar kröfuhafa
fá um 120 þúsund krónur á tímann.
M Hagsmunaverðir og ráðgjafar »Viðskipti
Skoða lög um þrýstihópa
Kemur til vegna hagsmunagæslu kröfuhafa Mörg lönd með strangar reglur
um þrýstihópa Aðkeyptur ráðgjafarkostnaður við nauðasamninga tíu milljarðar
F I M M T U D A G U R 1 2. D E S E M B E R 2 0 1 3
289. tölublað 101. árgangur
AÐSTOÐAR FÓLK
MEÐ STUÐNINGI
FRÁ ÖÐRUM HEIMI
ÍSLENSKI
AUGLÝSINGA-
MARKAÐURINN
GEFUR ÚT TÓNLIST
ÚR TVEIMUR
DANSSÝNINGUM
VIÐSKIPTABLAÐ SÓLRÚN SUMARLIÐADÓTTIR 42SNORRI Á FOSSUM 10
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Tölvuteikning/THG verkfræðistofa
Drög að stækkun Borgarleikhúsið er í
baksýn. Rífa á Morgunblaðshúsið á lóðinni.
Fasteignafélagið Reitir hyggst á
næstu árum hefja framkvæmdir við
stækkun Kringlunnar til vesturs.
Samkvæmt núverandi drögum yrði
viðbótin 20.000 fermetrar og hluti
hennar byggður yfir umferðargötu.
Við hinn áformaða vesturhluta
Kringlunnar stendur til að reisa
hótel, atvinnuhúsnæði og íbúðir.
Guðjón Auðunsson, fram-
kvæmdastjóri Reita, segir að byggt
verði upp í áföngum og að fram-
kvæmdin kosti tugi milljarða. »20
Tugir milljarða fari
í stærri Kringlu
Starfsmenn Reykjavíkurborgar settu upp vatns-
hana í hjarninu í Elliðaárdal í gær. Vatnshaninn
er eitt af þeim tólf atriðum sem íbúar Árbæj-
arhverfis óskuðu eftir í íbúakosningu um Betra
hverfi 2013. Vatnshana er víða að finna á göngu-
stígum borgarinnar.
Morgunblaðið/Golli
Vatnshani settur
upp í Elliðaárdal
Þær líkams-
ræktarstöðvar
sem eingöngu
eru ætlaðar kon-
um verða að
hleypa körlum
inn líka ef frum-
varp til laga um
breytingu á lög-
um um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla fer óbreytt í gegnum Alþingi.
Um er að ræða tilskipun Evrópu-
sambandsins um jafna stöðu
kynjanna, meðal annars þegar
kemur að vöru og þjónustu. Einnig
mætti leiða að því líkur að þessar
breytingar hefðu áhrif til hækk-
unar vátryggingaiðgjalda fyrir
konur en lækkunar fyrir karla. »6
Ekki gert upp á milli
kynjanna í ræktinni
Egill Ólafsson
Helgi Bjarnason
Framlög til heilbrigðismála verða
aukin um 4 milljarða samkvæmt til-
lögum meirihluta fjárlaganefndar
sem afgreiddar voru úr nefndinni í
gærkvöldi. Landspítalinn og Sjúkra-
húsið á Akureyri fá um 3,3 milljarða
og heilbrigðisstofnanir á lands-
byggðinni rúmlega 600 milljónir.
Guðlaugur Þór Þórðarson, vara-
formaður fjárlaganefndar, segir að
tillögurnar einkennist af því að spar-
að er í ríkisútgjöldum til að skapa
svigrúm fyrir brýn verkefni í heil-
brigðismálum. „Meirihluti fjárlaga-
nefndar er ánægður með hvernig
tókst að forgangsraða í þágu heil-
brigðismála og í þágu þjóðarinnar
allrar á þessum skamma tíma sem
liðinn er frá kosningum,“ segir Vig-
dís Hauksdóttir, formaður fjárlaga-
nefndar, og tekur fram að hún sé
ánægð með þær jákvæðu breytingar
sem orðið hafi á frumvarpinu.
Sparnaður greiddur út
Aukin aðhaldskrafa verður gerð á
hendur ráðuneytunum. Skorið verð-
ur meira niður hjá utanríkisráðu-
neytinu en öðrum ráðuneytum. Gert
er ráð fyrir að framlög til þróunar-
mála verði svipuð og á síðasta ári en
það þýðir að þau lækka um hálfan
milljarð frá því sem er í ár.
Barnabætur verða ekki lækkaðar
en vaxtabætur skertar hjá þeim sem
hafa hæstar tekjur. Gert er ráð fyrir
því að tímabundin heimild til að taka
út séreignarsparnað verði fram-
lengd og að það skili um 500 millj-
ónum í ríkissjóð. Þá er reiknað með
að fjársýsluskatturinn verði ekki
lækkaður eins mikið og boðað var í
fjárlagafrumvarpi.
Fram hefur komið í þinginu að
skattstofnar skila meiri tekjum í ár
en gert var ráð fyrir og í framhaldi af
því er gert ráð fyrir meiri tekjum á
næsta ári en í fyrri áætlunum. »2
Fjórir milljarðar auka-
lega til heilbrigðismála
Verulegar breytingar á fjárlagafrumvarpi í fjárlaganefnd
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
Giljagaur kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
dagar til jóla
12