Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 42
Ættfræði DVföstudagur 27. júní 200842 Vilhjálmur fæddist á Seyðisfirði og ólst þar upp fram yfir fermingu. Hann flutti síðan til Reykjavíkur með foreldrum sínum, lauk stúdentsprófi frá MA 1958 og lauk prófum í arki- tektúr frá The Edinburgh College of Art, School of Architecture 1964 og fékk borgarstjórnarverðlaunin fyrir ágætan námsárangur. Vilhjálmur starfaði hjá Skipulagi ríkisins 1960, hjá Tæknideild Hús- næðisstofnunar ríkisins á námsár- unum og Skipulagsdeild borgar- verkfræðings 1965. Hann stofnaði Teiknistofuna Óðinstorg sf. 1965, ásamt bróður sínum, Helga, og Vífli Oddssyni verkfræðingi og hefur starfað þar síðan. Meðal mannvirkja sem þeir félagar hafa teiknað og hannað eru Útvarpshúsið í Efstaleiti; Hús Öryrkjabandalags Íslands í Há- túni; Sólborg á Akureyri; Vonarland á Egilsstöðum; Menntaskólahús- ið á Ísafirði; Minningarkapella séra Jóns Steingrímssonar á Kirkjubæjar- klaustri og ráðhúsið í Bolungarvík. Vilhjálmur var formaður Arki- tektafélags Íslands 1979 og hef- ur sinnt ýmsum öðrum trúnaðar- störfum fyrir félagið. Hann starfaði í nefnd á vegum menntamálaráðu- neytisins um möguleika á stofnun íslensks skóla í byggingarlist 1988 og sat í byggingarnefnd Seltjarnarness 1970-75. Fjölskylda Vilhjálmur kvæntist 23.9. 1961 Borghildi Óskarsdóttur, f. 11.8. 1942, myndlistarmanni. Foreldrar hennar voru Óskar B. Bjarnason efnaverk- fræðingur og k.h., Sigurbjörg Emils- dóttir húsmóðir. Börn Vihjálms og Borghildar eru Ósk, f. 8.10. 1962, myndlistarmað- ur og starfrækir ferðaskrifstofu, gift Hjálmari Sveinssyni, heimspekingi og dagskrárgerðarmanni, og á hún þrjú börn; Björg, f. 18.1. 1965, mynd- listarmaður og grafískur hönnuður sem starfrækir, ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Tryggva Magnússyni, fyrirtækið BÓT og eiga þau þrjú börn. Systkini Vilhjálms eru Björg, f. 1.7. 1933, húsmóðir í Reykjavík; Helgi, f. 22.4. 1936, arkitekt í Reykjavík; Lár- us, f. 15.11. 1946, d. 30.3. 2007. Foreldrar Vilhjálms voru Hjálmar Vilhjálmsson, f. 16.7. 1904, d. 19.10. 1991, ráðuneytisstjóri í félagsmála- ráðuneytinu, og k.h., Sigrún Gyðríð- ur Helgadóttir, f. 20.12. 1902, d. 10.12. 1992, húsmóðir. Ætt Hjálmar var bróðir Árna, föður Tómasar, fyrrv. ráðherra, og Mar- grétar, móður Valgeirs Guðjónsson- ar tónlistarmanns. Systir Hjálmars var Sigríður, móðir Vilhjálms Einars- sonar, skólameistara á Egilsstöðum, föður Einars spjótkastara. Hjálmar var sonur Vilhjálms, útvegsb. á Há- nefsstöðum í Seyðisfirði, Árnasonar, b. á Hofi í Mjóafirði, Vilhjálmsson- ar. Móðir Vilhjálms var Björg, syst- ir Stefaníu, móður Vilhjálms, fyrrv. menntamálaráðherra. Björg var dóttir Sigurðar, b. á Hánefsstöðum, Stefánssonar og Sigríðar Vilhjálms- dóttur, systur Árna á Hofi. Sigrún var dóttir Helga, b. á Fossi á Síðu, bróður Rannveigar, móður Magneu Þorkelsdóttur, konu Sigur- björns Einarssonar biskups og móð- ur Karls Sigurbjörnssonar biskups. Helgi var sonur Magnúsar, b. á Fossi, Þorlákssonar, b. í Hörgslandskoti, Bergssonar, pr. á Prestbakka, Jóns- sonar. Móðir Þorláks var Katrín Jóns- dóttir ,,eldprests’’ Steingrímssonar. Móðir Sigrúnar var Gyðríður, systir Elínar, móður Siggeirs Lárus- sonar á Klaustri. Gyðríður var dóttir Sigurðar, b. á Breiðabólstað á Síðu, Sigurðssonar. Vilhjálmur heldur upp á afmælið í sveitinni með ættingjum og vinum. 70 ára á sunnudag Vilhjálmur hjálmarsson arkitekt Ættfræði umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson kgk@dv.is Kjartan gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stóraf- mæli á netfangið kgk@dv.is Gestur Friðjónsson fyrrv. formaður Félags harmónikkuunnenda Gestur fæddist að Hofsstöðum í Álftanes- hreppi í Mýrasýslu og ólst þar upp. Eftir barna- skólanám og vinnu við bústörf vann hann við skurðgröft og aðra véla- vinnu á vegum verk- færanefndar ríkisins og síðar Vélasjóðs og fleiri aðila. Gestur stundaði nám við Iðnskóla Akra- ness og verklegt nám í bifvélavirkjun en jafn- framt náminu stund- aði hann sérleyfisakstur hópferðabifreiða. Að námi loknu sá Gestur um rekstur og verkstjórn viðgerða og viðhaldsverkstæða, m.a. fyr- ir Samvinnufélag Hvalfjarðar og við eigin verkstæðisrekstur. Þá sá hann um verkstjórn viðhaldsverk- stæða Fosskrafts hf. við Búrfells- virkjun og síðar fyrir Landsvirkj- un. Hann starfrækti aftur eigið verkstæði um árabil og var síðan starfsmaður Vinnueftirlits ríkisins frá 1981 og síðan umdæmisstjóri í Suðurnesjaumdæmi frá 1987-98. Gestur hefur búið á Akranesi, Litla-Mel í Skilmannahreppi, við Búrfellsvirkjun, á Seltjarnarnesi, í Reykjanesbæ en er nú búsettur á Akranesi. Gestur hefur m.a. sungið með karlakórnum Svönum, Kirkjukór Akraness, Skagfirsku söngsveit- inni í Reykjavík um margra ára skeið, var formaður Félags harm- ónikuunnenda á Suðurnesjum og aðstoðaði og lék undir með kórum. Þá starfaði hann í ung- mennafélagshreyfingunni og tók virkan þátt í starfi björgunarsveit- arinnar Hjálpin. Fjölskylda Gestur kvæntist 17.6. 1954 Nönnu Jóhannsdóttur, f. 20.4. 1936, húsmóður. Hún er dóttir Jóhanns Sigurðar Jóhannssonar, sjómanns og verkstjóra á Akra- nesi, og Ólafar Bjarnadóttur hús- móður. Börn Gests og Nönnu eru Jó- hanna Ólöf, f. 22.9. 1953, aðstoð- arskólastjóri Seljaskóla en maður hennar er Kristján Sigurðsson og eru börn hennar Gestur Baldurs- son, Embla Kristjánsdóttir, Hrefna Kristjánsdóttir, Askur Kristjáns- son og Gríma Kristjáns- dóttir; Ingibjörg Jóna, f. 15.7. 1957, þjóðfræð- ingur og forstöðumað- ur byggðasafnsins að Reykjum í Hrútafirði en maður hennar er Garð- ar Norðdahl og eru börn hennar Nanna Sigurðar- dóttir, Hjördís Garðars- dóttir, Haraldur Garðars- son og Vífill Garðarsson; Jóhann Sigurður, f. 15.5. 1962, fiskeldisfræðing- ur og forstöðumaður seiðeldisstöðvar Eystri- Rangár að Laugum en kona hans er Ásta Kristjana Guðjónsdóttir og eru börn hans Gunnur, Kristján Darri, Jóhann Sigurður og Guðjón Andri. Dóttir Gests og Guðrún- ar Kristjánsdóttur er Elín Sigur- björg, f. 29.7. 1953, framkvæmda- stjóri en maður hennar er Hreiðar Karlsson og eru börn þeirra Guð- rún Rut og Berglind. Systkini Gests: Ólöf Friðjóns- dóttir, f. 22.1. 1930, húsfreyja í Eystri- Leirárgörðum; Friðgeir Friðjónsson, f. 1.10. 1931, nú lát- inn, vinnuvélstjóri í Borgarnesi; Jón Friðjónsson, f. 16.9. 1939, bóndi á Hofstöðum. Foreldrar Gests voru Frið- jón Jónsson, f. 7.11. 1895, d. 15.2. 1976, bóndi á Hofstöðum í Álfta- neshreppi í Mýrasýslu, og k.h., Ingibjörg Friðgeirsdóttir, f. 14.10. 1906, d. 19.4. 1998, húsfreyja. Ætt Friðjón var bróðir Ólafar, hús- freyju á Álftarósi. Friðjón var sonur Jóns, b. á Hofsstöðum, Samúelssonar, vinnumanns í Knarrarnesi, Brandssonar. Móðir Jóns var Ólöf Guðrún Jónsdóttir. Móðir Friðjóns var Sesselja Jóns- dóttir, b. í Einarsnesi, Þorvalds- sonar, og Oddfríðar Sigurðardótt- ur. Ingibjörg var dóttir Sigurjóns Friðgeirs, verslunarmanns í Borg- arnesi og b. á Ytri-Rauðamel í Hnappadal, Sveinbjörnssonar, b. í Vogalæk, Sigurðssonar. Móð- ir Sigurjóns Friðgeirs var Þórdís Guðmundsdóttir. Móðir Ingibjargar var Ingi- björg Lífgjarnsdóttir, b. á Urriðaá, Hallgrímssonar, og Ingveldar Jónsdóttur. 80 ára á FÖSTUDAG Ólafur Heiðar Harðarson nemi í MA-námi í mannauðsstjórnun við HÍ Ólafur fæddist í Reykjavík en ólst upp á Sauðárkróki til tví- tugs. Hann var í Grunn- skóla Sauðárkróks, lauk stúdentsprófi frá FNV á Sauðárkróki, lauk BA-prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá HÍ 2005 og er nú að ljúka MA-námi í mannauðs- stjórnun frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Ólafur hefur starf- að með námi á heimili fyrir einhverfa í Jökla- seli í Breiðholti frá 2003. Þá hefur hann verið sundþjálfari og sund- kennari frá átján ára aldri við ýmsa skóla. Hann var yfirþjálf- ari Tindastóls og hefur auk þess þjálfað Ármann í Reykjavík. Fjölskylda Kona Ólafs er Hrefna Ásmundsdóttir, f. 19.4. 1984, nemi í hjúkrunar- fræði við HÍ. Systur Ólafs eru Guð- rún Helga Harðardóttir, f. 28.6. 1972, æskulýðs- og tómstundafulltrúi; Elva Hlín Harðardótt- ir, f. 9.3. 1986, starfar við vinnustofu fatlaðra í Reykjavík; Karen Harpa Harðardóttir, f. 24.3. 1993, nemi. Foreldrar Ólafs eru Hörður Gunnar Ólafsson, f. 28.8. 1953, tannsmiður og tónlistar- maður í Reykjavík, og Margrét Sigurðardóttir, f. 9.6. 1954, grunn- skólakennari í Reykjavík. Ólafur Heiðar og Hrefna munu gifta sig í Dómkirkjunni í Reykjavík 12.7. nk. 30 ára á sunnudag Merkir íslendingar Guðmundur Kjærnested skip- herra fæddist í Hafnarfirði. Hann tók farmannapróf frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík 1949 og skipstjóra- próf frá varðskipadeild 1953. Guðmundur fór fyrst til sjós 1940 en hóf störf hjá Landhelgisgæslunni sem háseti á varðskipinu Ægi 1943. Hann varð stýrimaður á Ægi að loknu farmannaprófi og síðan 1. og 2. stýrimaður á hinum ýmsu varð- skipum til 1953. Hann var fastráðinn skipstjóri hjá Landhelgisgæslunni 1954, var síðan aðallega með flug- vél Landhelgisgæslunnar, TF Rán, en auk þess skipstjóri á varðskip- um öðru hverju og stjórnaði mörg- um skipum Gæslunnar til 1968. Þá tók hann við flaggskipinu Ægi og var skipherra þess til 1975 er hann tók við Tý sem þá kom nýr til landsins. Guðmundur var með Tý til 1980 er hann fór í land og varð skipherra á stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Hann lét af störfum hjá Landhelg- isgæslunni 1983 eftir 40 ára farsæl- an feril þar og starfaði hjá utanríkis- þjónustunni síðustu starfsárin. Við útvíkkun landhelginnar í 50 sjómílur, 1972, og í 200 sjómílur, 1975, kom Guðmundur mikið við sögu í átökum íslenskra varðskipa og enskra herskipa. Hann vakti ítrekað aðdáun breskra herskipsstjórnar- manna og íslensku þjóðarinnar fyr- ir lipra skipstjórn við háskalegar að- stæður, háttvís samskipti við breska skipstjórnaraðila, yfirvegun og hug- prýði. Í þorskastríðunum 1972 og 1975 var hann sannkölluð þjóðhetja, ekki síður en Eiríkur Kristófersson 1959. Guðmundur var forseti FFSÍ 1972-1974. Hann hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir land- helgisstörf 1976. Guðmundur Kjærnested f. 29. júní 1923, d. 2. september 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.