Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 29. deseember 2011 13 fl ÓLAFUR, SPARISJÓÐSSTJÓRI OG RUT ásamt fulltrúum styrkþega. F.v. Ólafur, Marinó, Sigurgeir, Birgir Nielsen, Kári, Erpur Snær, Eggert, Júlíus Ingason, Helga, Arnór, Ómar Garðarsson, Gísli Valtýsson og Rut. Styrktar- og menningarsjóður Sparisjóðs Vestmannaeyja - Fyrst úthlutað 1988: Mandal, bók með verkum Árna á Grund, Stórsveitin og Fréttir fengu styrki í ár Á Þorláksmessu var úthlutað úr Styrktar- og menningarsjóði Spari- sjóðs Vestmannaeyja. Fjögur verkefni hlutu styrk að þessu sinni, Þjóðlagasveitin Mandal, ritnefnd vegna útgáfu bókar með ritverka- og Ijóðasafni Áma Ámasonar yngri frá Grund, Þytur, félag um eflingu tónlistar á landsbyggðinni og Héraðsfréttablaðið Fréttir. Það kom fram í ávarpi Ólafs Elís- sonar, sparisjóðsstjóra að þetta er í tuttugasta og fjórða skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum, en fyrsta úthlutunin var á Þorláksmessu árið 1988. Er hefð að afhenda styrkina á Þorláksmessu. Ólafur afhenti styrk- ina ásamt Rut Haraldsdóttur sem á sæti í stjóm Sparisjóðsins. Semja og útsetja lög við sálma Jóns Þorsteinssonar Þjóðlagasveitin Mandal fékk styrk til útgáfu á jóla- og nýárssálmum eftir séra Jón Þorsteinsson í Kirkjubæ í Vestmannaeyjum. Um hana segir: -Þjóðlagasveitin Mandal hefur starfað saman í fjögur ár. Tilurð samstarfsins var það verkefni frá „Sögusetrinu 1627“ að semja og útsetja lög við sálma séra Jóns Þorsteinssonar píslavotts í Kirkjubæ í Vest- mannaeyjum. Séra Jón var stórkost- legt ljóða- og sálmaskáld og er um að ræða mikinn og dýrmætan menningararf Vestmannaeyinga. Vegna fjölda sálma var ákveðið að halda sig að mestu við jóla- og nýárssálma. Hugur sveitarinnar hefur alltaf staðið til að afrakstur- inn yrði geftnn út á disk og þar hefur Mandal lagt sitt af mörkum til að gera þennan arf okkar að- gengilegri fyrir alla. Utgáfutónleikar vora haldnir þann 10. desember sl. Þjóðlagasveitina Mandal skipa Amór Hermannsson, Helga Jónsdóttir, Bára Grímsdóttir og Chris Foster. Bók með ritverka- og ljóðasfni Árna á Grund Ritnefnd vegna útgáfu bókar með ritverka- og ljóðasafni Áma Áma- sonar yngri frá Grand um fugla- veiðar og úteyjalíf Vestmannaeyja fram til 1960 fékk styrk. Um þetta merka framtak segir: -Þann 13. október 2012 er hálf öld frá andláti Áma símritara og er þá fyrirhugað að gefa út bók með ritverka- og ljóðasafni hans. Ámi safnaði ómetanlegum heimildum um fólk, mannlíf, sögu og menn- ingu Eyjanna auk þess sem hann var skáldmæltur vel. Þessa á meðal er háfaveiðimannatal Vestmanna- eyja frá upphafi til um 1950 með stuttum æviágripum á annað hundrað manna sem eru nú flestir látnir. Einnig er að ftnna samantekt um hrapaða í björgum Vestmanna- eyja frá 1800. Áuk þessa er um að ræða fjölbreytt safn styttri ritgerða sem flestar fjalla um úteyjalíf og fuglaveiðar, skreytt með fjölmörg- um ljóðum Árna. Gert er ráð fyrir að bókin verði á þriðja hundrað síður í meðalstóra bandi. Von ritnefndar er að bókina megi prýða tiltækum ljósmyndum af veiðimönnum í samvinnu við ættingja. Sjálfskipuð ritnefnd, eins og þeir segja sjálftr, hefur ýtt verkinu af stað og skipa hana dr. Erpur S. Hansen, Kári Bjamason, Marinó Sigursteinsson og Sigurgeir Jóns- son. Endurgera plötu Óla Gauks með Oddgeirs- lögunum Þytur, félag um eflingu tónlistar á landsbyggðinni fékk styrk. Um hann segir: -Big Band Vest- mannaeyja samanstendur af kenn- uram og nemendum Tónlistarskóla Vestmannaeyja auk nokkurra sem eru ekki innan Tónlistarskólans. Hljómsveitin hefur starfað frá upphafi ársins 2009. Aðstöðu til æfinga lætur Tónlistarskólinn af hendi en nótnakaup og önnur út- gjöld hafa verið á hendi félaganna og velunnara. Félagið ætlar að endurgera eina af vinsælustu plötum íslandssögunnar, plötu Sextetts Óla Gauks sem á era eingöngu lög Oddgeirs Kristjáns- sonar. Lögin verða útsett í Big Band stfl. Þannig yrði til safn af þessum frá- bæru Eyjalögum í nýjum búningi auk þess sem útsetningamar henta fyrir lengra komna nemendur tón- listarskólanna. Hljómsveitin hefur komið fram tvisvar við góðar undirtektir og flutt þau lög sem þegar er búið að útsetja eða níu lög. Því er sá hluti verkefnisins rúmlega hálfnaður. Stefnan var að ljúka þessu verk- efni fyrir aldarafmæli Oddgeirs en það tókst því miður ekki. Nú sér fyrir endann á verkefninu. Þegar hafa verið útsett níu lög, alls hafa fimm útsetjarar komið að því verki, þar á meðal Óli Gaukur sjálfur, sem náði að útsetja eitt laganna áður en hann lést. 30 þúsund síður á Netið Héraðsfréttablaðið Fréttir fékk fjórða styrkinn. Um styrkveitinguna segir: -Blaðið Fréttir hefur komið út í Vestmannaeyjum óslitið frá árinu 1974. Útgáfa héraðsfréttablaða er ómetanleg heimild og samtíma- spegill fyrir þann stað eða svæði sem blaðið þjónar. Nú hefur verið ákveðið að skanna alla útgáfuna frá upphafi til þessa dags, samtals ná- lægt 30 þúsund blaðsíður eða um 2000 tölublöð. Blaðið verður þannig sett á tölvu- tækt form og verður m.a. aðgengi- legt öllum á veraldarvefnum á „heimaslod.is" og „eyjafrettir.is". Stefnt er að opnun verksins á 40 ára útgáfuafmæli blaðsins sem er á árinu 2014. Verkið verður unnið á Bókasafni Vestmannaeyja undir verkefnastjóm forstöðumanns safnsins. Styrktar- og menningarsjóðurinn var stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Samstarfssamn- ingur GV og Sparisjóðsins Við sama tækifæri undirritaði Sparisjóður Vestmannaeyja samstarfssamning við Golfklúbb Vestmannaeyja til þriggja ára. Kom fram að Sparisjóðurinn og Golfklúbburinn hafa átt í farsælu samstarfi um mörg undanfarin ár og eru þessir samningar staðfesting á áframhaldandi samstarfi. „Golfklúbburinn er einn af burðarásum íþrótta- og æskulýðsstarfs í Vestmannaeyjum. Sparisjóðurinn metur það að verðleikum og er samningurinn sem undirritaður er núna áþreifanlegur vitnisburður um aðkomu Sparisjóðsins að íþrótta- og æskulýðsstarfi félagsins,“ segir frétt frá Spavey og GV. SAMNINGUR undirritaður Haraldur Óskarsson, Helgi Bragason formaður GV, Rut og Ólafur. jHvjjl | ■ f # H'IMl" i m ,/V» wi

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.