Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is „Samkvæmt skýrslu ákærða Hreið- ars (Más Sigurðssonar, innskot Morgunblaðsins) fyrir héraðsdómi höfðu stjórnendur Kaupþings banka hf. allt frá árinu 2003 leitað eftir því að fá erlenda hluthafa að bankanum og þeim orðið nokkuð ágengt í því, en 2007 hafi sú viðleitni þeirra farið að beinast að fjárfestum í Mið-Austur- löndum,“ segir meðal annars í dómi Hæstaréttar í Al-Thani-málinu. Í dóminum segir ennfremur: „Ákærði Ólafur (Ólafsson) lýsti því í skýrslu sinni fyrir dómi að hann hafi á árinu 2005 kynnst MAT (Moham- med Al Thani) og SAT (Sheikh Sult- an Bin Jassim Al Thani, frænda og ráðgjafa Al-Thani), sem báðir séu frá Qatar, fyrir atbeina ensks lögmanns þeirra að nafni SS. MAT hafi verið bróðir emírsins af Qatar og um tíma aðstoðarforsætisráðherra þess ríkis, en stundað viðskipti frá árinu 2003 eða 2004. SAT hafi verið frændi MAT, unnið fyrir hann og rekið margvísleg viðskipti. Ákærði Ólafur skýrði einnig frá því fyrir héraðsdómi að SAT hafi komið til Íslands með ákærða Sigurði (Einarssyni) um mánaðamót júlí og ágúst 2008 og hafi SAT í þeirri ferð sótt kynningarfund um Kaupþingi banka hf. með ákærða Hreiðari. Ákærðu Ólafur og Sigurður hafi síð- an verið við skotveiðar í Englandi 26. og 27. ágúst 2008, meðal annars með MAT og SAT, þar sem sá síðast- nefndi hafi lýst hrifningu af bank- anum og þeir frændur báðir lýst trausti á ákærða Sigurði og öðrum stjórnendum bankans.“ 19. september 2008 Í dómi Hæstaréttar segir að í mál- inu liggi fyrir yfir 60 tölvubréf og endurrit af hljóðrituðum símtölum 19. september 2008 milli starfsmanna Kaupþings banka hf. og Kaupthing Bank Luxembourg S.A., sem bera með sér hvernig vinnu vatt fram þann dag við að opna reikninga hjá bönkunum fyrir Choice Stay Ltd., Gerland Assets Ltd. og Serval Trad- ing Group Corp. ásamt Brooks Trad- ing Ltd. og skrá félögin að öðru leyti í kerfum fyrrnefnda bankans, sem virðast hafa tengst lánsviðskiptum. „Áður en degi þessum lauk virðist þeim viðfangsefnum hafa í mörgum atriðum verið lokið vegna allra félag- anna, en í því skyni höfðu meðal ann- ars verið send milli starfsmanna bankanna fjölmörg skjöl í tengslum við áreiðanleikakönnun á félögunum vegna reglna um varnir gegn pen- ingaþvætti og umsóknir félaganna um reikningsviðskipti,“ segir í dóm- inum. „Við þurfum að greiða EUR 200m og USD 50m“ Þessum samskiptum er lýst í löngu máli í dómi Hæstaréttar og verða hér birt brot úr dóminum: „Fljótlega eftir að símtali þessu lauk sendi HBL (Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fyrrverandi viðskipta- stjóri útlánasviðs Kaupþings) tölvu- bréf til HSK (væntanlega átt við Halldór Kristin Sveinsson, starfs- mann fjarstýringar Kaupþings) og ÓFG (Ólafs Frímanns Gunnarssonar, forstöðumanns í fjárstýringu Kaup- þings), sem báðir störfuðu á sviði fjárstýringar við Kaupþing banka hf. Bréfið var svohljóðandi: „Við þurfum að greiða EUR 200m og USD 50m MM inn á reikninga í Lux á morgun. Fáum reyndar á móti USD 50m frá Lux. Meira um það á morgun.“ HBL sendi einnig tölvubréf til GÞG (Guð- mundar Þórs Gunnarssonar, starfs- manns útlánasviðs), þar sem sagði: „Fór aðeins í gegnum þetta með [SÖS] (Sölva Sölvasyni, lögfræðingi á lögfræðisviði Kaupþings). Hann vill fá EUR 200 milljónirnar inn á reikn- ing í Lux. Við myndum greiða þá inn á reikninga hér hjá SPV-um í eigu sjeikhsins og ÓÓ (Ólafs Ólafssonar). Þaðan þyrfti þetta að fara inn á reikn- ing í Lux í eigu „QO Invest“ sem verður Kýpurfélag þar sem þeir myndu sitja þangað til „Q Invest IS“ er búið að kaupa bréfin – þá verða peningarnir fluttir inn á reikning hjá þeim.“ Þessu svaraði GÞG nokkru síðar á eftirfarandi hátt: „OK, tha verdur Lux ad borga nidur somu upphaed I millifelagalan. Thetta a ad vera funding neutral.“ Í málinu ligg- ur fyrir endurrit hljóðupptöku af sím- tali, sem HBL og HSK áttu í beinu framhaldi af fyrstnefnda tölvubréf- inu, en í upphafi þess spurði HSK hvað væri að gerast í Lúxemborg og svaraði HBL því til að þrjú félög þyrftu „á þessum peningum að halda“, þetta væru „tvisvar sinnum 100 milljón evrur og einu sinni 50 milljón dollarar“, sem yrði gengið frá sem peningamarkaðsútláni, væntan- lega til fjögurra vikna. Sagði þá HSK að „við eigum ekki fyrir þessu“ og svaraði HBL því til varðandi 200.000.000 evrur að um tvö félög væri að ræða „sem munu eiga reikn- inga hér“ og yrði sú fjárhæð lögð inn á þá, síðan millifærð inn á reikning fé- lags hjá Kaupthing Bank Luxem- bourg S.A. og kæmi svo féð þaðan „aftur hingað til Íslands eftir helgi“. HSK sagðist þá ekki hafa verið „að grínast með það, þetta kemst ekki út … það er ekki til peningur fyrir þessu“. Spurði þá HBL hvort ein- hverju myndi breyta ef félagið, sem ætti að taka við fénu, ætti reikning í Kaupþingi banka hf. og svaraði HSK að „það myndi do the trick fyrir okk- ur, sko. Að öðru leyti væri ekki hægt að gera þetta nema við myndum senda þetta út að morgni í evru til Luxembourg og við myndum fá þetta strax aftur til baka“. HBL spurði hvort það myndi leysa málið að „þetta Kýpurfélag … sem á að fá pen- ingana“ myndi stofna reikning í bankanum og játti HSK því. Sagðist þá HBL mundu „skoða það með þeim í Lúx … af hverju þeir vildu endilega fá þetta inn á reikning hjá þeim.“ Að loknu þessu símtali sendi HBL tölvu- bréf til SÖS, þar sem hann spurði hvort ekki væri unnt að stofna reikn- ing handa „þessu Kýpurfélagi … hér á Íslandi“, því „fjárstýringin er í vandræðum með að redda þessum peningum til að millifæra til Lux.“ Í gögnum málsins liggur ekki fyrir svar við þessu, en stuttu síðar áttu HBL og HSK aftur símtal, þar sem sá fyrrnefndi sagði að „vandamálið“ fælist í því að ekki myndi takast næsta dag „að keyra þetta félag“ í gegnum áreiðanleikakönnun hjá Kaupþingi banka hf. vegna reglna um varnir gegn peningaþvætti, en ætl- unin væri „bara með handafli að stofna einhverja reikninga þarna í Lúx“ án þess að slíkri könnun væri lokið. Sagði HBL síðan að ef ekki væri nokkur leið að útvega fé til að senda til Kaupthing Bank Luxem- bourg S.A. yrði að „snúa upp á hönd- ina“ á þeim, sem stýri áreiðanleika- könnunum, og „koma þessum reikningum bara í gegn hér á Ís- landi“, sem HSK samsinnti. Bætti HBL því við að þetta væri „bara díll sem var að koma í hús klukkan þrjú, Hreiðar, þetta kemur frá Hreiðari sko, þannig að, hérna, þess vegna er verið að reyna að redda þessu svona á síðustu stundu, sko.“ Undir lok sam- talsins sagði HBL að greiðsla á 50.000.000 bandaríkjadölum yrði að fara til Kaupthing Bank Luxembourg S.A. og yrði því fé eytt erlendis, en féð í evrum kæmi aftur til baka það- an.“ „Sjeikinn og ÓÓ“ Síðar segir dómi Hæstaréttar: „Meðan á framangreindum verk- um stóð sendi HBL meðal annars tölvubréf snemma að morgni 19. september 2008 til SÖS og GÞG, sem tilgreint var að varðaði „sjeikinn og ÓÓ“, en þar var rætt um að til stæði að greiða út þann dag peningamark- aðslán „án nokkurra ábyrgða/trygg- inga.“ Þessi lán yrðu væntanlega til eins mánaðar og hefðu þeir því þann tíma til að ganga frá endanlegum lánssamningum. Sagði að Kaupthing Singer & Friedlander Ltd. myndi „sjá um sjeikinn“ og yrði það lán væntanlega með ábyrgð eða veði, en „hjá ÓÓ“ yrði tekið veð í nýju félagi hans á Bresku Jómfrúareyjunum, sem væri Gerland, og hlut þess í fé- laginu Choice. Væri síðan spurning „um hvernig samning ÓÓ gerir við sjeikinn til að tryggja sér sinn hlut af hagnaðinum af Kaupþingsbréfunum sem þeir eru að kaupa. Spurning hvort við getum ekki fengið eitthvert hald í honum líka. Ég reikna ekki með að það sé nokkuð annað sem ÓÓ geti veðsett okkur sem stendur.“ GÞG svaraði þessu stuttu síðar með tölvubréfi, þar sem aðeins sagði: „Nei, ekkert til þess að veðsetja.“ Ekki verður ráðið af gögnum málsins hvað búið hafi að baki þeim skilningi HBL, sem fram kom í framangreindu tölvubréfi, að greiða ætti út pen- ingamarkaðslán til Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp. þennan dag, en hvað sem því líður verður séð að þegar leið á daginn hafi skilningur hans verið orðinn annar, enda greindi hann nokkrum starfs- mönnum Kaupþings banka hf. frá því í tölvubréfi um miðbik dagsins að til stæði að greiða þetta út 22. sama mánaðar.“ Að heilla sjeikinn Þá segir í dómi Hæstaréttar: „Ráðið verður af tölvubréfum, sem fóru milli starfsmanna bankanna tveggja 19. september 2008, og end- urritum af hljóðrituðum símtölum þeirra að einhverjir þeirra hafi staðið í þeirri trú að til stæði að ákærðu Hreiðar og Magnús myndu hitta MAT næsta dag. Þannig sagði í tölvu- bréfi, sem HBL sendi samstarfs- manni við Kaupþing banka hf. þenn- an dag, að „Hreiðar er að fara að hitta sheikinn á morgun og vildi hafa öll skjöl sem hann þarf að skrifa und- ir með sér. Ég þyrfti því að fá þetta á næstu 10 mínútum.“ Þá lét SÖS orð falla í símtali við HBL um að „Magn- ús sé svona á góðri íslensku going unglued … það er bara bókstaflega eins og framtíð Kaupþings sé að veði hvort hann heillar sheikinn á morg- un“ og við samstarfsmann sinn við Kaupthing Bank Luxembourg S.A. sagði SÖS að það væri „að minnsta kosti ljóst að það er eitthvað ægilega mikið undir því að allt sé klárt … áð- ur en menn hitta hans hátign“. Af samskiptum, sem aðrir starfsmenn bankanna áttu, verður þó einnig séð að einhverjir þeirra hafi talið sig hafa vitneskju um að ákærði Ólafur kæmi hér við sögu, en í tölvubréfi, sem LS (Lara Schweiger, lögmaður á lög- fræðisviði Kaupþings í Lúxemborg) sendi þennan dag til BK (Björns Knútssonar, viðskiptastjóra í Lúx- emborg), SÖS, EH (Eggerts J. Hilm- arsson, framkvæmdastjóra lögfræði- sviðs Kaupþings í Lúxemborg) og ákærða Magnúsar bað hún þá um að fara með sér yfir skjöl til að ganga úr skugga um að ákærði Ólafur fengi þau öll.“ „Við eigum ekki fyrir þessu“  Yfir 60 tölvubréf og endurrit af hljóðrituðum símtölum 19. september 2008 milli starfsmanna Kaupþings hér og í Lúxemborg  Forystumenn Kaupþings hittu Al-Thani við skotveiðar á Englandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfuðstöðvarnar Mikið gekk á 19. september 2008 þegar gengið var frá viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi. Dómur í Al-Thani málinu Elite fiskabúr 54 lítra Verð að eins 13.900 kr. Kauptúni 3 / Garðabæ / Sími: 564-3364 kíktu í heimsókn Ljós og ljósastæði Lok • Dæla • Hitari TILBOÐ Lifandi veslun 14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.