Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 37
✝ Helga KristínKristvalds- dóttir fæddist í Keflavík 10. febr- úar 1931. Hún and- aðist á Heilbrigð- isstofnun Vestur- lands, Stykkishólmi, 5. febrúar 2015. Foreldrar henn- ar voru Kristvaldur Eiríksson, f. á Bjarnastöðum, Selvogshreppi í Strandasýslu, 12. janúar 1899, d. 13 mars 1993, og Magðalena Marselía Jónsdóttir, f. í Purkey, Klofningshreppi, Dalasýslu, 1. júní 1904, d. 17. júní 1938. Systkini hennar eru Eiríkur Breiðfjörð, f. 1934, d. 1998, Jó- hanna Þuríður, f. 1936, og Jón Breiðfjörð, f. 1937. Helga giftist Braga Húnfjörð Zóphaníassyni 31. desember 1955. Hann var skipasmíða- meistari og vélstjóri frá Víg- hólsstöðum, Fellströnd, f. 3. maí 1926, d. 30. nóvember 1991. For- eldrar Braga voru Zóphanías Bjarnason, f. 7. júní 1903, d. 21. apríl 1974, og Anna Ragna Kristjánsdóttir, f. 8. nóvember Ragna Sól, f. 2004. 7. Bogi Thor Bragason, f. 1966, maki Sólveig J. Ásgeirsdóttir, f. 1966, börn þeirra a) Lárus Thor, f. 2002, b) Ásgeir Thor, f. 2008, fyrir á Sól- veig Kristínu Lilju, f. 1990, og Sigurð Fannar, f. 1993. 8. Sig- ríður Laufey, f. 1969, maki William Stephen Carson, f. 1959, barn þeirra er Belinda Björg, f. 2002, fyrir á Sigríður, Berglindi Rós, f. 1991, barnsfaðir Sig- urður Páll Hauksson, f. 1968. Þegar Helga er sjö ára gömul missir hún móður sína úr lungnabólgu og þá er hún er tekin í fóstur til þriggja móð- ursystkina sinna úti í Purkey á Breiðafirði. Helga var á Hús- mæðraskólanum á Staðarfelli einn vetur. Helga var húsmóðir og starfaði einnig lengst af sem matráðskona í eldhúsinu á ST Fransiskusspítala og vann þar í allt nær 33 ár. Helga var afar leikin með prjónana og það voru ófáar flíkurnar sem hún prjón- aði á barnabörnin. Hún hafði gaman af því að spila á spil, syngja með kór eldri borgara í Stykkishólmi á meðan heilsan leyfði. Hún var í Kvenfélaginu og bakaði ófáar pönnsunar og kleinurnar. Helga flutti á Dval- arheimilið í Stykkishólmi í júní á síðasta ári. Útför Helgu Kristínar fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag, 14. febrúar 2015, og hefst athöfnin klukkan 13. 1905, d. 30 nóv- ember 1931. Helga og Bragi eignuðust átta börn: 1. Tómas Magni, f. 1955. 2. Magðalena Kristín, f. 1957, d. 2004, sambýlismaður Guðbjörn Karl Ólafsson, börn þeirra a) Bragi Hlífar, f. 1992, b) Thelma Dögg, f. 1995. 3. Anna Ragna, f. 1959, börn hennar a) Helgi Þormar, f. 1986, barnsfaðir Þorbjörn Guð- björnsson, b) Arnar Heiðmar, f. 1996, barnsfaðir Hilmar Sig- ursteinsson. 4. Margrét Stein- unn, f. 1961, maki Valdimar Ólafsson, f. 1958, sonur þeirra er Björn Breiðfjörð, f. 1995. 5. Hólmfríður Jóna, f. 1961, maki Geir Sigurður Sigurjónsson, f. 1959, börn þeirra a) Sigurjón Bragi, f. 1987, b) Ragnheiður Braga, f. 1989, c) Helga Kristín Braga, f. 1994, d) Margrét Braga, f. 1996. 6. Björg Ólöf Bjarnadóttir, f. 1964, d. 2009, börn Bjargar eru a) Bjarni Birg- ir, f. 1983, b) Þormar Elí, f. 1989, c) Hafsteinn Veigar, f. 1995, d) Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar hugurinn reikar til mömmu eru nýbakaðar pönnukökur og móttökurnar þegar komið var til Stykkis- hólms. Börnin okkar elskuðu að fara vestur í Stykkishólm til ömmu sinnar. Þetta var fyrir þeim eins og að komast í ævintýraland ömmu, frjálsræðið, útiveran við sjóinn og hestaferðir. Mamma kom til okkar í or- lofsferð fyrir nokkrum árum. Fórum við með henni til Kefla- víkur til að finna æskuheimili hennar sem pabbi hennar byggði. Það sem okkur kom á óvart var hvað hún var fljót að átta sig á hvar húsið var stað- sett, þar sem hún hafði flutti í burtu sjö ára gömul og ekki komið þangað síðan. Svo var að sjálfsögðu farið á kaffihús í Keflavík og fengið sér kaffi og kökur að hætti mömmu. Mamma bjó inni á heimili okkar í nokkra mánuði á síðasta ári eftir að heilsunni hrakaði. Þá kynntumst við mömmu ennþá betur, hvað hún var minnug og húmorinn var sko í lagi. Hún elskaði að láta stjana við sig en var alltaf tilbúin að gefa einhvað á móti. Elsku mamma, takk fyrir öll yndislegu árin sem við höfum átt saman. Þín dóttir og tengdasonur, Hólmfríður og Geir. Það er til gömul mynd af þér þar sem þú situr svo ósköp fal- leg og fín og þú pírir augun þín á móti geislum sólarinnar, þú situr þarna út í guðs grænni náttúrunni úti í eyjunni þinni Purkey. Báðum megin við þig sitja fóstrur þínar tvær, Hólm- fríður og Jóna, þétt við hlið þér, sennilega ertu nýkomin til þeirra, lítil stúlka að feta sín fyrstu spor út í lífið aðeins sjö ára gömul. Þeim hefur eflaust þótt þú mikill happafengur og þú hefur örugglega blásið lífi og gleði í fábrotið líf þeirra. Það kemur ekki annað til greina þar sem augu þín eru svo full af lífi og glettni. Elskuleg móðir mín og tengdamóðir, kvaddi þennan heim að kvöldi 5. febrúar síðast- liðinn, en hún var orðin þreytt og var eflaust fegin að fá hvíld- ina og erum við svo þakklát að hún fékk að fara með ró og spekt og sátt við allt og alla, lífið og tilveruna. Einhvernveginn er hún amma Helga nálæg en hún lifir áfram í hjarta okkar og nú finnst okkur eitthvað mikið vanta, hennar er sárt saknað en við megum samt ekki hugsa út frá okkur, heldur verðum við að sleppa tökunum af henni, leyfa henni að fara frjálsri ferða sinna, á vit nýrra ævintýra, þar sem hún hefur ekki lengur þörf fyrir göngu- grindina sína og þar sem hún hefur líka fulla sjón og getur lesið langt fram eftir hverri nóttu, maulandi súkkulaði fyllt- an brjóstsykur og lifað sig inn í íslenskan skáldaheim eða þá ævisögur af einhverjum íslensk- um hvunndagshetjum, ef þá tími vinnst til, það er ef hún er ekki á fullu að spila félagsvist með skemmtilegu fólki sem er horfið yfir móðuna miklu eða þá að syngja með einhverjum engla- kór, uppáhaldslögin sín eins og til dæmis „Undir dalanna sól“. En við treystum því og trúum að nú líði henni vel. Þetta vetrarveður sem búið er að geisa um allt land á und- anförnu átti ekki vel við hana, en öll él birtir upp um síðir og finnst okkur texti Jóns Kr. Jó- hannessonar frá Skáleyjum við lagið sem er betur þekkt undir laginu Góða tungl eiga svo vel við hana og ekki síst nú, þegar allra veðra er von en Góa er á næsta leiti og vorið góða er þarna einhvers staðar í fjarska en vonin eftir góðu vori björtu og hlýju, býr í brjósti okkar allra. Bráðum vagga bjartar nætur blómi þínu föla jörð. Flýgur lóa senn um sveitir, senn er vor um Breiðafjörð. Hlustar bær í björtu túni bláa morgna, kvöldin rjóð. Meðan svásir sunnan vindar syngja gömul hörpuljóð. (Jón Kr. Jóhannesson.) Viljum við koma innilegum þökkum til starfsfólks á Dval- arheimili aldraða í Stykkishólmi fyrir góða umönnun og velvild í hennar garð, einnig Heilbrigð- isstofnun Vesturlands, Stykkis- hólmi. Og við getum ekki annað en hugsað til þín, elsku amma Helga, okkur þótti svo vænt um þig en þú veist það nú ábyggi- lega nú þegar. Góða ferð, elsku Helga amma. Bogi, Sólveig og börn, líka Flóki litli spóaungi. Hólmfríður Jóna Bragadóttir. Í dag kveðjum við ástkæra ömmu okkar. Eftir sitja góðar stundir og minningar sem við áttum með þér og erum við ótrúlega þakk- lát fyrir þann tíma sem við feng- um með þér á síðasta ári. Þegar við vorum krakkar var einn af hápunktunum að koma í Hólminn og fá ömmupönnukök- ur, eyða sumrinu hjá þér og fara á hestbak með Boga. Við eigum ákaflega góðar minningar frá þessum árum og þótti alltaf jafngaman að koma í Hólminn. Þú náðir oft að láta okkur skella upp úr þó að það hafi ekki verið ætlunin. Eitt atvik sem kom upp í huga okkar var þegar þú varst nýbúin í augn- aðgerðinni sem heppnaðist ekki alveg eins og hún átti að gera. Læknirinn sem framkvæmdi að- gerðina gerði grein fyrir stöð- unni, að sjónin á öðru auga kæmi líklegast ekki aftur og vildi fá að vita hvernig önnur skynfæri virkuðu og spurði hvernig heyrnin hjá þér væri. Þú horfðir mjög stíft og ákveðið á lækninn og svaraðir: „Ég heyri bara það sem ég vil heyra!“ Við áttum mjög erfitt með að skella ekki upp úr á eins alvarlegum fundi. En þetta var alveg satt hjá þér, ef umræðan var um efni sem þú vildir síður ræða fengum við engin viðbrögð frá þér eins og þú heyrðir ekki í okkur og á öðrum stundum svaraðirðu okkur í nokkurra metra fjarlægð ef þú vildir vera með í umræðunni. Þú hefur alltaf verið ótrúlega dugleg kona sem vannst mikið og er það algjörlega aðdáun- arvert að hafa getað alið upp öll þessi börn samhliða vinnu. Það sem var ótrúlegast var að á 33 ára starfsferli á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi varstu aðeins fimm sinnum veik og vannst til 73 ára aldurs. Nei, þú varst sko ekki vön að kvarta. Loksins eftir 23 ára aðskilnað eruð þið afi sameinuð á ný og eruð örugglega að sigla um höf- in blá á bátnum hans afa. Það var heiður að eiga þig sem ömmu, þú varst sannkall- aður harðjaxl með húmor. Þín barnabörn, Sigurjón, Ragnheiður, Helga Kristín og Margrét Hólmfríðar- og Geirsbörn. Helga Kristín Kristvaldsdóttir MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 ✝ Haukur Krist-ófersson fædd- ist í Hrísey 22. mars 1935. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 7. febrúar 2015. Foreldrar hans voru hjónin Jenný Jörundsdóttir, f. 1.9. 1909, d. 4.2. 1985, og Kristófer Guðmundsson, f. 1.7. 1903, d. 3.8. 1977. Systkini Hauks eru María, f. 13.3. 1940, og Guðmundur, f. 26.9. 1942, d. 4.1. 1959. Eftirlifandi eiginkona Hauks er Gunnhildur Njálsdóttir, f. 8.3. 1929. Foreldrar hennar voru hjónin Hanna Kristín Baldvins- dóttir, f. 13.3. 1905, d. 7.8. 1987, og Njáll Stefánsson, f. 29.9. 1905, d. 25.7. 1967. Haukur og Gunn- hildur eignuðust sex börn. Fyrir átti Gunnhildur dóttur. Barnabörnin eru 18 og barnabarna- börnin eru orðin 21. Þau hjónin höfðu gaman af ferðalög- um; fyrst með lítið tjald, svo tjaldvagn og síðustu árin nutu þau þess að dvelja á sumrin í hjólhýsinu sínu í Vagla- skógi. Haukur var til sjós allmörg ár. Lengst af starfaði hann þó sem vélstjóri hjá KEA. Fyrst í beina- verksmiðjunni og síðan í frysti- húsinu þar til hann lét af störfum vegna veikinda árið1998. Útför Hauks fer fram frá Hrís- eyjarkirkju í dag, 14. febrúar 2015, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku pabbi. Margs er að minn- ast, margs er að sakna. Eins sárt og það er að þú sért farinn til nýrra heimkynna er það okkur huggun í sorginni að vita til þess að vel hefur verið tekið á móti þér þar. Þær hafa staðið vaktina Gunnhildur og Tanja, svo nú getið þið aftur tekið ykkar góðu göngu- túra saman. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Valdimar Briem) Við þökkum þér samfylgdina elsku pabbi. Þangað til við sjáumst aftur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Elsku mamma, missir þinn er mikill og biðjum við góðan Guð að styrkja þig á þessum erfiðu tím- um. Hvíldu í friði elsku pabbi. Fyrir hönd barnanna þinna, Svanhildur Hauksdóttir. Komið er að leiðarlokum hjá þér elsku afi. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Nú hverfi oss sviðinn úr sárum og sjatni öll beiskja í tárum, því dauðinn til lífsins oss leiðir, sjá, lausnarinn brautina greiðir. Þótt líkaminn falli að foldu og felist sem stráið í moldu, þá megnar Guðs miskunnarkraftur af moldum að vekja hann aftur. Í jörðinni sáðkornið sefur, unz sumarið ylinn því gefur. Eins Drottinn til dýrðar upp vekur það duft, sem hér gröfin við tekur. Sá andi, sem áður þar gisti frá eilífum frelsara, Kristi, mun, leystur úr læðingi, bíða þess líkams, sem englarnir skrýða. Og brátt mun sá konungur kalla, sem kemur að fylla von alla. Hann græðir á fegurri foldu þau fræ er hann sáði í moldu. Elsku afi, hvíl í friði. María, Björgvin Haukur og Narfi Freyr. Haukur Kristófersson HINSTA KVEÐJA Jæja elsku afi, nú ert þú farinn til Tönju þinnar. Ef ég þekki ykkur rétt þá eruð þið komin á göngu út á bryggju. Á meðan Tanja skoðar fuglana fylgist þú með þeim sem koma með ferjunni. Þú fylgdist vel með öllu, því veit ég að þú munt fylgjast vel með mér. Ég bið Guð að styrkja ömmu í sorginni. Kveðja, Agla Brá. Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19 • 210 Garðabær sími 842 0204 • www.harpautfor.is Þökkum auðsýndan hlýhug og stuðning allan við óvænt fráfall okkar ástkæra EGILS ÓLAFSSONAR blaðamanns og sagnfræðings, Búðavaði 4, sem lést miðvikudaginn 28. janúar í Borgarnesi. Sérstakar þakkir fá allir þeir sem hafa lagt inn á ferðasjóð dóttur hans og minnst hans með ýmsum hætti. Ummælin eiga eftir að ylja fjölskyldunni um ókomna tíð. Fyrir hönd aðstandenda, . Unnur Lárusdóttir, Ólafur Lárus Egilsson og Urður Egilsdóttir. Af alhug sendum við þakkir til allra er sýndu okkur samúð og virðingu við andlát og útför elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURLAUGAR JÓNU JÓNSDÓTTUR, Gullsmára 7, áður Víðihvammi 19, Kópavogi. Guð leiði ykkur áfram til góðra verka. . Birna Guðmundsdóttir, Sverrir Davíð Hauksson, Sigríður Guðmundsdóttir, Heimir Þór Sverrisson, Jón Orri Guðmundsson, Júlía Ágústsdóttir, Benedikt Þór Guðmundsson, Guðrún Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Alúðar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, RÖGNU BJARNADÓTTUR, Garðabæ. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir einstaka umönnun á liðnum árum. . Ólafur G. Einarsson, Ásta R. Ólafsdóttir, Þröstur Sigurðsson, Ólafur Þór Þrastarson, Fannar Steinn Þrastarson, Viktor Ingi Þrastarson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar hjartkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, NÖNNU I. HELGADÓTTUR, Boðaþingi 22, Kópavogi. . Kristján Fr. Guðmundsson og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.