Morgunblaðið - 31.12.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.12.2013, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3 1. D E S E M B E R 2 0 1 3  303. tölublað  101. árgangur  BARNAEFNI MEÐ SUNNUDAGA- SKÓLAEFNI HALDA SJÓN- RÆNA TÓN- LISTARHÁTÍÐ MIKILVÆGAST AÐ VERA TRÚR EIGIN KÍMNIGÁFU YFIR 1.000 LISTAMENN 62 LEIKSTJÓRI ÁRAMÓTASKAUPSINS 65TINNA TÁKNMÁLSÁLFUR 10 ÁRA STOFNAÐ 1913 Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleðilegt nýtt ár  Fjörutíu sjó- menn á frystitog- aranum Þór HF-4 hafa nú misst vinnuna. Togarinn kom úr síðasta túrnum 18. desember, kvöldið áður fékk skipstjórinn að vita að nú væri þetta „bara búið“. Um borð hverju sinni voru 26 sjómenn og svo voru sjómenn í landi, samtals 40 manns. Þorvaldur Svavarsson skipstjóri segir að atvinnuhorfur togarasjó- manna séu ekki góðar. »18 Fjörutíu togara- sjómenn á Þór HF missa vinnuna Þór HF 40 manna áhöfn sagt upp.  Þriðja árið í röð hækkaði Ice- landair Group mest af þeim fé- lögum sem skráð eru á Aðallista Kauphallarinnar. Í ár hækkaði fé- lagið um 118%, en árin tvö á undan var hækkunin um það bil 60% hvort árið um sig. Til samanburðar hækkaði easyJet um 98% á árinu og Ryanair um 38%. Úrvalsvísitalan hækkaði um 19% á árinu en til samanburðar hækkaði vísitalan EuroStoxx 50, sem mælir þróun á hlutabréfaverði á evru- svæðinu, um 18%. Vodafone lækk- aði mest á árinu eða um 16%. »26 Icelandair hækkaði um 118% í ár Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þróun og samspil tekna, eigna og skulda fólks bendir til að botninum eftir efnahagsáfallið hafi verið náð á árinu 2010. Síðan þá hafa eignir og tekjur aukist en skuldir minnkað. Athugun á skattframtölum bendir til að nú sé að taka við endurreisnar- skeið þegar tekjur, eignir og skuldir leita aftur nýs jafnvægis. Páll Kolbeins rekstrarhagfræð- ingur rýnir í samspil tekna, eigna og skulda einstaklinga samkvæmt skattframtölum síðustu tuttugu árin í grein sem birt er í Tíund, frétta- blaði Ríkisskattstjóra. Páll rifjar upp þensluskeiðið frá því eftir aldamót. Um miðjan áratug- inn fóru skuldir að aukast mun hrað- ar en eignir og eignir hraðar en tekjur og samband tekna, eigna og skulda riðlaðist. Það endaði með því að haustið 2008 hrundi raungildi tekna og eigna á sama tíma og skuld- ir héldu verðgildi sínu eða jukust. Á þessum tíma dró í sundur með þeim fjölskyldum sem mestar eignir áttu og hinum sem minna áttu. Eignir aukast á ný Eignir eru nú aftur farnar að aukast. Frá árinu 2010 hafa eignir landsmanna aukist um 59 milljarða að raungildi. Á þeim tíma hafa eignir auðugustu fjölskyldna landsins hins vegar haldið áfram að rýrna, um 46 milljarða samkvæmt skattframtöl- um fyrir árin 2011 og 2012. Eigna- aukningin kemur því fram hjá öðrum eignahópum en þeim allra ríkustu. Páll vekur athygli á að hrun fjár- magnstekna hafi komið illa við eignafólk. Hann segir þó að skipta megi eignafólki í tvo hópa. „Annars vegar eru þeir sem eiga miklar eign- ir og skulda mikið og svo eru hinir sem eiga skuldlausar eignir. Þeim síðarnefndu fjölgaði mikið í hópi þeirra ríkustu þegar lánsfé var auð- fengið en hafa ekki allir staðið af sér ágjöf sem landið varð fyrir á sínum tíma,“ segir Páll Kolbeins. »4 Eignir og skuld- ir leita jafnvægis  Þróunin í fjármálum heimila snerist við á árinu 2010  Eignir og tekjur hafa aukist á nýjan leik en skuldir minnkað Bæta á í vind eftir hádegi í dag og gerir Veðurstofan ráð fyrir norð- austan 13-20 m/s á norðvestanverðu landinu og við suðausturströndina í kvöld. Annars staðar verður hægara veður. Á nýársdag á áfram að vera hvasst, sérstaklega á Vestfjörðum en snjókoma og slydda verður á norðanverðu landinu. Árið í ár er það kaldasta á þessari öld á höfuðborgarsvæðinu sam- kvæmt yfirliti Veðurstofunnar yfir tíðarfar ársins 2013. Einar Svein- björnsson veðurfræðingur segir útlit fyrir heldur rólegra veður í upphafi árs en verið hefur frá því um miðjan þennan mánuð. »2 og 22 Skapti Hallgrímsson Fönn Áfram snjóar fyrir norðan. Hvasst í spánni  Býst við hægara veðri á nýju áriEigið fé einstaklinga jókst á árunum 2004 til 2007 um 931 milljarð Það hvarf út um gluggann í hruninu þegar eignin minnkaði um 1.158 millj. Þróunin leitar jafnvægis því frá 2010 hefur eigið fé aukist um 334 milljarða ‹ EIGIÐ FÉ EYKST Á NÝ › »
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.