Fréttablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 74
1. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 54 SUND Eygló Ósk Gústafsdóttir er fyrst Íslendinga búin að tryggja sér þátttöku- rétt á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016 en það gerði hún er hún setti nýtt Norður- landamet í 200 m baksundi á Opna danska meistaramótinu í sundi í fyrradag. Hún synti þá á 2:09,86 mínútum og bætti þar með Íslandsmet sitt í greininni um tæpa hálfa sekúndu en lágmark Alþjóðasund- sambandsins, FINA, inn á leikana í Ríó er 2:10,60 mínútur. Norðurlandametið, sem var sex ára gamalt og í eigu Pernille Lar- sen frá Danmörku, bætti hún um 0,41 sek- úndu. „Ég er himinlifandi með að hafa náð þessu, alveg í skýjunum,“ sagði Eygló við Fréttablaðið í gær en hún var þá nýbúin að synda sig inn í úrslit í 50 m baksundi á lokadegi mótsins. Eygló virðist í afar góðu formi um þess- ar mundir og stefnir á að bæta sig enn meira á Íslandsmeistaramótinu [ÍM] í 50 m laug sem fer fram í Laugardalslauginni 10.-12. apríl. „Ég gef venjuleg allt sem ég á í ÍM, þó svo að það sé minni samkeppni en hér úti, en ég er mjög spennt fyrir því að sjá hvernig mér gengur,“ segir Eygló . Léttir að vera búin Eygló keppti á Ólympíuleikunum í Lond- on árið 2012, þá aðeins sautján ára gömul. Hún hafnaði þá í 20. sæti í 200 m baksundi og miðað við að hún er enn að bæta sig í greininni er ljóst að hún er líkleg til afreka í Ríó. „Það er vissulega léttir að vera búin að ná lágmarkinu og nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því næsta eina og hálfa árið. ÍM árið 2012 snerist eingöngu um að ná lágmarki fyrir London og það var mikil pressa á mér þá. Nú get ég fremur einbeitt mér að tækninni og öðrum þáttum,“ segir hún. „En auðvitað stefni ég mun hærra en að ná bara lágmarkinu.“ Hugurinn getur gert margt gott Hún segist hafa breytt aðeins til í æfingum fyrir þetta keppnistímabil og sinnt æfing- um „á þurru landi“ betur samhliða æfing- um í lauginni. „Ég hef lyft meira og gert ýmislegt á þurru landi sem hjálpar mikið til. Þá er ég reynslumeiri líka sem hjálpar til, enda getur hugurinn gert margt gott en líka margt slæmt,“ segir hún. „En heilt yfir líður mér mjög vel og ég hlakka til að koma heim og æfa.“ HM í 50 m laug fer fram í Kazan í Rúss- landi í sumar og þar verður Eygló Ósk á meðal keppanda og stefnir hún hátt. Sem stendur er Eygló með fimmta besta árang- ur heimsins í 200 m baksundi og þann næstbesta í Evrópu. Eygló endaði síðasta ár af krafti er hún vann allar sex einstaklingsgreinar sínar á ÍM í 25 m laug og bætti hún als níu Íslands- met á árinu. Nýja árið byrjar vel og og átti hún von á því að ná svo góðum árangri svo snemma á tímabilinu. „Ég er aðeins á undan áætlun og það boðar bara gott. Ég býst svo við að bæta mig enn meira í sumar og ég vona innilega að ég geri það. Þetta lítur vel út.“ eirikur@frettabladid.is Vil meira en að ná bara lágmarkinu Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi bætti Norðurlandametið í 200 m baksundi á Opna danska meistaramótinu í sundi í fyr- radag. Með því tryggði hún sér bæði þátttökurétt á HM í Kazan í Rússlandi sumar og í Ólympíuleikunum í Ríó í Brasilíu á næsta ári. RÚSSLAND OG RÍÓ Eygló er komin með lágmörk á næsta HM sem og næstu Ólympíuleika. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI „Heilsan hefur oft verið betri,“ segir fyrirliði ÍBV, Magnús Stefánsson, en lukkan hefur ekki beint leikið við hann í vetur. Hann fékk heilahristing fyrr í vetur og svo lenti hann líka í árekstri í Vestmannaeyjum og hefur vart verið góður síðan. Óttast er að Magnús sé kviðslit- inn en hann ætti að fá það staðfest í dag. Fari svo þá er tímabilið hjá honum fokið út um gluggann og hann missir af úrslitakeppninni. „Ég er talsvert kvalinn og á erf- itt með gang. Þeir segja að ein- kenni bendi til þess að ég sé kvið- slitinn,“ segir Magnús en hann yrði þá annar leikmaður ÍBV sem kviðslitnar í vetur. Sindri Haralds- son er einnig kviðslitinn. „Þetta var nokkuð harkalegt bíl- slys sem ég lenti í og einn læknir hefur tengt það við meiðslin mín í dag. Ég var farþegi í bíl og við fengum annan bíl inn í hliðina. Þetta var algert óhapp.“ Magnús var þá á leiðinni upp á flugvöll í Eyjum að fljúga með liðinu í leik. Hann fór með liðinu þrátt fyrir slysið en þegar hann byrjaði að hita upp fór hann að svima og þá var hann settur í hvíld. Engin áhætta tekin. „Ég hef verið frekar slæmur eftir slysið enda fékk ég talsvert höfuðhögg. Þetta er mjög svekkj- andi en liðið má ekki við neinum skakkaföllum. Ég prófaði að spila einn leik en var með verki,“ segir Magnús, en talið er að hann hafi fengið heilahristing í slysinu. „Það er þá í annað sinn því ég fékk líka höfuðhögg og heilahrist- ing fyrr í vetur. Það var fyrir pás- una í deildinni og ég fékk því tíma til að jafna mig.“ Magnús er ekkert allt of bjart- sýnn á að spila meira í vetur. „Ég get ekki hreyft mig nokk- urn skapaðan hlut núna. Ef ég er kviðslitinn þá er þetta líklega búið. Þetta er búið að vera erfitt tímabil með meiðslin en mér tókst þó samt að vinna bikarinn með ÍBV sem var ágætt. Við viljum samt meira þó svo það hafi verið á brattann að sækja í síðustu leikjum.“ - hbg Búinn að fá tvisvar sinnum heilahristing Tímabilið er líklega búið hjá Magnúsi Stefánssyni. LEMSTRAÐUR Magnús hefur lent í miklum skakkaföllum í vetur en náði þó að verða bikarmeistari. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Verð í tveggja manna herbergi kr. 98.900,- Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat, íslensk fararstjórn og rúta til og frá flugvelli. Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda. Upplýsingar í síma 588 8900 Úrval veitingahúsa, verslana (m.a. H&M) og kaffihúsa. Næturlíf eins og það gerist best. Riga Lettlandi Stórfengleg borg Beint flug frá Keflavík og Akureyri 14.-17. maí 3 1 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 6 F B 0 8 0 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 5 9 -B C D 0 1 4 5 9 -B B 9 4 1 4 5 9 -B A 5 8 1 4 5 9 -B 9 1 C 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 8 0 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.