Morgunblaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 3
Spánn Bikarkeppnin, 32 liða, seinni leikir: Almería – Las Palmas.............................. 0:0  Almbería áfram, 3:1 samanlagt. Atlético Madríd – Sant Andreu............... 2:1  Atlético áfram, 6:1 samanlagt. Real Betis – Lleida................................... 2:2  Betis áfram, 4:3 samanlagt. Real Sociedad – Algeciras ....................... 4:0  Sociedad áfram, 5:1 samanlagt. Real Madríd – Olimpic Xativa ............. 2:0  Real áfram, 2:0 samanlagt. Sevilla – Racing Santander .. 0:2  Racing áfram, 1:2 samanlagt. England Deildabikarinn, 8-liða úrslit: Tottenham – West Ham ........... 1:2  Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Tottenham. Stoke – Man. Utd................. 0:2  Man. United mætir Sunder- land í undanúrslitum og Man. City mætir West Ham. B-deild: Sheffield Wednesday – Wigan .... frestað. Ítalía Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Juventus – Avellino .................................. 3:0 Holland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: AZ Alkmaar – Heerenveen............ 2:2 (7:6)  Aron Jóhannsson skoraði tvö mörk fyrir AZ og eitt í vítaspyrnukeppninni. Jóhann Berg var tekinn af velli.  Alfreð Finnbogason skoraði úr sinni spyrnu í vítaspyrnukeppninni. Belgía Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Zulte-Waregem – Cercle Brugge .......... 1:0  Ólafur Ingi Skúlason lék allan tímann fyrir Zulte-Waregem.  Arnar Þór Viðarsson er aðstoðarþjálfari Cercle Brugge. Heimsbikar félagsliða Undanúrslit: Raja Casablanca – Atlético Mineiro ....... 3:1  Raja Casablanca mætir Bayern Mün- chen í úrslitaleiknum. KNATTSPYRNA Róbert Gunn-arsson skoraði þrjú mörk fyrir París Handball þegar liðið lagði Tremblay, 29:23, í frönsku 1. deild- inni í handbolta í gærkvöld. Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað fyrir Parísarliðið sem er jafnt Dun- kerque í efstu tveimur sætum deild- arinnar með 21 stig. Gunnar Steinn Jónsson og félagar í Nantes unnu góðan útisigur á Aix, 27:22, þar sem Gunnar skoraði tvö mörk en Nantes er í 5. sæti deildarinnar með 16 stig. Þá vann Saint Raphaël útisigur á Ivry, 30:28, án Arnórs Atlasonar sem er frá vegna meiðsla en þátt- taka hans á EM í janúar er í upp- námi. Saint Raphaël er í 6. sæti með 16 stig eins og Nantes.    Ólafur Guð-mundsson skoraði þrjú mörk fyrir Kristi- anstad sem vann Ystad, 26:22, í sænsku úrvals- deildinni í hand- bolta í gærkvöld en liðið er jafnt Lugi á toppi deildarinnar með 27 stig. Heimir Óli Heimisson skoraði svo tvö mörk fyrir Guif sem valtaði yfir Malmö með tíu marka mun, 33:23, á heimavelli. Aron Rafn Eð- varðsson stóð vaktina í marki Guif og stóð sig vel en liðið þjálfar Krist- ján Andrésson. Guif er sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 20 stig.    ÍA, sem féll úr Pepsi-deildinni í fótbolta í sumar, styrkti sig fyrir átökin í 1. deildinni á næsta ári í gær þegar liðið fékk til sín Wentzel Steinar Ragnarsson Kamban frá Aftureldingu og Ingimar Elí Hlyns- son frá FH. Fólk sport@mbl.is Frjálsíþróttafólkið Aníta Hinriksdóttir úr ÍR og Helgi Sveinsson úr Ármanni voru í gær útnefnd íþróttafólk Reykjavíkur árið 2013. Bæði fögnuðu heimsmeistaratitli á árinu. Aníta varð heimsmeistari 17 ára og yngri, og Evr- ópumeistari 19 ára og yngri, í 800 metra hlaupi á árinu. Helgi varð heimsmeistari í spjótkasti á HM fatlaðra í sumar. Karlalið KR í knattspyrnu var svo útnefnt íþróttalið Reykjavíkur 2013 og tólf einstaklingar og fjórtán lið frá sjö félögum voru verðlaunuð fyrir frá- bæran árangur á árinu 2013. Íþróttafólkið og -félög- in fengu samtals 4 milljónir króna í styrki frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og Íþrótta- og tóm- stundaráði Reykjavíkur. sport@mbl.is Helgi og Aníta best í Reykjavík ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2013 Manchester-liðin United og City geta mæst í úr- slitaleik enska deildabikarsins en United mætir Sunderland og City berst við West Ham í undan- úrslitum keppninnar. Dregið var í undanúrslitin í gærkvöldi eftir seinni tvo leikina í átta liða úrslitum keppninnar. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Tottenham voru ekki í pottinum því þeir töpuðu á heimavelli fyrir West Ham, 2:1, þrátt fyrir að komast yfir í leiknum. Emmanuel Adebayor sem fékk tækifæri í byrjunarliðinu skoraði mark heimamanna. Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn og hefði getað jafn- að leikinn undir lokin. Þetta er annað tap Tottenham fyrir West Ham á White Hart Lane á tímabilinu en þar unnu Hamr- arnir einnig sigur í deildinni fyrr á tímabilinu. Tim Sherwood stýrði Tottenham í leiknum en félagið leitar nú að eftirmanni Portúgalans André Villas- Boas sem rekinn var eftir tapið gegn Liverpool um síðustu helgi. United-sigur í haglélinu Manchester United vann 2:0- útisigur á Stoke þar sem Ashley Young og Patrice Evra skoruðu mörkin í seinni hálfleik. Hlé þurfti að gera á leiknum í seinni hálfleik vegna veðurs. Mikið rok og rigning var í Stoke í gær en þegar við bættist haglél stöðvaði Mark Clattenburg dómari leikinn í tíu mínútur eða svo. Fyrir leikinn tjáði David Moyes, knattspyrnu- stjóri Manchester United, fréttamönnum að Wayne Rooney yrði ekki með vegna meiðsla og er óvíst hversu lengi hann verður frá. tomas@mbl.is Manchester-slagur í úrslitaleiknum? Gylfi Þór Sigurðsson KÖRFUBOLTI Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is „Við stefnum alltaf á toppinn en í haust vorum við svolítið hræddar því margir leikmenn voru í meiðslum og við vissum ekki hvenær þær kæmu til baka. Við stefndum því kannski aðallega á úrslitakeppnina en þegar tímabilið fór af stað sást að við erum með lið sem getur verið á toppnum. Það kemur kannski svolítið á óvart miðað við stöðuna rétt fyrir mót,“ seg- ir Hildur Sigurðardóttir, leikstjórnandi Snæfells í Dominos- deild kvenna í körfubolta, við Morgunblaðið, beðin að meta stöðu Hólmara þegar deildin er hálfnuð. Snæfell hefur komið ágætlega á óvart, eins og Hildur segir, miðað við meiðslavandræðin, og er á toppi deild- arinnar eftir 14 umferðir með 22 stig, tveimur stigum á undan Íslandsmeisturum Keflavíkur. Hildur, sem er reynsluboltinn í annars ungu liði Snæfells, stendur alltaf fyrir sínu enda verið einn besti leikmaður deildarinnar undanfarin ár. Hún er stoðsendingahæst í deildinni með 7,2 slíkar að meðaltali í leik en hún segir framlag frá öllum leikmönnum liðsins skila þeim árangri sem raun ber vitni. „Við fáum mjög fínt liðsframlag í öllum leikjum. Það skilar miklu fyrir okkur. Það eru margir leikmenn sem skila góðu framlagi yfirleitt í leikjum þannig að við þurfum aldrei að treysta á toppleik frá einum leikmanni,“ segir Hildur. Það sést t.d. á tölum bandaríska leikmannsins Chynnu Brown, sem er „aðeins“ efst í tveimur lykiltölfræðiþáttum þótt hún skori mest. Hildur gefur flestar stoð- sendingar og hin magnaða Hildur Björg Kjartansdóttir rífur niður flest fráköstin. Hildur er einstakur ungur leikmaður, sem aðeins 19 ára gömul skilar tvennu að meðaltali í leik. Þrjár búa í bænum Hildur ber Chynnu Brown söguna vel. „Hún passar mjög vel inn í þetta hjá okk- ur. Fyrst í haust var ég ekki alveg viss en núna held ég að þetta sé besti Kani sem ég hef spilað með.“ Ekki amaleg meðmæli frá jafnreyndum leikmanni og Hildi. „Hún er mjög þægileg og flottur persónuleiki, sem skiptir miklu máli,“ bætir Hildur við. Árangur Snæfellsliðsins er eftirtektarverður þar sem allt liðið æfir ekki saman meðan á tímabilinu stendur. „Það búa þrjár í bænum,“ segir Hildur en um er að ræða þær Berglindi Gunnarsdóttur, Hugrúnu Evu Valdimarsdóttur og Helgu Hjördísi Björg- vinsdóttur sem eru í skóla í Reykjavík og æfa með Fjölni. Þær keyra svo í leiki fyrir vest- an og hitta liðsfélaga sína þegar leikirnir eru í bænum. „Þetta er pínu merkilegt, sérstaklega í ljósi liðsframlagsins. Við erum með leikmenn frá Patreksfirði og Ísafirði sem fara svo heim fyrir jólin líka þannig að við náum kannski ekki einu sinni æfingu allar saman yfir hátíðarnar. Ég held við séum tvær á æfingu í kvöld,“ segir Hildur og hlær. Hélt hún væri orðin elst Hildur horfir spennt til seinni hluta leiktíðar á næsta ári og segir Snæfell vel geta haldið topp- sætinu. Frekar en að slaka á telur hún Hólmara geta bætt í þar sem liðið á leikmenn inni. „Við eigum að geta haldið okkar striki. Það eru leikmenn að koma til baka úr meiðslum. Við vorum nú bara átta í Keflavík um daginn,“ segir Hildur en hvað finnst henni einkenna deildina til þessa? „Það eru augljós kynslóðaskipti í boltanum. Ég var farin að halda ég væri orðin elst þegar ég hélt að Birna Valgarðs væri hætt um daginn. En það eru bara flottir ungir leikmenn að stíga upp og spila lyk- ilmínútur í öllum liðum. Ég held að boltinn sé alltaf að styrkjast, það má allavega sjá merki þess á árangri landsliðanna.“ Valur kemur af krafti Aðspurð hvort eitthvað komi á óvart í deildinni eins og hún hefur spilast til þessa segir Hildur: „Val var nátt- úrlega spáð efsta sæti en það hefur ekki alveg gengið sem skyldi hjá þeim. Ég hugsa samt að þær eigi eftir að rífa sig eitthvað upp og setja pressu á Hamar sem er kannski nokkuð óvænt í 4. sæti. Maður vissi ekki alveg hverjar yrðu í Hamarsliðinu en þær eru með ágætislið,“ segir Hildur en hvað er besta liðið sem hún hefur spilað á móti í deildinni til þessa? „Erfiðasti leikurinn var held ég á móti Keflavík. Keflvíkingar misstu Pálínu og kannski héldu menn að þetta færi að hrynja hjá þeim. Þeim var allavega spáð neðarlega. En það er bara nóg af góðum ungum stelpum þar þannig að Keflavík verður aldrei með neitt miðlungslið,“ segir Hildur Sigurðardóttir. Í fararbroddi Hildur Sigurð- ardóttir er einn reyndasti leik- maður deildarinnar. Hún hef- ur átt flestar stoðsendingar af öllum í vetur og er í hópi þeirra sem hafa skor- að mest og tekið flest fráköst. Toppliðið æfir ekki saman  Leikmennirnir ekki allir í Stykkishólmi  Fá framlag frá öllum  Hildur telur Snæfell geta bætt sig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.