Morgunblaðið - 28.01.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.01.2014, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Golli Danmörk Rúnar Alex Rúnarsson samdi við Nordsjælland sem varð danskur meistari 2012. Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður KR og 21-árs landsliðsins, varð í gær tíundi íslenski pilturinn fæddur 1995 sem gerist atvinnumaður í knatt- spyrnu. Hann skrifaði þá undir fjögurra ára samn- ing við danska félagið Nordsjælland og mun spila með U19 ára liði þess út þetta tímabil en koma að fullu inn í aðalliðshópinn í sumar. Þetta er orðinn langstærsti hópur íslenskra pilta af sama árgangi sem hefja atvinnumennsku svona ungir en þeir eru flestallir í U19 ára lands- liðinu sem er komið í milliriðil Evrópukeppninnar. Rúnar Alex hefur reyndar ekki komið við sögu þar vegna þess að hann er orðinn aðalmarkvörður 21- árs landsliðsins. Jafnaldrar Rúnars í atvinnumennskunni eru þeir Adam Örn Arnarson (Nijmegen), Daði Bergs- son (Nijmegen), Emil Ásmundsson (Brighton), Frederik Schram (OB), Gunnlaugur H. Birgisson (Club Brugge), Hjörtur Hermannsson (PSV Eindhoven), Kristján Flóki Finnbogason (FC Kö- benhavn), Oliver Sigurjónsson (AGF) og Orri Sig- urður Ómarsson (AGF). Þá hefur Samúel Kári Kjartansson, sem er ári yngri, fylgt þessum ár- gangi en hann er á mála hjá Reading. vs@mbl.is Rúnar tíundi úr árganginum  Samdi við Nordsjælland í Danmörku til fjögurra ára  Tíundi atvinnumaðurinn sem er fæddur 1995 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2014 ÍÞRÓTTIR Rússland Ragnar Sigurðsson er ánægður með stemninguna hjá leikmönnum og þjálfurum rúss- neska liðsins Krasnodar sem keypti hann af FC Köbenhavn. Góður tími til að taka þessu tilboði. 4 Íþróttir mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfuðhögg Stella Sigurðardóttir fékk högg í leik Íslands og Sviss 28. nóv- ember og var mætt á leik liðanna daginn eftir með lepp fyrir auga. HANDBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Óvíst er hvenær landsliðskonan Stella Sigurðardóttir, leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Sönder- jyskE, getur byrjað að æfa og spila í handbolta á nýjan leik en þungt högg sem hún fékk á gagnaugað í leik með íslenska landsliðinu gegn Sviss í lok nóvember hefur haldið henni frá æfingum og keppni. „Heilsa mín er ekkert allt of góð. Ég er eiginlega búin að vera rúm- liggjandi allan janúarmánuð. Ég var með í leiknum á móti Viborg í byrjun janúar þó svo að ég hafi fundið fyrir slappleika frá því eftir landsleikinn. Í leiknum við Viborg lenti ég í samstuði við liðsfélaga minn. Ég fékk högg á hökuna og ég versnaði mikið eftir það. Ég fékk eiginlega stanslausan höfuðverk og er búin að vera með hann síðan,“ sagði Stella við Morgunblaðið í gær. Beðið eftir niðurstöðu úr heilaskanna Spurð að því hvað læknar sem hafa skoðað hana segja sagði Stella: „Þeir segja að ég hafi fengið heila- hristing en hvort ég hef verið búin að fá hann fyrir þennan leik á móti Sviss er ekki ljóst. Mamma rifjaði það upp fyrir mér að ég hefði feng- ið högg á sama stað á gagnaugað í leik á móti Val í úrslitakeppninni fyrir tveimur til þremur árum. Ég rotaðist við þetta högg og læknar segja að maður sé lengur að ná sér fái maður fleiri högg og á sama stað. Ég var í eina viku með haus- verk eftir þetta högg en varð svo fín eftir það. Ég treysti mér ekki til að fara spila strax enda er ég nán- ast rúmföst með þennan höfuðverk og svo er augað ekki heldur komið í lag. Ég fór í heilaskanna í síðustu viku og ég bíð eftir að fá niðurstöðu úr því. Menn vilja ganga úr skugga um að það hvort eitthvað alvarlegra sé í gangi. Á meðan er ég bara í af- slöppun og er í veikindafríi frá vinnu,“ sagði Stella. Treysti sér ekki á landsleik Stella ætlaði að sjá leiki íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í Dan- mörku en treysti sér ekki til þess. „Ég var komin með miða á leik Íslands og Noregs en ég vildi ekki fara þar sem hávaðinn var mikill í höllinni og það hefði ekki farið vel í mig,“ sagði landsliðskonan við Morgunblaðið. Stanslaus höfuðverkur allan mánuðinn  Stella Sigurðardóttir fékk höfuðhögg gegn Sviss í lok nóvember  Annað högg í byrjun janúar og hefur verið að mestu rúmliggjandi frá þeim tíma Helena Sverr- isdóttir og stöll- ur hennar í ung- verska liðinu Miskolc unnu auðveldan sigur á PEAC-Pécs, 64:47, í mið- Evrópudeildinni í körfubolta kvenna í gær- kvöldi. Helena spilaði rétt tæpar 18 mín- útur og skoraði fimm stig. Hún hitti úr einu af fjórum skotum sínum í teignum og hvorugu þriggja stiga skoti sínu. Henni gekk þó öllu betur á víta- línunni en hún setti niður þrjú víti af fjórum. Þá tók hún sjö fráköst og gaf eina stoðsendingu. Miskolc er eftir leikinn í sjötta sæti deildarinnar með níu sigra og tíu töp. Pécs-liðið er í fjórða sæti með þrettán sigra og sex töp og því um að ræða góðan sigur hjá Helenu og hennar liði í gærkvöldi. sport@mbl.is Sterkur heimasigur hjá Helenu Helena Sverrisdóttir Wayne Rooney og Robin van Per- sie, sóknarmenn Manchester Unit- ed, voru báðir með á æfingu liðsins í gær og vonir standa til þess að þeir geti komið við sögu þegar United mætir Cardiff í ensku úr- valsdeildinni í kvöld. Rooney hefur verið frá keppni frá því um áramót vegna nára- meiðsla og Van Persie meiddist í læri í leik gegn Shaktar Donetsk í Meistaradeildinni í desember. David Moyes, knattspyrnustjóri United, fullyrti einnig á blaða- mannafundi í gær að Spánverjinn Juan Mata myndi þreyta frumraun sína fyrir Englandsmeistarana í leiknum gegn Cardiff, og hann var einnig með á æfingunni í dag. Manchester United er í 7. sæti úr- valsdeildarinnar með 37 stig, sex stigum frá fjórða sætinu sem gefur þátttökurétt í Meistaradeild Evr- ópu næsta vetur. sport@mbl.is Mata spilar fyrsta leikinn í kvöld 28. janúar 1912 Íþróttasamband Íslands er stofn- að þennan dag fyrir 102 árum í Bárubúð í Reykjavík. Á fundinn mæta 25 fulltrúar frá 7 íþrótta- félögum. Það voru Glímufélagið Ármann, Íþróttafélagið Kári, Knattspyrnufélagið Fram, Íþróttafélag Reykjavíkur (ÍR), Knattspyrnufélag Reykjavíkur (KR), Ungmennafélag Reykjavík- ur og Ungmennafélagið Iðunn. Að auki óskuðu fimm félög eftir því að gerast stofnfélagar, Sund- félagið Grettir í Reykjavík, Skautafélag Reykjavíkur og þrjú Akureyrarfélög, Íþróttafélagið Grettir, Glímufélagið Héðinn og Ungmennafélag Akureyrar. 28. janúar 2006 Björn Margeirsson setur Íslands- met í 800 m hlaupi innanhúss þegar hann hleypur á 1:51,07 mínútu á vígslumóti Laug- ardalshallar, og slær tæplega árs- gamalt met Gauta Jóhannessonar. Metið stendur ennþá. 28. janúar 2010 Ísland er komið í undanúrslit á EM karla í handbolta í Austurríki eftir nauman sigur á Norð- mönnum, 35:34. Íslenska liðið er þar með enn ósigrað í keppninni og endar í öðru sæti í milliriðli. Arnór Atlason fer á kostum og skorar 10 mörk í leiknum. Á ÞESSUM DEGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.