Harmonikublaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 4

Harmonikublaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 4
Fróðleikur HARMONIKUBLAÐiÐ Ómur frá æskunnar dögum Hákon (ónsson. Hákon jónsson á Húsavík þekkja margir harmonikuunnendur enda búinn að leika á harmoniku til fjölda ára. Þeir sem komið hafa á Breiðamýrarmótin hafa séð þennan aldna heiðursmann leika þar fyrir dansi ásamt félögum sínum. Á millistríðsárunum nam hann orgel- leik hjá dr. Páli ísólfssyni. Hann hefur um áraraðir tekið þátt í tónlistarlífi í Suður Þingeyjarsýsiu og er einn af stofnendum Harmonikufélags Þingeyinga 1978. Hann hefur m.a. leikið í hinu víðfræga „Stráka- bandi". Hákon hefur nú nýverið ritað endur- minningar sínar. Þann 20. október síðastliðinn kom út hjá forlaginu Publishlslandica bókin: „Brotinn ernú bærinn minn", endurminning- ar Hákonar Jónssonar frá Brettingsstöð- um í Laxárdal. í þessum endurminning- um segir Hákon frá fyrstu æviárum sínum í Víðum í Reykjadal. Frá heimils- og venslafólki þar og nágrönnum. Hann lýsir tuttugu ára búsetu á Brett- ingsstöðum í Laxárdal og inn í þá frásögn fléttar hann lýsingu á staðháttum og bú- skaparlagi. Einnig segir hann frá mörgu samferðafólki sínu, í sveitasamféiagi tutt- ugustu aldar, og frá minnisstæðum atburðum. Þá segir hann frá dvöl sinni í Reykjavík, á millistríðsárunum, þar sem hann nam orgelleik hjá dr. Páli ísólfssyni. Hann lýsir búskaparárum sínum á Tjörnesi og ýmsu þeim tengdum. Einnig segir hann frá búsetu, störfum og fólki á Húsavík og í Reykjadal. Síðast, en ekki síst, segir hann frá tón- listarlífi í heimahögum á fyrri helmingi tuttugustu aldar. Einnig frá áratuga langri þátttöku sinni í tónlistarlífi Suður-Þing- eyinga, nú síðast með harmoníkufélaginu þar. Hákon þekkja margir harmonikuunn- endur, enda einn af stofnendum Harm- onikufélags Þingeyinga árið 1978 og virk- F.v.Kári Árnason, (óel Friðbjarnarson og Hákon. Strákabandið á dansleik á Tjörnesi. F.v. á harmonikur: Hákon, Rúnar Hannesson, ]óel Frið- bjarnarson, Kári Árnason, Kristján Kárason og Kjartan (óhannesson. F.v. á bassa: Grímur Vil- hjálmsson, gítar Benedikt Helgason og trommur Bragi Ingólfsson. DflP ur félagi allar götur síðan. Hann hefur sótt landsmót og farið í utanlandsferðir ásamt félögum sínum í harmonikufélög- unum vítt um landið. Hann tekur ennþá virkan þátt í störfum félagsins, nú orðinn hálf níræður. Hákon er fæddur í Víðum í Reykjadal 6. ágúst 1918. Foreldrar hans voru hjónin Jón Sigurgeirsson, búfræðingur og bóndi þar og kona hans Guðrún Erlendsdóttir. Árið 1925 flutti hann með foreldrum að Brettingsstöðum í Laxárdal og þar bjó hann til ársins 1945. Hann flutti þá ásamt foreldrum, Sigrúnu Hólmgeirsdóttur, eig- inkonu sinni, og |óni, syni þeirra, íTungu- gerði á Tjörnesi. Hákon var bóndi í Tungugerði til 1958, en flutti þá með fjöl- skyldu sína til Húsavíkur. Á Húsavík

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.