Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 Á krá einni í Buckingham-skíri í Englandi á dögum seinni heims- syrjaldarinnar gengur ungur og reffilegur maður sem nefndur er Hugh Alexander yfir gólfið og býð- ur fallegri konu á besta aldri uppá einn drykk. Þau taka tal saman en við það fær samstarfsmaður Alex- anders, Alan Turing, stórkostlega hugljómun og tekst nánast á sprettinum yfir í kofa bresku leyni- þjónustunnar nr. 8 að ráða tákn dulmálsvélar Þjóðverja, Enigma. Þetta er vendipunktur kvikmynd- arinnar The Imitation Game sem fjallar um afrek og dapurleg örlög Alans Turing sem einnig hefur ver- ið nefndur upphafsmaður tölv- unnar. Í myndinni er Conel Hugh O’Donel Alexander kynntur til sög- unnar sem tvöfaldur breskur meistari í skák, sem er söguleg ónákvæmni því að seinna skiptið sem hann vann titilinn var árið 1956. Þó að Alexander hafi bæði í myndinni – og í reynd – verið lyk- ilmaður og yfirmaður í vinnuhópn- um sem réð dulmálslykilinn þykir ýmsum sem hlutur hans hafi ekki verið metinn að verðleikum. Í grein The Telegraph kemur fram að Alan Turing kallaði hann „næst- um því jafningja sinn“ en starfs- degi sínum lauk hann hjá bresku leyniþjónustunni MI16 árið 1971. Ekki er vitað hvort Alexander kom til Íslands til að fylgjast með Fisc- her og Spasskí að tafli en hann skrifaði ágæta bók um einvígið. Hann tefldi á sjö Ólympíumótum fyrir Stóra-Bretland en fyrsta skráða viðureign hans við íslensk- an skákmann er frá Ólympíu- mótinu í Folkstone í Englandi árið 1933 og andstæðingur hans var Þráinn Sigurðsson. Hann tefldi þrjár skákir við Friðrik Ólafsson á sjötta áratugnum. Á millistríðsárunum tók Alex- ander þátt í hinu merka móti í Nottingham 1936 þar sem skáke- líta heimsins var saman komin með Capablanca, Aljekín, Lasker, Euwe og Botvinnik fremsta í flokki. Það er dálítið snúið að lesa skákstíl hans en mér sýnist Alex- ander hafa nálgast skáklistina sem einhverskonar ráðgátu og ekki haft mikið fyrir því að læra byrjanir og var það ekki óalgeng nálgun á þeim tíma. Styrkur hans jókst þó hröð- um skrefum en breska leyniþjón- ustan MI16 taldi þekkingu hans svo mikilvæga að hann fékk aldrei að tefla austan járntjalds. Hann komst í námunda við „Rússana“ í útvarpseinvígi sem Sovétríkin og Stóra-Bretland háðu á 10 borðum á „góðviðrisdögum“ þjóðanna árið 1946. Bretarnir und- irbjuggu sig vel fyrir keppnina. Auk Alexanders tefldu tveir sem starfað höfðu fyrir leyniþjónustuna á stríðsárunum, Harry Golombek og Stuart Milner Barry. Mikhail Botvinnik var talinn sterkasti skákmaður heims en hann tapaði seinni skákinni við Alexander: Útvarpseinvígi 1946; 1. borð: C.H.’O.D. Alexander – Mikhael Botvinnik Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5 5. a3 Bxc3 6. bxc3 Re7 7. Dg4 cxd4 8. Dxg7 Hg8 9. Dxh7 Da5? 10. Hb1! Dxc3 11. Bd2 Dc7 12. f4 Rbc6 13. Rf3 Bd7 14. Rg5 Hxg5 15. fxg5 O-O-O 16. Dxf7 Dxe5 17. Kd1 Rf5 18. g6 Re3 19. Kc1 De4 20. Bd3 Dxg2 21. He1 Re5 22. Df4 Rf3 23. He2! Dh3 24. Bxe3 e5 25. Df7 dxe3 26. g7 Dg4 27. h3 Dg1 28. Kb2 Dg3 29. Bg6! Rd4 30. g8=D Hxg8 31. Dxg8 Kc7 32. Dh7 Kd6 33. Bd3 e4 34. Dh6 Kc7 35. Hxe3 De5 36. Ka2 Rf5 37. Dg5 Be6 38. Be2 d4 39. Heb3 b5 40. Dd2 d3 41. Bg4 - og Botvinnik gafst upp. C.H.’O.D Alexander og The Imitation Game Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Alexander að tafli. Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín - góð næring fyrir dýrin þín - Ekkert hveiti, soja eða maís Engin erfðabreytt matvæliEngin aukaefni Enginn sykur eða mjólkurafurðir 2.054. - kr. Verð fr á REGAL hunda- og kattafóður Málþingið Nordisk Ungdoms Forum er hluti af samstarfs- verkefni Norrænu upplýsingaskrifstof- anna í Vasa og Jy- väskylä í Finnlandi, í Gautaborg í Svíþjóð og á Akureyri. Einnig er samstarf við Ung- mennaráð Norður- landaráðs, Norræna félagið í Svíþjóð, skrifstofu Norð- urlandaráðs og upplýsingadeild Norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefnið hófst hjá okkur síðsta haust með vinnusmiðjum ung- menna frá löndunum þremur í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi dagana 27.-30. októ- ber 2014. Markmið okkar voru meðal annars að öðlast skilning á: a) hvað það er að vera ungur og virkur þátttakandi í samfélagi á Norðurlöndum í dag, b) hvernig á að koma málefnum sínum áfram og c) hvað norrænt samstarf færir annars vegar ungu fólki og hins vegar samfélaginu í heild sinni. Við tókum þátt í opnun þings Norðurlandaráðs sem áheyrnarfull- trúar sem og í móttöku hjá sendi- ráði Íslands, heimsóttum Frys- huset, Kulturhuset LAVA og fengum að fræðast um aðferðina Speak Truth to Power. En vinnu- stofur og umræðuhópar okkar voru meginmarkmið ferðarinnar. Við skiptum okkur í hópa eftir þem- unum fjórum: Tungumál og sjálfs- mynd, velferð á Norðurlöndum, umhverfi og neysla og framtíð í samstarfi Norðurlanda. Vinnustof- unum var stjórnað af meðlimum Norðurlandaráðs æskunnar. Um- fjöllunarefnin voru í raun mjög ólík en tengdust öll norrænu samstarfi og norrænni sjálfsmynd okkar. Hvað merkir hugtakið norræn vel- ferð? Hvert er mikilvægi þess að skilja hvert annað á Norð- urlöndum? Hvernig getum við haft áhrif á líkamlegt og andlegt óheil- brigði, brottfall úr skólum, ungmennaábyrgð og atvinnuleysi ungs fólks? Hvernig getum við náð jafnvægi á sviðum neyslu og sjálf- bærrar þróunar, jafnvel stefnt að plastpokalausri Akureyri fyrir árið 2030? Það má segja að allir þátttak- endur vinnustofanna hafi komið úr ólíkum áttum og höfðum við því oft mjög ólíkar skoðanir. Nemendur í stjórnmálafræði, tilvonandi her- menn og íþróttamenn sem dæmi – öll áttum við það sameiginlegt að hafa áhuga á norrænu samstarfi. Með því að skiptast á hugmyndum og mismunandi reynslu milli landanna komu fram heldur bet- ur fjölbreytt viðhorf. Miklar umræður urðu um atvinnuleysi ung- menna sem dæmi. Ís- lendingum fannst til- tölulega auðvelt að fá atvinnu í sínum heimabæ, en aftur á móti sögðust Svíarnir varla geta fengið vinnu án þess að hafa tengsl inn í fyrirtækið, fæst höfðu þau verið í sumarvinnu. Þá sögðust Svíarnir fá styrk til náms og Finnarnir töldu sig hafa besta menntakerfið innan Norðurlanda. Að lokum kynntum við niðurstöður vinnustofanna fyrir þingmönnum hvers lands fyrir sig, svo hægt væri að fá athugasemdir og miða að breytingum til hins betra. Í ferðinni tókum við upp mynd- bönd sem munu verða klippt saman í stuttmyndina Skrifað í skýin. Myndin mun verða frumsýnd á degi Norðurlandanna 23. mars og í framhaldi af því stefnum við á að sýna hana í æskulýðsstarfi, skólum og á öðrum vettvangi til að opna augu almennings fyrir þeim tæki- færum sem liggja í samstarfi Norð- urlandanna. Næstkomandi mánudag, 16. febr- úar, ætlum við að halda sambæri- legan norrænan ungmennavettvang í Hofi og bjóðum alla áhugasama velkomna! Meðal fyrirlesara eru Höskuldur Þórhallsson, forseti Norðurlandaráðs og formaður Ís- landsdeildar Norðurlandaráðs, Katrín Jakobsdóttir alþingismaður, Rannveig Magnúsdóttir, verkefn- isstjóri vistheimtarverkefnisins Landverndar, Hulda Hólmkels- dóttir, Norðurlandaráði æskunnar, og Logi Már Einarsson, formaður stjórnar Akureyrarstofu. Að því loknu ætlum að ræða þemun fjögur með tilliti til þeirrar niðurstöðu sem við fengum og fá að heyra ný sjónarmið um norrænt samstarf. Nordisk Ungdoms Forum í Hofi 16. feb. Eftir Ölmu Stefánsdóttur » Það má segja að allir þátttakendur vinnu- stofanna hafi komið úr ólíkum áttum og höfðum við því oft mjög ólíkar skoðanir. Alma Stefánsdóttir Þátttakandi í verkefninu Nordisk ungdomsforum og áhugamanneskja um norrænt samstarf. AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ingólfs- stræti 19, Reykjavík. Í dag, laugardag: Biblíu- fræðsla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðu- maður: Eric Guðmundsson. Skemmtilegt barna- og unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum | Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Í dag, laugar- dag: Guðsþjónusta kl. 12. Bein útsending frá Reykjavíkursöfnuði. AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri | Eiðs- vallagötu 14, Gamli Lundur. Í dag, laugardag: Biblíurannsókn kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf. AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum | Blikabraut 2, Keflavík. Í dag, laugardag: Biblíu- fræðsla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðu- maður er Kristján Ari Sigurðsson. AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Eyravegi 67, Selfossi. Í dag, laugardag: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Stef- án Rafn Stefánsson. Barna- og unglingastarf. AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði | Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Í dag, laugardag: Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Jens Dani- elsen. Biblíufræðsla kl. 11.50. Skemmtilegt barna- og unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. Súpa og brauð eftir samkomu. AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta í Ak- ureyrarkirkju kl. 11. Prestur er sr. Sunna Dóra Möller. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón sr. Hildur Eir Bolladóttir og Hjalti Jóns- son. AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Núpalind 1, Kópavogi. Biblíufræðsla, söngur og bæn. ÁRBÆJARKIRKJA | Tónlistarguðsþjónusta kl. 11, sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Anna Sigríður Helgadóttir syngur við undirleik Krisztinu Kalló Szklenár. Sunnudaga- skólinn er á sama tíma í safnaðarheimili kirkj- unnar í umsjá Bryndísar Evu og Þorkels. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Viðari Stefánssyni guð- fræðingi, sem annast samverustund sunnu- dagaskólans. Kammerkór Áskirkju syngur. Org- anisti er Magnús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu. ÁSTJARNARKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Bolludagshátíð. Kötturinn sleginn úr kass- anum og síðan verða bollur með rjóma og sultu á boðstólum. Gospelguðsþjónusta kl. 20. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra. Meðhjálpari er Siguður Þórisson og prestur sr. Kjartan Jóns- son. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni hafa Fjóla og Jón Örn. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Guðs- þjónusta kl. 11. Séra Gunnar Kristjánsson pré- dikar og þjónar fyrir altari, félagar úr Karlakór Kjalnesinga leiða söng, organisti Páll Helga- son. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Steinunnar Leifsdóttur og Stein- unnar Þorbergsdóttur. Messa kl. 11. Dr. Sig- urjón Árni Eyjólfsson hérðasprestur þjónar. Fé- lagar úr kór Breiðholtskirkju leiða söng, organisti er Örn Magnússon. Kaffi í safn- aðarheimili á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Bibl- íusaga, hress sunnudagaskólalög og fallegar bænir. Allir krakkar fá límmiða á sunnudaga- skólaveggspjaldið sitt. Bára og Daníel leiða messuna. Jónas Þórir leikur undir. Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. María Ágústsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Jónas Þórir leikur á orgelið og stjórnar félögum úr Kór Bústaðakirkju. Messuþjónar lesa bænir og ritningarlestra. Molasopi eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa í Digraneskirkju kl. 11. Prestur séra Magnús Björn Björnsson. Organisti Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Félagar úr Kammerkór Digraneskirkju sjá um söng. Sunnudagaskóli á neðri hæð. Súpa og sam- vera í safnaðarsal eftir messu. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, Hjálmar Jóns- son þjónar. Katla Kristjánsdóttir les bæn. Ritn- ingarlestrana lesa Geir R. Tómasson og Anna Ýr Böðvarsdóttir. Dómkórinn, organisti Kári Þormar. Barnastarf á kirkjuloftinu, messukaffi. Æðruleysismessa er kl. 20. Á miðvikudags- kvöld frá 18.2 til 25.3. verður námskeið, Sam- tal um trú, kl. 18-21 í umsjón Karls Sig- urbjörnssonar biskups og sr. Sveins Valgeirssonar. Ekkert námskeiðsgjald en boðið er upp á létta máltíð við vægu verði. Skráning í síma 520-9700 eða domkirkjan@domkirkj- an.is. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sönghópurinn Boudoir syngur undir stjórn Julians Hewlett organista. Á sama tíma er sunnudagaskólinn í umsjón Péturs og Hreins. Kaffisopi eftir stundina. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn. Kvöldvaka kl. 20. Gestur Pálmason markþjálfi kemur í heimsókn. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Góð fræðsla, mikill söngur, brúðuleikrit og fleira. Hressing í lok stundar. Kl. 13.30 verður samkoma með lofgjörð og prédikun orðsins. Ágætis aðstaða fyrir börn en ekki gæsla. Kaffi og samvera í lok stundar. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðs- Orð dagsins: Skírn Krists. (Matt. 3)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.