Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2008, Blaðsíða 20
föstudagur 13. Júní 200820 Helgarblað DV LjósvakamiðLar undir hæL ríkisins Samkeppniseftirlitið gerði alvarlegar athugasemdir við veru Ríkisútvarpsins ohf. á auglýsingamarkaði. Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir að Ríkisútvarpið hegði sér eins og einkafyrirtæki með þriggja milljarða forgjöf frá skattborgurum. „Það er alvarleg skekkja í rekstr- argrundvelli ljósvakamiðla hér á landi með ríkisfjölmiðli sem fær að hegða sér eins og einkafyrirtæki með þriggja milljarða króna forgjöf frá skattborgurunum,“ segir Ari Ed- wald, forstjóri 365 miðla. Ari telur ljóst að Ríkisútvarpið ohf. í „einkafyrirtækislíki“ stundi nú harða útþenslustefnu í skjóli ríkisframlaga og brjóti samkeppn- islög. „Ríkið hvorki má né á að vera í samkeppni við borgarana. Að verja skattpeningum til þess er misnotkun á því skattfé sem stjórn- málamönnum er trúað fyrir. Ohf.- væðingin er sérlega varasöm, því hún virðist miða að því að réttlæta og festa í sessi þátttöku hins opin- bera í samkeppnisrekstri til lengri tíma. Félagaréttarlega tel ég opin- bert hlutafélag vera bastarð sem byggist á misskilningi og ætti ekki að vera til. Opinber rekstur verð- ur ekki í lagi við það að forráða- mennirnir megi fara að haga sér eins og þeir eigi þetta allt sjálfir og þurfi ekki að standa neinum skil á neinu.“ Ara þykir sem núverandi stjórn- endur RÚV séu hægt og bítandi að breyta Sjónvarpinu í venjulega sjónvarpsstöð á einkamarkaði og spyr hvað lögin segi um sérstakt hlutverk almannaútvarps umfram það sem almenni samkeppnis- markað- urinn bjóði. Nýj- asta dæm- ið segir hann vera íþróttaútsending- ar RÚV á tveimur sjón- varpsrásum. „Verða þær bráðum 5? Og útvarpsrás- irnar 4?“ Samkeppniseftir- litið forviða Ríkisútvarp- ið ohf. er eina al- mannaútvarpið á Norðurlöndum sem nýtur sérstaks leyfis stjórnvalda til þess að afla auglýsingatekna jafnframt því sem það nýtur ríkisframlaga. Í umsögn sinni til menntamálanefndar Al- þingis fyrir setningu nýju laganna um Ríkisútvarpið ohf. gerði Sam- keppniseftirlitið mjög alvarlegar athugasemdir við veru þess á aug- lýsingamarkaði. Í áliti stofnunar- innar sagði meðal annars orðrétt: „Samkeppniseftirlitið telur ljóst að RÚV muni geta nýtt umrædda rík- isaðstoð til framleiðslu og kaupa á meðal annars vinsælu dagskrár- efni. Það skapar eða eykur áhorf og hlustun hjá RÚV og styrkir þar með stöðu félagsins á markaði fyrir aug- lýsingar. Af þessu leiðir óhjákvæmi- lega að umrædd samkeppnis- starfsemi RÚV á sviði auglýsinga verður niðurgreidd með þeirri rík- isaðstoð sem félagið mun njóta. Einkaareknar útvarpsstöðvar hafa hins vegar ein- ungis aug- lýs- inga- tekjur og/eða áskriftar- tekjur til þess að afla sér dagskrárefnis. Að mati Samkeppniseft- irlitsins raskar þetta fyrirkomulag samkeppni á við- komandi auglýsingamörkuðum.“ Meinbugur á lagasetningu Samkeppniseftirlitið blés einn- ig á röksemdir um að ef RÚV hyrfi af auglýsingamarkaði væri nánast engin samkeppni um auglýsinga- framboð í sjónvarpi. „Í þessu sam- hengi verður að hafa í huga að rök standa til þess að þátttaka RÚV á auglýsingamarkaði í sjónvarpi hafi haft þau áhrif að ekki starfa fleiri aðilar á markaðnum en raun ber vitni,“ eins og segir í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Auk Samkeppniseftirlitsins bentu Viðskiptaráð, Samtök at- vinnulífsins og fleiri aðilar mennta- málaráðherra og öðrum stuðn- ingsmönnum RÚV-frumvarpsins á þessa meinbugi lagasetningarinn- ar. Samkeppniseftirlitið lagði til að RÚV ohf. hyrfi af auglýsingamark- aði og starfsemi þess yrði kostuð alfarið af opinberum fjárframlög- um. Ef stjórnvöld teldu sig ekki geta orðið við þessu lagði Sam- keppniseftirlitið til að starfsemi RÚV á auglýsingamarkaði færi fram á vegum sérstakrar hljóð- og sjónvarpsstöðvar sem alfarið yrði fjármögnuð með auglýsingatekj- um og kostun. Þannig væri tryggt að slík samkeppnisstarfsemi RÚV yrði ekki niðurgreidd með skattfé. Tekjur án fyrirhafnar Í þessu sambandi er athyglisvert að í aldarfjórðung hefur verið gert ráð fyrir því í starfsemi RÚV að Rás 2 stæði algerlega undir rekstri sín- um með auglýsingatekjum. Miðað við vöxt markaðarins undanfarin þrjú ár má áætla að auglýsingatekj- ur Rásar 2 hafi vart verið undir 300 milljónum króna á síðasta ári. Árið 2005 var dagskrárkostn- aður Rásar 2 áætlaður 86 milljón- ir króna. Sá kostnaður gæti hæg- lega hafa verið um 100 milljónir króna í fyrra. Gera má ráð fyrir að Rás 2 beri helmingskostnað á móti Rás 1 í rekstri fréttastofu útvarps- ins. Hlutur Rásar 2 gæti því verið um 90 milljónir í þeim rekstri. Þar við bætast stefgjöld, dreifingar- kostnaður og annar sameiginlegur rekstrarkostnaður. Innri skipulags- breytingar gætu hafa breytt þessu en það breytir ekki heildarmynd- inni. Ljóst má vera af framan- sögðu að Rás 2 stendur undir sinni eigin dagskrá, hálfri fréttastofu útvarpsins, tækniþjónustu og ýmsum öðrum kostnaði með auglýsingatekjum. Þjónustusamningur sem Þor- gerður Katrín Gunnarsdótt- ir menntamálaráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri hafa undirritað gildir til ársins 2012. Þar segir að RÚV ohf. skuli reka að minnsta kosti tvær útvarpsrásir og eina sjónvarpsrás. Eftir því sem DV kemst næst er hvergi að finna lög eða formlegar reglur um hvern- ig skipta skuli um þriggja millj- arða króna ríkisframlagi RÚV ohf. Þannig má ætla að það renni ótil- greint til reksturs Sjónvarpsins og tveggja útvarpssrása eins og sak- ir standa. Ekkert bannar RÚV að fjölga rásum en við það myndu tekjurnar dreifast á fleiri staði. Almannaútvarp – markaðsútvarp Af framansögðu má ráða að Rás 2 hlýtur einnig að eiga hlut- deild í þriggja milljarða króna rík- isaðstoðinni við RÚV ohf. Þótt Rás 2 væri ekki eignuð nema 10 pró- sent af þeirri upphæð má hæglega bæta 300 milljóna króna tekjum við árlegar auglýsingatekjur rásar- innar. Þannig má færa rök fyrir því að árlegar tekjur RÚV séu um 600 milljónir króna. Það er um það bil jafnhá upphæð og allar útvarps- rásir 365 miðla verða að gera sér að góðu á heilu ári í harðri samkeppni við RÚV um auglýsingatekjur. Vinnuregla RÚV um að Rás 2 skuli fjármagna sjálfa sig með auglýs- ingum bendir til þess að í raun sé Rás 2 markaðsdrifinn rekstur sem sækir rekstrartekjur sínar algerlega á frjálsan auglýsingamarkað í sam- keppni við aðrar hljóðvarpsstöðv- ar. Augljóst virðist því að Sam- keppniseftirlitið hefur farið nærri um skrumskælingu samkeppninn- ar í álitsgerð sinni til Al- þingis við undirbún- ing lag- anna um RÚV ohf. „... þátttaka RÚV á auglýs- ingamarkaði í sjónvarpi hafi haft þau áhrif að ekki starfa fleiri aðilar á mark- aðnum en raun ber vitni.“ JóhAnn hAukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Útvarpsstjóri Páll Magnússon undirritaði þjónustusamning rúV ohf. við ríkið sem gildir til ársins 2012. Ríkisútvarpið ohf. samkeppniseftir- litið gerir athugasemdir við umsvif rúV ohf. á auglýsingamarkaði. Ari Edwald, forstjóri 365 miðla „Opinber rekstur verður ekki í lagi við það að forráða- mennirnir megi fara að haga sér eins og þeir eigi þetta allt sjálfir og þurfi ekki að standa neinum skil á neinu.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.