Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 69

Bókasafnið - 01.06.2014, Blaðsíða 69
Fyrir hálfri öld síðan var verið að leita að heiti á nýstárlegu tæki sem borist hafði til landsins. Í útvarps­ þættinum „Veðrið í vikunni“ þann 19. desember 1964 ræddi Páll Bergþórsson þáverandi veðurstofustjóri um rafeindareiknivélina, „þá galdranorn rafeindatækninnar sem menn leita til með erfiðastar ráðgátur nú á dögum“. Hann lagði til að orðið vala yrðið notað um hana. Vala er smábein í hækillið sauðkindar á milli fótleggjar og lang­ leggjar sem börn fyrr á tímum tylltu upp á höfuð sér áður en þau fóru með eftirfarandi þulu: Segðu mér nú, Vala mín, Það sem ég spyr þig um; Ég skal með gullinu gleðja þig Og silfrinu seðja þig, Ef þú segir mér satt En í eldinum brenna þig Og koppinum kæfa þig Ef þú lýgur að mér. Því næst báru þau upp spurningu sem svara mátti neitandi eða játandi. Svo steyptu þau völunni á gólfið og lega völunnar ákvarðaði svarið ﴾Baldur Jónsson, 1994, bls. 36﴿. Orðið vala varð þó ekki fyrir valinu heldur orðið tölva. Tölva er einstakt nýyrði myndað af orðunum tala og völva ﴾orðin vala og völva eru skyld﴿ sem kom til greina að yrði tekið upp í öðrum Norðurlöndum að íslenskri fyr­ irmynd en varð ekki úr ﴾Baldur Jónsson, 1994, bls. 33﴿. Undanfarin misseri hefur nýtt hugtak verið að ryðja sér til rúms á sviði upplýsingatækni sem á ensku nefnist big data. Hugtakið er að vissu leyti tískuorð, notað í auglýsingaskyni en án þess að fyrir liggi almenn skil­ greining á því. Hugtakið vísar í stuttu máli til þess að upplýsingatæknin í dag gerir okkur kleift að mæla, safna saman og vinna úr margfalt meira magni af gögnum en áður. Líkt og fyrir hálfri öld síðan er nú á ferð nýtt hugtak sem vísar með nánast mótsagnakenndum hætti bæði til stærðfræðilegrar fullvissu og yfirskilvitlegrar forspár­ hyggju á sama tíma. Bylting? Á haustráðstefnu Advania sem haldin var í sept­ ember 2013 hélt Páll Ríkharðsson dósent við viðskipta­ deild Háskólans í Reykjavík erindi undir yfirskriftinni „Big Data“ ﴾Páll Ríkharðsson, 2013﴿. Hann fjallaði um möguleikana á nýtingu big data fyrir viðskiptafræði, svið sem er nefnt viðskiptagreind. Ekki er komin hefð á Ís­ landi fyrir þýðingu á hugtakinu, en Jón Arnar Jónsson, tölvunarfræðingur, hefur lagt til orðið gagnagnótt sem mér þykir tilvalin þýðing. Í tölvutækri íslenskri orðabók á vefnum snara.is er eftirfarandi skilgreining á orðinu of- gnótt: feikimikið af e-u, fullmikið af e-u tölvutækni nútímans með ofgnótt upplýsinga Samkvæmt svari við fyrirspurn minni til tölvu­ orðanefndar Skýrslutæknifélags Íslands er hins vegar annað orð talið heppilegra yfir big data en það er orðið gríðargögn. Kvenkyns orðið gríð merkir ákafi eða áfergja og er oftast notað sem forliður við lýsingarorð til þess að undirstrika mikilleika, til dæmis gríðarstór, gríðarmikill og gríðarlegur. Orðið gríð er einnig notað í orðasambandinu „í gríð og erg“ en hefur þá neikvæðari blæ þar eð kven­ kynsorðið ergi merkir „geðvonska; ákafi“ og ergja „gremja; ákafi, ágirnd“ ﴾Guðrún Kvaran, 2005﴿. Það er skoðun höfundar að orðið gagnagnótt eigi betur við og Hrafn H. Malmquist útskrifaðist með MLIS­gráðu í febrúar 2013 og hafði fyrir BA­ gráðu í stjórnmálafræði. Hann hóf störf við skylduskiladeild Landsbókasafns Íslands – Háskólasafns á árinu 2013 þar sem hann sérhæfir sig í rafrænu efni. Hráefni þekkingarhagkerfisins Hrafn H. Malmquist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.