Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014 Ívar Benediktsson iben@mbl.is Ramune Pekarskyte, landsliðskona í handknattleik, hefur skrifað undir samning við franska efstudeildar- liðið Le Havre. Hún gengur til liðs við félagið í sumar eftir eins árs dvöl hjá SönderjyskE í Danmörku. „Ég er ekki lengur 21 árs og því skrifaði ég undir eins árs samning með möguleika á að bæta öðru ári við ef vel gengur,“ sagði Ramune glöð í bragði í samtali við Morgun- blaðið í gær þar sem hún var í óða önn að pakka niður föggum sínum og búslóð í Danmörku og búa undir flutning til Frakklands. „Mér líst mjög vel á að prófa eitt- hvað nýtt og geta einbeitt mér alveg að handboltanum, þurfa ekkert að vinna með,“ sagði Ramune. Ramune, sem er 33 ára gömul, lék þar áður um þriggja ára skeið með Levanger í Noregi en þar áður í sex ár með Haukum. Hún varð íslenskur ríkisborgarari fyrir tveimur árum og hefur síðan leikið með íslenska landsliðinu, alls 19 landsleiki. „Le Havre verður með gott lið á næsta ári. Stefnan hefur verið sett á að taka þátt í Evrópukeppninni svo það er spennandi keppnistímabil framundan í Frakklandi,“ segir Ramune, sem verður fyrsta íslenska handknattleikskonan til þess að leika í efstu deild í Frakklandi. Le Havre er með eitt sterkasta handknattleiksliðið í Frakklandi í kvennaflokki. Liðið hafnaði í fjórða sæti í deildinni í vor en féll naumlega úr leik fyrir meistaraliðinu Metz í undanúrslitum um franska meist- aratitilinn með minnsta mun. Le Havre mætir Fleury í brons- verðlaunin í úrslitakeppninni. Ramune er í íslenska landsliðinu sem hefur æfingar eftir næstu helgi til undirbúnings fyrir leikina við Finna og Slóvaka í undankeppni EM sem fara fram rétt fyrir og um miðj- an næsta mánuð. „Nú er ég að klára að pakka niður í Danmörku áður en ég kem heim til Íslands á sunnudaginn til æfinga fyrir landsleikina. Það verður gaman að koma heim og hitta stelpurnar,“ sagði Ramune Pekarskyte. Úrslita landsleikjanna, sem fram fara 11. júní ytra við Finna og í Laugardalshöllinni 15. júní við Sló- vaka, ráða því hvort íslenska lands- liðið tekur þátt í lokakeppni Evr- ópumeistaramótsins í desember. Morgunblaðið/Golli Flytur Stórskyttan Ramune Pekarskyte flytur til Frakklands í frá Dan- mörku í sumar. Hún leikur með Le Havre næsta árið hið minnsta. Ramune flytur frá Danmörku til Le Havre í Frakklandi  Spennandi að prófa eitthvað nýtt  Varð í fjórða sæti deildarinnar í vor HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Nú má segja að hnéið hafi sagt stopp. Ekki verður hjá því komist að gangast undir aðgerð til þess að lagfæra það,“ sagði Aron Rafn Eðvarðsson, lands- liðsmarkvörður í handknattleik, sem hefur neyðst til þess að draga sig út úr íslenska landsliðinu í handknattleik vegna meiðsla. Liðþófi í hné er bilað og þarfnast lagfæringar. Þar af leiðandi verður Aron Rafn ekki með íslenska landsliðinu í leikj- unum við Bosníu í undankeppni heimsmeistaramótsins 7. og 15. júní. „Það er hrikalega leiðinlegt að missa af þessum leikjum við Bosníu en ég veit að strákarnir eiga eftir að klára það verkefni með sóma þótt Bosn- íumenn séu svo sannarlega sýnd veiði en ekki gefin,“ sagði Aron Rafn. Liðþófinn sem um ræðir hefur gert Aroni Rafni grammt í geði síðan um áramótin og ekki batnað við mikið leikjaálag. Hann gekkst undir ítarlega skoðun hjá Brynjólfi Jónssyni bækl- unarlækni í vikunni og dómur hans féll í gær. Þar með dró Aron Rafn sig út úr landsliðshópnum. Aron Rafn fer í aðgerð á vegum lækna sænska liðsins Guif á þriðju- dagsmorgun. Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari valdi 29 leikmenn til æfinga fyrir við- ureignirnar þrjár sem framundan eru við Portúgal á sunnudag, mánudag og þriðjudag. Af þeim munu 26 leikmenn taka þátt í leikjunum því auk Arons Rafns koma Aron Pálmarsson og Guð- jón Valur Sigurðsson, leikmenn þýska meistaraliðsins Kiel, ekki til móts við landsliðið fyrr en eftir helgina þegar þeir hafa lokið keppnistímabilinu. Kiel tekur þátt í úrslitahelgi Meist- aradeildar Evrópu í Köln á laugardag og sunnudag. Valdi fjóra vegna óvissunnar Spurður hvort hann ætlaði að kalla inn fjórða markvörðinn í hópinn í stað Arons Rafns sagði Aron landsliðs- þjálfari í samtali við Morgunblaðið í gær það ekki standa til. „Þegar ég valdi hópinn vissi ég að það gæti orðið tvísýnt með Aron Rafn. Þar af leið- andi valdi ég fjóra markverði,“ sagði Aron. Markverðirnir þrír sem eftir standa eru Björgvin Páll Gústavsson, aðalmarkvörður landsiðsins und- anfarin ár, Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, og Sveinbjörn Pét- ursson, markvörður þýska 2. deildar liðsins EHV Aue. „Sveinbjörn er í fínu standi eftir að hafa leikið mikið með EHV Aue í vetur. Hann og Daní- el verða til taks með Björgvini,“ sagði landsliðsþjálfarinn. Hreiðar Levý einnig meiddur Aron Rafn er ekki eini íslenski handknattleiksmarkvörðurin sem á í meiðslum í hnjám um þessar mundir. Hreiðar Levý Guðmundsson, sem lengi var annar markvörður íslenska landsliðsins, hefur einnig glímt við liðþófameiðsli allt keppnistímabilið sem er nýlokið. „Hreiðar er ekki kostur fyrir okkur þótt við vildum vegna meiðsla,“ sagði Aron landsliðsþjálfari. Hreiðar Levý hefur undanfarin þrjú ár leikið með Nötteröy í norsku úrvalsdeildinni. Samningur hans við félagið er að renna út. Óvíst er hvað tekur við hjá Hreiðari, hvort hann rær á önnur mið eða verður um kyrrt í Noregi en hann átti stærsta þátt í að Nötteröy hélt sæti sínu í norsku úr- valsdeildinni í vor. Hreiðar átti stór- leik í síðari umspilsleik liðsins um sæti í úrvalsdeildinni. Uppi hefur verið orðrómur um að forráðamenn Akureyrar handbolta- félags renni hýru auga til Hreiðars en ekkert hefur fengist staðfest í þeim efnum. Landsliðið hefur forgang „Ég einbeiti mér þessa stundina að íslenska landsliðinu enda nóg um að vera á næstunni,“ sagði Aron Krist- jánsson landsliðsþjálfari, spurður hvort hann hafi tekið ákvörðun um hvort hann þjálfi áfram KIF Kolding Köbenhavn eins og hann hefur gert síðan í byrjun febrúar. Undir stjórn Arons varð liðið bæði danskur meist- ari og bikarmeistari í vor. For- ráðamenn KIF Kolding Köbenhavn vilja ólmir halda Aroni. Félagið hefur gert Aroni tilboð um að þjálfa liðið áfram samhliða þjálfun íslenska landsliðsins. „Ég geri upp hug minn eftir törnina með landsliðinu eftir miðjan júní,“ sagði Aron Kristjánsson og hélt spilunum þétt að sér. Aron Rafn er úr leik  Meiðsli setja strik í reikninginn hjá einum markverði landsliðsins  Tekur ekki þátt í leikjunum mikilvægu við Bosníu í undankeppni HM 7. og 15. júní Morgunblaðið/Eva Björk Forföll Aron Rafn Eðvarðsson á góðri stundu með Björgvini Páli Gústavssyni og fleiri samherjum í íslenska lands- liðinu. Hann verður fjarri góðu gamni í leikjunum við Bosníu þar sem landsliðið spilar um að komast á HM í Katar. Fólk skiptist í tvær fylk- ingar fyrir um ári þegar Fjöln- ismaðurinn Aron Jóhannsson frá Grafarvogi í Reykjavík ákvað að nýta sér það að vera fæddur í Bandaríkjunum og gefa kost á sér í bandaríska landsliðið í knattspyrnu. Margir Íslendingar skildu ákvörðun hans vel, því það væru meiri möguleikar fyrir Ar- on að komast fyrstur Íslend- inga í lokakeppni heimsmeist- aramótsins í knattspyrnu með landsliði Bandaríkjanna en Ís- landi. Aðrir hristu höfuðið og töldu Aron vera að svíkja land sitt og þjóð. Ég var einn þeirra sem hefðu frekar viljað sjá Aron velja íslenska landsliðið frekar en það bandaríska, þó ég gengi aldrei svo langt að ásaka piltinn um nein svik. Enda er það fulllangt gengið. Hins veg- ar getur maður ekki verið ann- að en spenntur fyrir hans hönd nú þegar HM í Brasilíu er handan við hornið. Aron skoraði fallegt mark með skalla í vináttulandsleik Bandaríkjanna og Aserbaídsjan í fyrrakvöld. Eftir að hafa horft á markið aftur og aftur fylltist ég sífellt meira stolti. Aron er og verður Íslendingur þó hann leiki fyrir bandaríska lands- liðið. Það er ríkt í okkur Íslend- ingum að fylgjast spennt með gengi félagsliða í enska bolt- anum eða stórliða í Evrópu sem innihalda íslenska leik- menn. Fyrir mig verður það eins með HM í sumar. Ég mun fylgjast enn frekar með Banda- ríkjunum og halda sérstaklega með Aroni. Það er ekki hægt annað en að halda með eina Íslendingnum sem spilar á HM í Brasilíu. BAKVÖRÐUR Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is Líkur er á að Jón Heiðar Gunn- arsson, línumað- urinn sterki hjá ÍR, yfirgefi liðið á næstunni og gangi til liðs við FH. Þetta hefur Morgunblaðið samkvæmt heim- ildum. Sömu heimildir herma að viðræður hafi átt sér stað á milli Jóns Heiðars og FH-inga upp á síð- kastið sem enn hafa ekki leitt til niðurstöðu á annan hvorn veginn. Jón Heiðar þekkir til í Kaplakrika eftir að hafa leikið með FH leiktíð- ina 2009-2010. Guðni eltir Bjarka Los virðist vera á leikmannahópi ÍR. Í gær ákvað Guðni Már Krist- insson, leikstjórnandi liðsins, að ganga til liðs við HK og elta fyrr- verandi þjálfara ÍR-liðsins, Bjarka Sigurðsson og Guðmund Helga Pálsson, aðstoðarmann Bjarka. Þá er uppi orðrómur þess efnis að markvörðurinn Kristófer Fann- ar Guðmundsson hafi hugsað sér til hreyfings sem og varnarmaðurinn sterki, Ingimundur Ingimundarson og Akureyringar hafi gjóað til hans augunum. Hvorugt hefur þó verið staðfest. iben@mbl.is Jón Heiðar horfir til Hafnarfjarðar Jón Heiðar Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.