Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 41
FRÉTTIR 41Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
Forsætisráðherra Svíþjóðar, jafn-
aðarmaðurinn Stefan Löfven, er
gamall verkalýðsforingi, stýrði
sambandi málmiðnaðarmanna.
Löfven hefur lengi haft mikinn hug
á því að efla rödd Svía á al-
þjóðavettvangi og ekki síst varð-
andi baráttu fyrir félagslegu rétt-
læti. Fram kemur í Aftonbladet að
hann vilji koma á „nýjum, hnatt-
rænum samningi“ milli launþega
og vinnuveitenda til að tryggja betri kjör. Leiðarljósið gæti þá orðið
sænska módelið svonefnda sem margir aðrir kalla reyndar norræna
módelið. Þá er áhersla lögð á þéttriðið velferðarnet og blandað hag-
kerfi.
Ráðherra norræns samstarfs og framtíðarmála, Kristina Persson,
vinnur náið með Löfven og hefur nú skipað þrjá sérfræðingahópa sem
eiga að vinna saman að þessum málum í eitt ár og þvert á hin ýmsu
ráðuneyti. Þá leggja þeir fram tillögur á borð ríkisstjórnarinnar. „Aðr-
ar þjóðir vilja gjarnan hlusta á okkur,“ segir Persson. „Það veitir okk-
ur eins konar „mjúkt vald“ sem við ættum að nýta meira.“
Starfið mun í miklum mæli taka mið af 17 liða umbótaáætlun Sam-
einuðu þjóðanna sem taka á við af Þúsaldaráætluninni en henni lýkur
á þessu ári. Markmið Svía verða einkum aukið jafnrétti og stefna á
sviði heimsviðskipta sem stuðli að fjölgun starfa.
Thomas Hammarberg, sem ásamt Lóu Brynjúlfsdóttur stýrir hópi
sem einkum mun fást við jafnrétti kynjanna, réttindi barna og mann-
úðarmál, segir Svía hafa margt fram að færa í þessum efnum. „Það
gefur okkur meðbyr að þótt við séum lítil þjóð erum við með umtals-
verða þróunaraðstoð og tökum við fleiri flóttamönnum en aðrar þjóð-
ir,“ segir hann.
Vill kynna sænska módelið
MIKILL METNAÐUR STEFANS LÖFVENS
Stefan Löfven Kristina Persson
LAGERSALA
Allt að 80%
afsláttur
VIÐTAL
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Íslensk kona, Lóa Brynjúlfsdóttir,
hefur í tvö ár veitt forstöðu al-
þjóðadeild sænska Alþýðusambands-
ins, LO. Tíu manns vinna í alþjóða-
deildinni en alls eru félagar í LO um
ein og hálf milljón. Lóa stýrir nú ein-
um hópnum sem á að veita hug-
myndum Stefans Löfvens forsætis-
ráðherra um alþjóðlegt umbótastarf
brautargengi en með henni er við
stýrið 73 ára gamall diplómati,
Thomas Hammarberg. Hópi þeirra,
sem hefst handa í mars, er m.a. ætlað
að leggja fram tillögur um umbætur í
starfi Evrópusambandsins, Samein-
uðu þjóðanna, Efnahags- og sam-
vinnustofnunarinnar (OECD) og Al-
þjóðabankans.
Lóa, réttu nafni Ólöf Brynjúlfs-
dóttir, hefur búið erlendis rúmlega
hálft lífið og er nú í búsett í Stokk-
hólmi með manni sínum, Svíanum
Axel Tandberg, og þremur börnum.
Hún fór á sínum tíma frá Íslandi til
að stunda háskólanám og lauk próf-
um í stjórnmálafræði, sagnfræði og
listfræði við Uppsala-háskóla. Þrem
önnum af náminu varði hún í skipti-
prógrammi á Kúbu, í Namibíu og á
Íslandi.
En síðan lá leiðin til Brussel í
starfsþjálfun á vegum Evrópusam-
bandsins en Lóa er með MBA-gráðu
frá United Business School í Belgíu.
Síðar vann hún hjá Fríverslunar-
samtökum Evrópu, EFTA. Svo fór
að Lóa vann í Brussel í alls átta ár,
lengst af hjá EFTA.
„Löfven varpaði fram hugmynd-
inni um þennan nýja, hnattræna
samning fyrir nokkrum árum, hann
er mjög alþjóðlega sinnaður og þetta
er mikið hjartans mál hjá honum,“
segir Lóa. „Hann vill nota sem fyr-
irmynd kerfið sem hefur verið við
lýði í Svíþjóð frá 1938, frá fundinum í
Saltsjöbaden, rétt hjá Stokkhólmi.
Þá var lagður grunnur að Saltsjö-
bads-andanum svokallaða. Verka-
lýðsfélög og vinnuveitendur tóku
höndum saman og sköpuðu sam-
vinnuanda sem hefur verið und-
irstaða sænsks samfélags og atvinnu-
lífs allt frá því.“
Hún segir þetta sænska kerfi mun
sveigjanlegra en þá tilhögun sem al-
gengari er í Evrópuríkjum, þ.e. að
sett séu lög á þingi um vinnumark-
aðinn. Og sænska þingið grípi ör-
sjaldan inn í vinnudeilur, það sé álitið
algert örþrifaráð.
„Hægt er að breyta reglunum í
sérstökum samningum, hvort sem er
samningum milli heildarsamtakanna
eða starfsgreina. Báðir aðilar í Sví-
þjóð, verkalýðsfélög og vinnuveit-
endur, hafa séð að það er betra að
nota kerfi af þessu tagi. Sveigjanleik-
inn þýðir að þegar aðstæður breytast
á vinnumarkaði, t.d. þegar lægð er í
efnahagslífnu, er hægt að semja á ný.
Löggjafarleið er miklu hægari og þá
eru það líka aðrir sem taka ákvarð-
anirnar en þeir sem koma beint að
vinnumarkaðnum.“
Sænsk risafyrirtæki
og réttindi verkafólks
Svíar eiga allmörg alþjóðleg risa-
fyrirtæki eins og H&M og IKEA.
Þau sæta eins og fleiri alþjóðleg fyr-
irtæki stundum harðri gagnrýni fyrir
að misnota sér aðstæður í löndum
þriðja heimsins þar sem réttindi
verkafólks eru lítil og laun margfalt
lægri en á Vesturlöndum. Beitir LO
sé gagnvart þessum fyrirtækjum?
Og ætla Svíar sér ekki um of, geta
þeir haft áhrif úti í heimi eins og Löf-
ven stefnir að?
„Við ætlum alls ekki að fara að
segja þeim hvernig þeir eigi að hafa
hlutina,“ svarar Lóa og hlær. „En
þótt þetta taki langan tíma er ekki
hægt að gera ekki neitt, sitja með
hendur í skauti. Hnattvæðingin er
þannig að fyrirtækin starfa þvert á
öll landamæri, líka sænsk fyrirtæki.
Fyrirtækin flytja sig einfaldlega milli
landa. Þessi breyting hefur gerst
mjög hratt og það þarf að setja skýr-
ari reglur á alþjóðavísu. Það þarf ein-
hvers konar yfirstjórn eins og reynd-
in er orðin í Evrópu. En þetta mun
taka langan tíma.
Fyrsta skrefið er að styrkja þær
alþjóðastofnanir sem eru þegar til.
Þær geta gert miklu meira ef þær
bara fá meira afl. Ég get nefnt sem
dæmi ILO, Alþjóðavinnumálastofn-
unina, sem setur alþjóðlegar reglur
um vinnumarkaði. Hjá ILO eru
fulltrúar bæði frá verkalýðsfélögum
og vinnuveitendum og þar eru gerðir
alþjóðlegir sáttmálar, m.a. um verk-
fallsrétt og bann við barnaþrælkun.“
Lóa segir erfitt að fást við IKEA
sem segist lítil áhrif hafa á versl-
anirnar sem séu oftast reknar um all-
an heim undir vörumerkinu með sér-
leyfisgreiðslum (e. franchise). Það sé
samt léleg afsökun, auðvitað geti
IKEA haft áhrif.
„En við erum ekki bara í því að
gagnrýna, við viljum hjálpa fyr-
irtækjum að finna leiðir til að gera
betur. H&M er annað risafyrirtæki
og við höfum ásamt þróunardeild LO
átt samstarf við það fyrirtæki um að
bæta aðstæður verkafólks í Kambó-
díu.
Lágmarkslaunin þar eru svo lág að
ekki er hægt að lifa af þeim. Við tök-
um þátt í starfi ILO við að finna
formúlu til að reikna úr lífvænleg
laun, ekki bara eitthvert lágmark. En
H&M á engar verksmiðjur, notast
eingöngu við verktaka. Ráðamenn
H&M reyna hins vegar með mark-
vissum hætti að hafa áhrif á sína und-
irverktaka til að bæta kjörin, auka
rétt starfsmanna til að ganga í verka-
lýðsfélög og hækka launin. Við bend-
um H&M á verkfærin, ég nefni sem
dæmi bindandi leiðbeiningar OECD
varðandi fyrirtæki og mannréttindi.“
Geta auðveldlega tvöfaldað
launin í Kambódíu
Hún segir sjálfstæð verkalýðsfélög
starfa í Kambódíu, öfugt við það sem
gerist í Kína þar sem verkalýðsfélög
eru einfaldlega framlenging á komm-
únistaflokknum. Aðstæður félaganna
í Kambódíu séu afar erfiðar en þeim
hafi samt tekist með aðgerðum sín-
um að fá lágmarkslaun hækkuð.
Miklu skipti að auka kaupgetu
landsmanna, þá verði til miðstétt sem
auki stöðugleika og tryggi efnahags-
legar framfarir. En fara erlendu
stórfyrirtækin ekki bara á brott ef
launin hækka mikið í Kambódíu?
Lóa segist hafa verið í Kambódíu
sl. haust. „Þá hitti ég fulltrúa frá
H&M og þeir sögðust auðveldlega
geta tvöfaldað launin og það myndi
ekki hafa nein umtalsverð áhrif á
hagnaðinn. En við hittum líka áhrifa-
mann í landinu, fyrrverandi forsætis-
ráðherra. Hann sagði: Við getum
ekki bara hækkað launin vegna þess
að þá töpum við í samkeppninni [við
önnur ríki].
En síðustu 10 árin hefur hagvöxtur
í Kambódíu verið 7-12% sem er
geysilega mikill vöxtur. Ef þetta á
ekki að koma verkafólki til góða þá
veit ég ekki hvert þessi vöxtur á að
fara. Grunnur velferðar er að skipt-
ingin sé jafnari. En þeir ríku í
Kambódíu og víða annars staðar
verða stöðugt ríkari, þeir fátæku eru
alltaf jafn fátækir,“ segir Lóa Brynj-
úlfsdóttir.
Vel hægt að bæta kjör verkafólks
Lóa Brynjúlfsdóttir stýrir alþjóðadeild sænska Alþýðusambandsins í Stokkhólmi
Vinnur að því að bæta kjör verkafólks hjá risafyrirtækjum eins og H&M í Kambódíu og víðar
Samstaða Lóa Brynjúlfsdóttir (lengst t.v.) ásamt formanni sænska LO, Karl-Petter Thorwaldsson, og verkalýðs-
leiðtogum í Kambódíu. Sumir Kambódíumannanna gætu lent í fangelsi fyrir að hafa staðið á bak við verkföll.
Gefa ráð Lóa Brynjúlfsdóttir. „Við
ætlum alls ekki að fara að segja þeim
hvernig þeir eigi að hafa hlutina.“