Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.08.2012, Blaðsíða 4

Bæjarins besta - 23.08.2012, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2012 Þingeyri að breytast í sumarhúsabyggð „Þetta er mjög hættuleg þróun og hefur ekki góð áhrif á Þingeyri og byggð í bænum,“ segir Daðey Arnborg Sigþórsdóttir formaður íbúasamtakanna Átaks í Dýra- firði. Á undanförnum árum hefur mikið borðið á því að húsnæði á Þingeyri sé keypt og notuð sem sumarhús. Því er mjög erfitt að kaupa myndugt húsnæði í bæn- um, þó engu að síður sé ekki heilsársbúseta á svæðinu. „Þetta þýðir það að fólk sem raunveru- lega vill búa á Þingeyri á mjög erfitt með að finna húsnæði.“ Daðey segist sjálf hafa fundið fyrir húsnæðiseklunni þegar flutt- ist aftur til Þingeyrar fyrir fimm árum síðan. „Ég þurfti að leigja hér kjallaraíbúð vegna þess að ekki var til húsnæði. Þetta er meira og minna orðið að sumar- bústöðum,“ segir Daðey, sem segir allan gang vera á því hvort brottfluttir Dýrfirðingar eða að- komufólk kaupi húsin. Fólksfjöldi á Þingeyri hefur farið minnkandi síðan útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Fáfnir fór í greiðslustöðvun um miðjan tíunda áratug síðustu aldar og Kaupfélag Dýrfirðinga lokaði. Ýmis útgerðarfyrirtæki hafa reynt fyrir sér í bænum, en út- gerðarfélagið Vísir hefur verið starfað þar undanfarin ár með misjöfnum árangri. Starfsmönn- um fyrirtækisins var sagt upp í sumar. „Þetta hefur allt saman áhrif. Ég veit ekki hversu lengi fólk nennir að vera hérna þegar því er alltaf sagt upp á sumrin og ráðið aftur á haustin,“ segir Dað- ey. Þingeyri er sá byggðarkjarni sem er lengst frá stjórnsýslu Ísa- fjarðarbæjar, og segir Daðey að það hafi áhrif. „Við höfum bent á að okkur finnist við stundum vera útundan. Það að þurfa að fara yfir á Ísafjörð næstum daglega til að sinna erindum er hvimleitt. Vissulega hafa göngin gert mörg- um fjölskyldum kleift að vera hér og starfa á Ísafirði, en fólk mun ekki setjast hér að ef það er ekki öflugt atvinnulíf og traust á svæðinu. Mikið af fólki í kringum þrítugt sem ólst upp á Þingeyri hefur tjáð mér að það vilji flytja aftur til baka en hreinlega geti það ekki. Enga atvinnu sé að fá.“ Daðey segir það ekki alslæmt að mörg húsa Þingeyrar séu í eigu fólks sem ekki búi í bænum. „Ef maður hugsar þetta á hinn veginn má eflaust færa rök fyrir því að betra sé að það sé búið í þessum húsum einhvern tíma árs- ins heldur en ekki. En þetta gerir engu að síður öðrum erfiðara um vik með að eignast húsnæði.“ Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt breytingar á fjárhags- áætlun Ísafjarðarbæjar. Mestu munar þar um laun og launatengd gjöld sem nema tæplega 50 millj- ónum króna. Helstu breytingar á endurskoðaðri launaáætlun sveit- arfélagsins eru þær að laun í málaflokknum fræðslumál auk- ast úr 768 milljónum króna í 784 milljónir. Laun í íþrótta- og æskulýðs- málaflokki aukast úr 94,8 millj- ónum í 112,9 milljónir. Laun vegna þjónustumiðstöðvar auk- ast úr 44,3 milljónum í 49,4 millj- ónir. Laun á vegum hafnarsjóðs aukast úr 44,3 milljónum í 49,4 milljónir. Þá er útsvar yfir áætlunum fyrstu mánuði ársins og nýjar áætlanir frá Jöfnunarsjóði gera ráð fyrir rúmlega 50 milljóna króna hækkun á framlögum til sveitarfélagsins. – thelma@bb.is Launatengd gjöld hækka Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.