Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 14

Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 14
Hvernig gallabuxur velur þú? – könnun á samfélagslegri ábyrgð Slitsterkar buxur úr denim­efni voru upphaflega framleiddar fyrir verkafólk í Bandaríkjun um en náðu vinsældum meðal unglinga eftir að James Dean klæddist einum slíkum í myndinni Rebel Without a Cause. Vinsældir gallabuxna hafa síst farið minnkandi og í dag seljast hátt í 400 milljón gallabuxur á ári hverju í Evrópu. Framleiðsla í fjarlægum löndum Framleiðsla á tískuvarningi hefur að miklu leyti verið flutt til fjar­ lægra landa þar sem framleiðslukostnaður er lægri en á Vestur­ lönd um. Aðstæður í verksmiðjum eru þar oft langt frá því sem við mynd um telja ásættanlegar. Réttindi verkafólks eru ekki virt og því er jafn vel meinað að vera í verkalýðsfélagi. Einnig eru notuð ýmis skað leg efni við framleiðsluna sem starfsfólki getur stafað hætta af ef ekki er vel staðið að öryggismálum. Þá er mengun frá verk­ smiðj um oft vandamál. Margir vilja ekki taka þátt Flest fyrirtæki hafa sett sér stefnu þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð (CSR eða Corporate Social Responsibility). Reynslan hefur þó sýnt að allur gangur er á því hvort og hvernig stefnunni er fylgt. Neytendasamtök í Evrópu ákváðu að kanna samfélagslega ábyrgð nokkurra þekktra gallabuxnaframleiðenda. Haft var samband við 15 framleiðendur sem selja vörur sínar í Evrópu og þeim sendir spurningalistar. Þá var farið í heimsókn í verksmiðjurnar til að kanna raunverulegar aðstæður. Af 15 gallabuxnaframleiðendum sem valdir höfðu verið vildu einungis 6 taka þátt. Meðal fyrirtækja sem neituðu að taka þátt eru framleiðendur þekktra merkja, svo sem Diesel, Boss Orange, Lee Jeans og Wrangler. Aðrir framleiðendur sem fá falleinkunn eru Salsa, 7 for all mankind, Kik, Jeans Fritz og Kuyichi. Aðstæður víða óviðunandi Aðstæður starfsfólks í gallabuxnaverksmiðjum eru ekki öfunds­ verðar. Í vettvangskönnunum kom í ljós að algengt er að unnið sé 13 daga í röð án frídags og án þess að yfirvinna sé greidd. Þá eru dæmi um að starfsfólk fái enga launaseðla og því borið við að það skilji hvort eð er ekki það sem stendur á seðlinum. Þá fundust sígarettustubbar í lagerrými þar sem eldfim efni voru geymd og einnig kom í ljós að aðeins í þriðju hverri verksmiðju höfðu verið haldnar brunaæfingar. Mikið er notað af varasömum efnum á síðasta stigi framleiðslunnar. Þar sem þessi vinnsla fer fram er oft skortur á loftræsingu og öryggiseftirliti ábótavant. Höfðu sumir starfsmenn á orði að þessi óvinsælu störf væru yfirleitt unnin af nýliðum sem gerðu sér ekki grein fyrir áhættunni. 14 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.