Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 29. desember 2011
SIGURVEGARARNIR í spurningakeppni GRV ásamt umsjónarkennara. Arnar Sveinn,
Hafþór, Þórður, Valur, Aron Máni og Lóa.
ÞEIR eru nú ansi flottir drengirnir í 10. bekk. Hallgrímur, Kiddi, Sigurður Grétar, Biggi,
Sigurður Þór, Guðmundur Aron, Valli og Aron.
S
Grunnskóli Vestmannaeyja - Arshátíð áttunda, níundu og tíundu bekkja:
Hæfileikaríkir krakkar komu fram
Nemendur á unglingastigi GRV
héldu árshátíð sína í Höllinni að
kvöldi 24. nóvember sl. Á árshátíð
sjá nemendur úr 10. bekk ávallt um
að skipuleggja dagskrána og
skreyta salinn sem var mjög flottur
í ár, þemað var James Bond.
Krakkarnir mættu í sínu fínasta
pússi, með bros á vör og skemmtu
sér vel.
Einsi kaldi sá um matinn sem
rann ljúflega niður. Skemmtiatriðin
tóku drjúgan hluta kvöldsins og
greinilegt er að mjög margir hæfi-
leikaríkir krakkar eru þarna á ferð.
Kynnar kvöldsins voru þau íris
Eir Jónsdóttir og Jóhann Helgi
Gíslason og var ekki annað að sjá
en þama væru þáttastjórnendur
framtíðarinnar á ferðinni. Þau
opnuðu kvöldið á myndbandi þar
sem þau sjálf vom í skólanum á
leið á árshátíð. Að komu óprúttnir
aðilar sem slógu Jóhann Helga í rot
og rændu írisi. Jóhann Helgi kom
henni svo til bjargar og lögreglan
skutlaði þeim upp í Höll þar sem
þau voru í þann mund að missa af
árshátíðinni.
Tveir hópar höfðu gert stuttmynd-
ir sem voru sýndar við mikinn
fögnuð viðstaddra. Hópur nemenda
sýndi svo leikrit sem þeir eru búnir
að vera að undirbúa í vetur undir
stjóm Zindra Freys Ragnarssonar.
Spurningakeppnin var á sínum stað
og sigurvegararnir að þessu sinni
eru I0.ÓS sem hampa bikamum
annað árið í röð.
Nokkrar hljómsveitir spiluðu lög,
og ekki má gleyma viðurkenning-
um sem veittar eru á ári hverju fyrir
hina ýmsu hluti. í ár var kosinn
herra Bond og þá viðurkenningu
hlaut Hörður Bjamason en ungfrú
Bond var kosin Bima J. B. Einars-
dóttir. Aðrir titlar vom t.d. svefn-
purrka GRV, krútt skólans, gelgja
skólans og bjartasta vonin.
Þrátt fyrir langa dagskrá sátu
krakkamir stilltir og prúðir og
fylgdust af áhuga með hverju
atriðinu á fætur öðm. Kvöldið
endaði svo á dansleik þar sem
Kristmundur Axel og Proxy Figura
spiluðu og sungu og algjörlega
trylltu lýðinn.
Fyrir árshátíðina fóru nemendur í
fyrirtæki í bænum til að leita eftir
verðlaunum til að veita á árshátíð-
inni. Mjög vel var tekið á móti
krökkunum og langar þau hér með
að þakka þeim sem styrktu þau
með verðlaunum og gjöfum í happ-
drætti. Fyrirtækin em: Axel Ó, 66°
norður, Eyjavík, Volcano, Ey-
mundsson, Volare, Vömval, Litla
skvísubúðin, Steinunn Snyrtir,
Heildsalinn, Viktor rakari, Karl
Kristmanns umboðs og heildversl-
un, Geisli, Tvisturinn, Kráin og
Heildverslun H. Sigurmundssonar.
Elísa Kristmanns
ÞESSIR flottu strákar eru í 9. bekk. Doddi, Tindur og Júiíus.
Bondgellurnar í ár eru úr 9. bekk og heita Svanhildur, Valbjörg og
Guðný Charlotta.
ÞETTA er einungis lítill hluti föngulegra stúlkna í 10. bekk. Guðrún
Bára, Aníta Björk, Eydís, Tanja, Fanndís og Sísí.
FÖNGULEGUR hópur stúlkna úr 8. bekk. Gígja, Jóhanna, Kristín,
Birgitta, Berglind, Sigríður og Margrét Björk.
Sannar Jólaperlur
Það var húsfyllir á Jólaperlum,
árlegum tónleikum til styrktar
Æskulýðsfélagi Landakirkju í
Safnaðarheimilinu fyrir jól.
Þar komu fram ungir og reyndir
söngvarar og allir stóðu sig vel.
Birkir Högnason hefur frumkvæði
að þessum tónleikum. Hefur hann
fengið reynslubolta úr Leikfélag-
inu með sér í þetta verkefni auk
ungra söngvara sem þama eru að
stíga sín fyrstu spor á tónlistar-
brautinni.
Leikhúsbandið, Jólatríóið sem í
em Sólveig Unnur, Birkir og
Vilborg. Auk þeirra má nefna Unu
Þorvaldsdóttur, Rakel Hlynsdóttur
og Berglindi Sigmarsdóttur. Líka
komu fram Sísí Ástþórsdóttir og
Elín Sólborg Eyjólfsdóttir, Svan-
hildur Eiríksdóttir og Sigríður Þóra
Ingadóttir sem sungu dúett og
kammerkór
Aðgangseyrir rann óskiptur til
Æskulýðsfélagsins og gáfu allir
tónlistarmenn og söngvarar vinnu
sína að vanda.