Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.07.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2014 Skemmtisigling og jólainnkaup í Orlando www.norræna.is sími 570 8600Lækaðu og deildu okkur á facebook ogþú getur unnið „út að borða“ fyrir 2 umborð í skemmtiferðaskipinu STAR Karabískahafið og Orlando 14. -25. nóvember verð frá kr. 299.000 Sláðu tvær flugur í einu höggi! Frábær skemmtisigling frá Tampa til Hondúras, Belize, Costa Maya og Cozumel í Mexíkó. Fjórar nætur á Florida Mall hótelinu. Tilvalið að gera jólainnkaupin í Orlando. Við höfum bætt við sætum í þessa ferð. Barcelona og Miðjarðarhafið 29. ágúst Uppselt Feneyjar og Barcelona 13. sept. 2 sæti laus vegna forfalla Panama og Los Angeles 31. október Uppselt Cruise Line var valið besta skipafélag í Evrópu síðustu sex ár og það besta í Karabískahafinu árið 2013 Malín Brand malin@mbl.is Þeir Gestur Einar Jónassonog Aðalsteinn Bergdalhafa unnið saman í ófáskipti á ævinni. Þeir eru báðir atvinnuleikarar að norðan og hafa leikið saman hér og þar. Hvor- ugan þeirra hefði þó órað fyrir því fyrir einhverjum árum eða áratug- um að þeir ættu eftir að vinna sam- an í flugsafni. Sú er einmitt raunin í sumar og hafa þeir báðir ein- staklega gaman af samstarfinu á safninu. Heilsusamlegt að vera á safni Gestur Einar hefur óbilandi flugáhuga og byrjaði að vinna á Flugsafninu árið 2008 og hefur unn- ið þar svo gott sem alla tíð síðan og verið eini starfsmaður safnsins. Það var ekki fyrr en í sumar sem Aðal- steinn kom til sögunnar en aðdrag- andinn er þessi: Árið 2011 lenti Aðalsteinn í mjög alvarlegu slysi þegar ekið var á hann í Lækjargötu í Reykjavík. Það þykir mesta mildi að hann skyldi í fyrsta lagi lifa þetta af og í öðru lagi að hann skyldi ná sér eins vel eftir slysið og raun ber vitni. Hann hefur verið í stöðugri end- urhæfingu og til stóð að í sumar héldi endurhæfingin áfram. Í raun og veru má segja að endurhæfingin hafi alla vega tekið á sig aðra mynd. „Það þarf alltaf að útvega starfsfólk á safnið yfir sumartím- ann,“ útskýrir Gestur Einar sem stakk upp á því að félagi hans tæki starfið að sér og tók Aðalsteinn vel í hugmyndina. „Ég hefði ekki getað fengið betri mann en Alla,“ segir Tveir leikarar á Flugsafni Íslands Flugsafn Íslands á Akureyri er merkilegt fyrir margra hluta sakir. Þar eru ein- stakar flugvélar sem flestar hafa mikið gildi fyrir flugsögu Íslands. Þar er til dæm- is stjórnklefi Gullfaxa, fyrstu þotu Íslendinga, björgunarþyrlan TF-SIF, TF-SYN Fokker F-27 frá Landhelgisgæslunni og svo mætti lengi telja. Starfsmennirnir tveir á safninu eru líka einstakir en þeir eru æskuvinir og báðir atvinnuleikarar. Ljósmynd/Hörður Geirsson Flugkennsla Trúðurinn Skralli, leikinn af Aðalsteini Bergdal, tók annan flugtíma sinn á dögunum undir handleiðslu Arngríms B. Jóhannssonar. Morgunblaðið/Malín Brand Einstakt Flugsafn Íslands á Akureyri er einstakt og varðveitir flugsögu landsins í myndum, munum og sögum. Sögufrægar vélar eru þar margar. Viðey er perla sem allir ættu að heim- sækja oftar, þangað er skemmtilegt að sigla fyrir fólk á öllum aldri, þar er hægt að ganga um og njóta náttúru- fegurðar, fuglalífs og fjörunnar. Þar er veitingahús sem notalegt er að setjast inn á og fá sér í gogginn. Upp- lagt er að skreppa út í Viðey með er- lenda vini og á morgun er lag, því þá verður boðið upp á fræðslugöngu um Viðey fyrir enskumælandi gesti. Snorri Sigurðsson, doktor í líffræði, leiðir gönguna sem hefst kl. 12:30. Snorri gefur innsýn í líffræðilega fjöl- breytni Viðeyjar, vistfræði lífríkisins, sögu þess og mikilvægi. Leiðsögnin er gjaldfrjáls en greiða þarf ferjutoll. Ferjan siglir frá Skarfabakka á Sundahöfn á klukkustundar fresti frá 10:15 til 17:15 alla daga. Einnig siglir hún frá gömlu höfninni við Ægisgarð í Reykjavík kl. 11:30 og frá Hörpu kl. 12. Vefsíðan www.videy.com Morgunblaðið/ÞÖK Sigling Það er gaman að sigla yfir hafið út í Viðey og skoða litlu eyjuna. Sýnið erlendum gestum Viðey Hvernig væri að fá kynningu á menn- ingarlífi miðbæjarins, kíkja á stytt- urnar, leikhúsin og njóta að því loknu sirkuslista? Í kvöld kl. 20 gefst fólki kostur á því að kynnast miðbæ Reykjavíkur undir leiðsögn á sex tungumálum; íslensku, ensku, pólsku, víetnömsku, arabísku og frönsku. Lagt er upp frá aðalsafni Borg- arbókasafnsins í Tryggvagötu. Tilvalið fyrir íbúa af erlendum uppruna og aðra nýja íbúa sem og fyrir ferða- menn. Hressing í lokin í aðalsafni þar sem Sirkus Íslands skemmtir. Fim- leikadúett leikur listir sínar og býður þeim sem þora að vera með. Gaman! Endilega … … takið þátt í fimleikadúett Morgunblaðið/Ernir Sirkus Íslands Mjög skemmtilegur. Nóatún Gildir 4.-6. júlí verð nú áður mælie. verð Lambafile m/fiturönd úr kjötborði ..................... 3.998 4.798 3.998 kr. kg Lambafile kryddað að vali úr kjötb. ................... 3.998 4.798 3.998 kr. kg Nautafile spjót m/grænmeti úr kjötb. ................ 998 1.298 998 kr. kg Laxaflök beinhreinsuð úr fiskborði..................... 2.198 2.598 2.198 kr. kg Laxaflök krydduð úr fiskborði ............................ 2.198 2.598 2.198 kr. kg Ísl M-kjúklingabringur ...................................... 2.198 2.469 2.198 kr. kg Krónan Gildir 3.-6. júlí verð nú áður mælie. verð Lúxus grísakótilettur New York........................... 1.298 2.198 1.298 kr. kg Grísahnakki á spjóti hvítl. & rós. ....................... 1.398 1.698 1.398 kr. kg Lambafile New York-marinerað ......................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg Lambalundir ................................................... 4.498 4.998 4.498 kr. kg Ungnauta entrecote erlent ............................... 3.398 4.598 3.398 kr. kg Lambalæri kryddað ......................................... 1.398 1.598 1.398 kr. kg Kjarval Gildir 3.-6. júlí verð nú áður mælie. verð Goða hamborgarar 6 x 120 g ........................... 1.258 1.398 1.258 kr. pk. SS Grískar lambatvírifjur .................................. 2.968 3.298 2.968 kr. kg SS Caj P’s lærissneiðar.................................... 3.328 3.698 3.328 kr. kg Helgartilboðin Morgunblaðið/Ásdís Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.