Hafnarfjörður - Garðabær - 01.05.2015, Blaðsíða 6

Hafnarfjörður - Garðabær - 01.05.2015, Blaðsíða 6
1. Maí 2015 Hver eru þín helstu áhugamál? Þau er í raun svo breytileg. En það sem ég hef alltaf haldið mig við eru skriftirnar, sem eru reyndar orðnar að atvinnumennsku núna. Annars fylgist ég vel með þjóðmálaumræðunni starfs míns vegna. Það mætti kalla það áhuga- mál. Eða óheilbrigðan áhuga á rugluðu samfélagi. En það er líka af ákveðinni atvinnumennsku sem ég fylgist vel með. Hver er þinn helsti kostur? Það er eitthvað einkennilegt við að dæma eigin galla og kost. Held að maður sé yfirleitt frekar blindur á sig sjálfan almennt. Dálítið eins og að reyna að finna stafsetningavillurnar í eigin texta. Annars held ég að óþolin- mæði sé minn helsti kostur og ókostur. Ég vinn og leik mér hratt og örugglega en stundum geri ég mistök vegna þess að ég gef mér ekki nægan tíma til þess að gaumgæfa það sem ég er að gera. Ég er að vinna að því að betrumbæta mig. En galli? Sjá svar fyrir ofan Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Fjallgarðurinn á Reykjanesi á fallegum vetrardegi En í Hafnarfirði? Hellisgerði Eftirlætis íþróttafélag? Ég er gamall Haukari. Æfði handbolta í einhverjar fimm mínútur hjá Haukum og hef verið stuðningsmaður félags- ins síðan. Annars bý ég við átakanlegt áhugaleysi á íþróttum sem jaðrar við að vera fötlun. Hvað áttu marga „vini“ á Facebook? Rétt yfir þúsund. 1028 ef við viljum vera nákvæm. Uppáhaldsmatur og drykkur? Bjór á tyllidögum og rauðan kristal plús þess á milli. Annars eru ítölsku kjötbollurnar sem ég elda sjálfur í upp- áhaldi hjá mér. Uppáhaldstónlistarmaður eða tón- listarstefna? / Uppáhaldslag/plata? Ég á ekki endilega uppáhaldstónlistar- menn en er mjög jaðarmiðaður þegar kemur að tónlist. Þannig hlusta ég nær eingöngu á raftónlist þessa dagana. Ef ég ætti að nefna listamenn sem ég er með í eyranu þá eru það SBRTK, Romare, Darkside og Jai Paul. Af ís- lensku efni elska ég Samaris, Prins Póló og hef verið að uppgötva Shades of Reykjavík sem er skemmtilegt sýn- ishorn af úrkynjaðri æskuÍslands. Hvaða bók, lag eða listaverk hefur haft mest áhrif á þig og hvers vegna? Þegar stórt er spurt. Það er í sjálfu sér ekkert eitt. Þetta er meira eins og hrærigrautur sem ég hef drukkið í mig. En það skáld sem hefur einstakt lag á að fanga hjarta mitt er Dostojevskí. Ástæðan er ekki einföld. Hann hreyfir við mér, sem er nokkuð sem ég krefst þess að listamaður geri þegar ég nýt listarinnar. Mér er í sjálfu sér sama hvernig það er gert. Hvert sækirðu afþreyingu? Sjónvarp, útvarp, bók eða net? Svarið er eiginlega allt saman. Hrein- skilna svarið er netið. Hvað vildirðu verða þegar þú yrðir stór? Brjálaður vísindamaður. Hvert var fyrsta starfið, og hvað hefurðu tekið þér fyrir hendur fram að þessu? Fyrsta vinnan var unglingavinnan í Hafnarfirði. Þar lærði maður ýmislegt, um gang lífsins og almennt vinnusið- ferði. Kannski meira um að leggja sig þegar enginn sá til manns. Síðan hef ég starfað við garðyrkju, verkamanna- vinnu, sem þjónn og starfsmaður I fé- lagsmiðstöð. Einu sinni seldi ég meira að það segja rósir í miðborg Reykja- víkur. En ég entist ekki lengi í því. Ef þú værir ekki á fullu í ritstörfum og blaðamennsku, hvað tækirðu þér fyrir hendur? Ég veit það ekki, ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Líklega myndi ég bara mæla göturnar í miðbænum og reyna viðhalda einhverju jafnvægi í hjarta mínu. Hvert var fyrsta „breikið“ þitt í rit- listinni? Sennilega er þessi útgáfa fyrsta raunverulega tækifærið. En ég hef verið iðinn að taka þátt í smásagna- samkeppnum og gengið ágætlega þar. Hvað sýslarðu annað en það og blaða- mennsku? Ég sinni fjölskyldunni og vinum. Svo reyni ég að hreyfa mig eitthvað þess á milli. Áttu þér fyrirmynd í leik eða starfi? Nei. Varstu lengi að skrifa bókina? Nei, meðgöngutíminn var í raun um ár. Ég skrifaði hana samt á skemmri tíma. Líklega á rúmu hálfu ári, sem þykir ekki mikill tími fyrir skáldverk. Hvernig gengur að vera rithöfundur og vera líka á fullu við önnur störf? Það er erfitt. Maður þarf að skipuleggja tímann vel og beita sig töluverðum aga. Það tók mig nokkurn tíma að ná þeim áfanga að setjast niður og skrifa við allar mögulegar aðstæður (þegar börnin eru hlaupandi allt í kring með tilheyrandi hávaða og svo framvegis), en þegar það kom, þá hefur mér gengið nokkuð vel að skrifa. Það vantar alla- vega ekki hugmyndirnar. Hvað er að þínu mati mikilvægast fyrir Hafnarfjörðinn? Að hann verði áfram fjölskylduvænn og áherslan verði áfram á fjölskyldufólk. Það er það sem hefur gert Hafnarfjörð einstakan að mínu mati. Þar má finna ótrúlega öflugt iþrótta- og tómstundar- starf. Líka öflugan tónlistarskóla sem hefur getið af sér kröftuga tónlistarsenu í bænum. Þetta er hryggjastykki bæj- arins. Að því sögðu, hvað mætti gera betur í Hafnarfirðinum? Það mætti huga betur að skipuags- málunum. Hvaða stundir í lífinu eru gleðileg- astar? Þessar óvæntu. Hvað er svo framundan hjá þér? Vinna, samvera með fjölskyldunni og vonandi ljóðahandrit sem ég er að vinna að. Og kannski önnur skáldsaga í náinni framtíð. Lífsmottó: Ég hef engar sérstakar lífsreglur. Það sem hefur skilað mér mestu í gegnum tíðina er eljan og dugnaðurinn og sækja það fast sem maður vill án þess að gefast upp. Í fáum orðum: Vertu hress, ekkert stress og borðaðu kex! 6 Valur Grettisson: Æfði handbolta í fimm mínútur Á lambakjötið Kryddin frá okkur eru ómissandi í eldhúsið hjá ykkur Lambakrydd úr 1001 nótt Villijurtir Lamb Islandia Grískt lambakrydd Valur Grettisson, blaðamaður og rithöfundur er Hafnfirðingur í húð og hár. Hann hefur nýlega sent frá sér skáldsöguna „Gott fólk“ sem þó á sér fyrirmyndir í raunverulegum atburðum. Hann hefur starfað við blaða- mennsku um langt skeið og gerir enn. Valur er fjölskyldumaður, á tvo syni, Ólaf Gretti og Illuga með konu sinni Hönnu Ruth Ólafsdóttur. Stærstu sigarar hans eru að hafa komið fjölskyldunni á laggirnar, eins og hann segir sjálfur. En í starfi nefnir hann afhjúpunina um Breiðuvíkurmálin og svo skáldsagan nýja. Valur Grettisson er í yfirheyrslunni að þessu sinni. Valur Grettisson heldur á eintökum af nýrri bók sinni.

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.