Morgunblaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 4. F E B R Ú A R 2 0 1 5 Stofnað 1913  29. tölublað  103. árgangur  TÖLVUTÆTINGUR, VATNAFLYGILL OG KAFBÁTUR ÓLI PRIK UM ÓLA STEF VONARSTRÆTI OG PARÍS NORÐURSINS Í SÉRFLOKKI HEIMILDARMYND 38 TILNEFNINGAR 41UT-MESSAN 10 Hörpureitur Byggingarnar verða við hlið Tollhússins, í horninu niðri til vinstri.  Fasteignaþróunarfélagið Stólpar hyggst hefja jarðvinnu á næstu vikum við byggingu fjölbýlis- og verslunarhúsnæðis á svonefndum Hörpureitum 1 og 2 við Austur- bakka, að sögn Gísla Steinars Gísla- sonar hjá Stólpum. Áður en hafist verður handa við byggingu bíla- kjallarans þarf að grafa upp og skrásetja þær fornminjar sem eru á svæðinu. Þetta er fyrsta uppbygg- ingin á Hörpureitunum frá því að lokið var við byggingu Hörpu en að bílakjallaranum meðtöldum verða byggingarnar samtals 30 þúsund fermetrar. »4 Grafa upp forn- minjar áður en haf- ist verður handa Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Mennta- og menningarmálaráðu- neytið bendir á í bréfi til sveitarfé- laganna Rangárþings ytra, Rangár- þings eystra og Skaftárhrepps að Torfajökulssvæðið er á yfirlitsskrá ríkisstjórnarinnar til heimsminja- skrár UNESCO. Ráðuneytið hvetur sveitarfélögin til að taka tillit til fyrirhugaðrar umsóknar um skrán- ingu svæðisins á heimsminjaskrá í vinnu við gerð skipulags fyrir suð- urhálendið og að ekki verði spillt möguleikum á því að fá slíka um- sókn samþykkta. Þá hafa verið kynntar fyrirhug- aðar breytingar á aðstöðu og þjón- ustu í Landmannalaugum, sem yrði að mestu flutt á nýtt svæði og byggt yrði upp í Námshrauni á stað sem heitir Sólvangur. Náttúru- fræðistofnun hefur gert athuga- semdir við rask sem því myndi fylgja. Setji umsóknarferli ekki í uppnám Í bréfi ráðuneytisins segir að Torfajökulssvæðið sé á yfirlitsskrá „vegna einstæðrar náttúru á heims- mælikvarða og ræður þar einnig miklu að svæðið er lítið raskað“. Ráðuneytið vill í bréfinu undir- strika mikilvægi þess að Torfajök- ulssvæðið haldist ósnortið og verði sem minnst raskað svo umsókn- arferli fyrir svæðið verði ekki sett í uppnám. Þess þurfi því að gæta með hinu nýja skipulagi að ekki sé brotið nýtt land undir mannvirki og þjónustukjarna heldur unnið áfram með þau svæði sem þegar hefur verið raskað, s.s. Landmannalaug- ar. MUppbygging rýrir … »6 Möguleikum verði ekki spillt  Ráðuneyti leggur áherslu á að Torfajökulssvæðið haldist ósnortið og verði sem minnst raskað  Sveitarfélög taki tillit til umsóknar um skráningu á heimsminjaskrá Náttúrulegir birkiskógar þekja 1.506 ferkílómetra, sem svarar til um 1,5% af flatarmáli Íslands. Skógarnir hafa bætt við sig á síðustu 25 árum, frá því síðast voru gerðar mælingar á stærð birkiskóga. Er þetta fyrsta staðfesta framfaraskeiðið eftir margra alda hnignun sem talið er að hafi í raun hafist við landnám Ís- lands. Rannsóknastöð skógræktar á Mó- gilsá hefur lokið endurkortlagningu náttúrulegra birkiskóga og -kjarrs á Íslandi en hún hefur unnið að því verkefni frá árinu 2010. Voru niður- stöðurnar kynntar í gær. Áður var unnið að slíkri kortlagningu á átt- unda og níunda áratugnum. Í fyrra skiptið var aðeins hægt að ræða um skógarleifar enda höfðu þá tapast 95% þeirra skóga sem áætlað hefur verið að hér væru við landnám. Viðbæturnar síðustu 25 árin, ný- liðun náttúrulegra birkiskóga lands- ins, eru 129 ferkílómetrar, sam- kvæmt kortlagningunni. Slagar það upp í tvöfalt flatarmál Holuhrauns, svo samanburður sé gerður. Nýliðun er misskipt eftir landshlutum. Þann- ig hefur mest bæst við á Vestfjörðum og Suðurlandi, 43-44 ferkílómetrar, en minnst á Norður- og Austurlandi. Mestu birkiskógarnir eru eftir sem áður á Vesturlandi þar sem fimmt- ungur skóglendisins er. »12 Framfaraskeið staðfest  129 ferkílómetrar hafa bæst við náttúrulega birkiskóga Birki Kjarr á Þingvöllum. Hann var tilkomumikill austurhiminninn í höfuð- borginni þegar sólin kom upp í gærmorgun. Þetta sjónarspil stóð yfir í skamma stund en þeir nutu sem á horfðu. Daginn lengir smátt og smátt og er hann orðinn góðum þremur stundum lengri en þegar hann var stystur, 21. desember. Roðinn í austri tilkomumikill Morgunblaðið/Golli  Innflutningur á frosnu ali- fugla-, nauta- og svínakjöti jókst um 61% í fyrra miðað við árið á undan. Flutt voru inn 2.758 tonn af kjöti 2014 en 1.709 tonn 2013. Innflutningur á nautakjöti fjórfaldaðist á milli ára, var um 266 tonn en fór í um 1.047 tonn. Innflutta kjötið er komið með um 20% markaðshlutdeild. Fjölgun ferðamanna skýrir að hluta aukinn innflutning. »4 Innflutningur á kjöti jókst um 61%  Þrjátíu íbúða fjölbýlishús er nú í byggingu á Hrólfsskálamel á Sel- tjarnarnesi þar sem áður stóð frystihúsið Ísbjörninn. Það hús gerði Bubbi Morthens ódauðlegt í lagi sínu Ísbjarnarblús. Bygging hússins er á lokastigi og eru 20 íbúðir seldar nú þegar. Í greinaflokknum Heimsókn á höfuðborgarsvæðið er í dag komið við á Seltjarnarnesi og meðal ann- ars rætt við Gísla Steinar Gíslason sem stendur fyrir byggingu húss- ins. Þá er rætt við formann Stjörnu- skoðunarfélags Seltjarnarness sem býr sig undir sólmyrkvann 20. mars. »18-19 Byggir 30 íbúða hús á Hrólfsskálamel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.