Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 11
Tröllaskaga og brautarstjóri starfs-
brautar 2011-2013.
Bjarkey var varaþingmaður
Norðausturkjördæmis fyrir Vinstri
hreyfinguna – grænt framboð 2004-
2013 og hefur verið alþingismaður
Norðausturkjördæmis frá 2013.
Hún var bæjarfulltrúi og bæjarráðs-
kona 2006-2013 og hefur setið í ýms-
um nefndum bæjarins, s.s. í fræðslu-
nefnd, frístundanefnd og
húsnæðisnefnd og var formaður
menninganefndar.
Bjarkey sat í nemendaverndar-
ráði Grunnskóla Ólafsfjarðar 2008-
2012, var varamaður í hafnaráði
Siglingastofnunar Íslands 2009-
2013, situr í flokksstjórn Vinstri
hreyfingarinnar – græns framboðs
og kjördæmaráði VG – norðaustur,
hefur verið formaður og gjaldkeri í
kjördæmaráði og svæðisfélagi
Fjallabyggðar. Hún tók þátt í inn-
leiðingu Olweus-eineltisáætlunar-
innar í Grunnskóla Ólafsfjarðar,
kom að skipulagningu og vinnu við
blúshátíðir í mörg ár og gjaldkeri og
einn af stofnendum foreldrafélags
grunnskólans í Ólafsfirði. Þá var
hún varaformaður í slysavarnadeild
kvenna og gjaldkeri í Bandalagi
kennara á Norðurlandi eystra.
Því verður ekki á móti mælt að
Bjarkey er afar samfélagslega sinn-
uð: „Allt sem viðkemur samfélags-
málum heillar mig. Ég nýt þess að
vinna með fólki á öllum aldri og tak-
ast á við ögrandi verkefni.
Ég á tvo hunda, hef gaman af al-
mennri heilsurækt og útivist og nýt
þess að ferðast bæði innanlands og
erlendis. Við hjónin erum mjög með-
vituð um umhverfi okkar og viljum
vernda bæjarmyndina hér í Ólafs-
firði. Það er ein af ástæðum þess að
við höfum tekið í gegn húsnæði í
Ólafsfirði til að „lyfta bæjarmynd-
inni“ þar sem við rekum nú kaffi- og
gistihús, sem og hús rétt við bæjar-
mörkin sem við leigjum út.“
Fjölskylda
Eiginmaður Bjarkeyjar er Helgi
Jóhannsson, f. 13.9. 1964, útibús-
stjóri. Foreldrar hans eru Jóhann
Helgason, f. 1.10. 1940, húsasmiður,
og Hildur Magnúsdóttir, 7.2. 1942,
fyrrverandi starfskona á Dval-
arheimilinu Hornbrekku.
Dóttir Bjarkeyjar og Helga er
Jódís Jana Helgadóttir, f. 11.1. 1999,
menntaskólanemi á Ólafsfirði.
Fyrri maður Bjarkeyjar er Páll
Ágúst Ellertsson, f. 12.8. 1953, mat-
reiðslu- og framreiðslumaður.
Dóttir Bjarkeyjar og Páls er
Klara Mist Pálsdóttir, f. 11.10. 1987,
þjóðfræðingur og meistaranemi í
friðar- og átakafræðum í Coventry
University.
Sonur Bjarkeyjar og Steinars Vil-
hjálmssonar, f. 2.2. 1956, vélstjóra,
er Tímon Davíð Steinarsson, f.
20.11. 1982, kælitæknir í Reykjavík,
í sambúð með Eyrúnu Ösp Sigurð-
ardóttur og er sonur þeirra Tristan
Amor Tímonarson, f. 2.6. 2011.
Systkini Bjarkeyjar eru Hrólfdís
Helga Gunnarsdóttir, 13.4. 1972,
húsfreyja í Danmörku, og Ásgeir
Gunnarsson, f. 24.9. 1975, viðskipta-
og tölvunarfræðingur og ráðgjafi
hjá Capacent, búsettur í Hafnar-
firði.
Foreldrar Bjarkeyjar voru Klara
Björnsdóttir, f. 3.9. 1945, d. 30.6.
2010, matráður, og Gunnar Hilmar
Ásgeirsson, f. 20.6. 1942, d. 1.10.
2010, vélstjóri.
Úr frændgarði Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur
Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir
Jóhanna Sigríður Sigvaldadóttir
húsfreyja á Siglunesi og Siglufirði
Hafliði Jónsson
bóndi á Stóra-Grindli í Fljótum,
skipstjóri á Siglufirði
Guðrún Margrét Símona Hafliðadóttir
húsfreyja á Siglufirði
Ásgeir Guðni Gunnarsson
forstöðumaður og sundlaugarvörður
á Siglufirði
Gunnar Hilmar Ásgeirsson
vélstjóri, lengst á Siglufirði
Una Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Reyðarfirði
Gunnar Bóasson
útvegsbóndi í Teigagerði og Bakkagerði
í Reyðarfirði
Klara Bjarnadóttir
húsfreyja á Akureyri
Jón Júlíus Halldórsson
skipstjóri á Akureyri
Stefanía Jónsdóttir.
verkakona og húsfreyja á
Raufarhöfn
Björn Olsen Sigurðsson.
verkamaður, síðast búsettur í Neskaupstað.
Klara Björnsdóttir,
matráður, lengst búsett
á Siglufirði
Katrín Björnsdóttir
húsfreyja á Einarsstöðum og
Melgerði í Glerárþorpi
Sigurður Gísli Vigfússon
bóndi á Einarsstöðum í Kræklingahlíð,
síðast bús. á Akureyri.
Hjá ömmu Bjarkey og Tristan Amor.
ÍSLENDINGAR 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
Reykjavík Veigar Óli Veigarsson fæddist 26. mars 2014. Hann vó 4.400 g og var
54 cm langur. Foreldrar hans eru Veigar Þór Sturluson og Sigurlaug Hrönn
Magnúsdóttir.
Nýr borgari
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Steindór Jónsson hefur rekið mötuneyti á virkjanasvæðum frá1988. Hann sá um mötuneytið í Blönduvirkjun og á Kára-hnjúkasvæðinu og hefur verið síðastliðin tvö sumur á Þeista-
reykjavæðinu. Svo hefur hann séð um mötuneytið í Kröfluvirkjun
síðastliðin 20 ár. „Maður kynnist mjög mörgu fólki frá öllum heims-
álfum í þessari vinnu og svo hittir maður suma með reglulegu milli-
bili, það er mikið til sama fólkið sem vinnur við þessar virkjanir.
Starfsmenn hér í Kröfluvirkjun eru tíu til fimmtán, svo fjölgar á
sumrin þegar unglingarnir koma í tímabundin verkefni. Konan mín
hefur verið með mér í þessu og svo höfum við ráðið starfsfólk eftir
umfangi Verkefna á virkjunarsvæðunum. Við höfum búið á Egils-
stöðum síðan árið 2005 en verið með aðsetur á Mývatnssvæðinu og
við erum að flytja okkur meira þangað.“ Þar áður bjó Steindór á
Blönduósi og var með veitingarekstur í Olísskálanum þar.
Steindór segir mikið að gera hjá sér og lítill tími gefist fyrir
áhugamál, hann sé heimakær en honum finnst samt einnig gaman
að ferðast.
Eiginkona Steindórs er Anna Þórný Jónsdóttir. Hann á tvö börn,
Þórunni og Jóni Elvari, með fyrri eiginkonu sinni, Sigríði Friðriks-
dóttur, en hún lést árið 2004. Anna Þórný á eina dóttur, Huldu Rós.
„Ég ætla að reyna að vera í Reykjavík á afmælisdaginn ef veður
leyfir, fólkið mitt er þar, bæði börn og barnabörn, en þau eru orðin
sex talsins.“
Steindór Jónsson er sextugur í dag
Afmælisbarnið Steindór rekur mötuneytið í Kröfluvirkjun.
Unnið á virkjana-
svæðum í tæp 30 ár
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.