Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 49
FRÉTTIR 49Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Úthaldsdagar skipa Hafrannsókna-
stofnunar verða um 100 fleiri í ár
heldur en var í fyrra. Framlög til
stofnunarinnar voru hækkuð í fjár-
lögum, en að auki voru veittar 150
milljónir króna til þátttöku í stórum
alþjóðlegum hvalaleiðangri, sem
farið er í á nokkurra ára fresti. Jó-
hann Sigurjónsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, segir að pen-
ingar sem fengust vegna
hvalarannsókna í sumar nýtist í
fleiri verkefni því hægt verði að
tengja þær m.a. makrílleiðangri.
Skiptir gífurlega miklu máli
Samkvæmt skipaáætlun Haf-
rannsóknastofnunar er ráðgert að
Árni Friðriksson verði á sjó í 193
daga og Bjarni Sæmundsson í alls
116 daga. Þetta er aukning frá síð-
asta ári um rösklega 100 daga. Í ár
verður fleiri dögum varið til rann-
sókna á loðnu heldur en var á síð-
asta ári. Þá mun stofnunin einnig
sinna með eigin skipi rannsóknum á
stofni úthafsrækju, en í fyrra var
notað skip frá einu útgerðarfyrir-
tækjanna og greiddu útgerðirnar
kostnað við skipið. Stofnmæling að
hausti verður boðin út eins og í
fyrra, en þá voru tvö skip fengin til
verkefnisins og var þeim greitt með
aflamarki.
„Þeir auknu fjármunir sem við
höfum fengið skipta stofnunina gíf-
urlega miklu máli,“ segir Jóhann
Sigurjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar. „Stofnunin fékk 50
milljónir til að endurnýja tækjabún-
að, 150 milljónir vegna hvalarann-
sókna og um 90 milljónir til þess að
mæta kostnaði í tengslum við aukin
verkefni. Sérstaklega vegna aukins
umfangs í rannsóknum á uppsjáv-
artegundum á síðustu árum, eink-
um makríl.
Af þessum fjármunum fara þó að-
eins 90 milljónir inn í útgjald-
aramma stofnunarinnar, en í hinum
tilvikunum er um einskiptis framlag
að ræða. Við munum því standa
frammi fyrir miklum vanda á næsta
ári ef ramminn verður ekki stækk-
aður. Leggja þarf þá rannsókna-
skipinu Bjarna Sæmundssyni og
fella niður margs konar verkefni.“
Minni tekjur úr verkefnasjóði
Jóhann segir að Hafrannsókna-
stofnun hafi sætt niðurskurði eins
og aðrar stofnanir ríkisins á síðustu
árum. Frá hruni hafi ráðstöfunarfé
stofnunarinnar minnkað um 700
milljónir á núvirði, en lengi vel hafi
tekist að halda í horfinu með aukn-
um tekjum úr Verkefnasjóði sjáv-
arútvegsins.
„Þegar kom fram á síðasta ár var
reksturinn orðinn erfiður,“ segir Jó-
hann. „Við glímdum við halla frá
árinu 2013, sem ákveðið var að taka
strax á af festu. Jafnframt höfðu
tekjur okkar úr VS-sjóðnum farið
lækkandi, afli úr rannsóknarleið-
öngrum skilaði minni tekjum vegna
minni afla og lægra verðs en áður
og auk þess hafði olía hækkað mikið
í verði. Allt þetta gerði okkur erfitt
um vik og árlegur samdráttur, sem
margar aðrar stofnanir höfðu búið
við um nokkurra ára skeið, kom
sem skellur á okkur á síðasta ári.
Samstarf við Grænlendinga
Við stóðum frammi fyrir því síð-
asta haust að við myndum leggja
Bjarna alveg því ekki voru forsend-
ur að óbreyttu til að vera með bæði
skipin í rekstri. Rekstur skipanna
var dreginn saman og fækkað í
áhöfnum, en satt að segja drógum
við allt árið að stíga skrefið til fulls.
Nú hefur ræst úr fyrir þetta ár og
það er ánægjulegt að úthaldsdögum
skipanna skuli fjölga um yfir 100 á
þessu ári,“ segir Jóhann.
Á þessu ári mun Hafrannsókna-
stofnun sjá um rannsóknir á makríl
í grænlenskri lögsögu í 12 daga.
Verður það gert með svipuðum
hætti og í fyrra, en síðustu ár hefur
makríll leitað í auknum mæli inn í
grænlenska lögsögu.
Jóhann segir að samstarf ís-
lenskra og grænlenskra fiskifræð-
inga sé með ýmsum hætti og mik-
ilvægt sé að þétta samstarf þessara
nágrannaríkja þar sem margir fisk-
stofnar séu sameiginlegir. Á síðasta
ári var gert samkomulag um þessa
samvinnu.
Þátttaka Norðmanna
og Grænlendinga?
Jóhann segir að það sé umhugs-
unarefni hvort ekki sé eðlilegt að
Grænlendingar og Norðmenn taki
þátt í rannsóknum á loðnunni. Þessi
ríki séu skilgreind sem strandríki
hvað varðar loðnuna og báðar þjóðir
hafi aflahlutdeild í veiðum úr stofn-
inum, með öðrum orðum séu þær
notendur þessarar auðlindar.
Úthaldsdögum fjölgar um 100
Aukin framlög til Hafrannsóknastofnunar Hægt að tengja hvalaleiðangur við rannsóknir á makríl
Fleiri dagar verða til rannsókna á loðnu Vandi á næsta ári verði útgjaldaramminn ekki stækkaður
Morgunblaðið/Þórður
Við bryggju Skip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, í Reykjavíkurhöfn.
Morgunblaðið/Kristinn
Mörg verkefni Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
Hafrannsóknastofnun hefur í nokkur ár ekki ráðið nýja
starfsmenn fyrir þá sem hafa látið af störfum, eins og
margar aðrar stofnanir hafa þurft að gera. Breyting verð-
ur á þessu á næstunni.
„Hjá Hafrannsóknastofnun hefur stöðugildum fækkað
um yfir 30 síðasta áratuginn, en nú er svo komið að ekki
er hægt að ganga lengra í þessum efnum og byggja þarf
upp að nýju,“ segir Jóhann Sigurjónsson. „Auk þess er
ljóst að á næstu 10 árum ljúka um 40% af sérfræðingum
stofnunarinnar sinni starfsævi. Þess vegna höfum við
ákveðið að auglýsa á næstu dögum eftir ungum sérfræð-
ingum og ég reikna með að 5-7 manns verði ráðnir á
næstu tólf mánuðum. Þáttur í þessu er að tryggja að
þekkingin færist milli kynslóða svo ekki hljótist skaði af.
Mikilvægt er að þegar eldri starfsmenn hætta, starfi þeir
um tíma með þeim sem við taka.“
Þekkingin færist á milli kynslóða
HAFRANNSÓKNASTOFNUN HYGGST RÁÐA SÉRFRÆÐINGA Á NÆSTUNNI
Ó
lö
f
B
jö
rg
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ó
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n Sk i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s
Togarinn Bjartur NK tekur nú þátt í togararalli í 25.
skipti, en enginn togari hefur jafn oft tekið þátt í
ralli, en Ljósafell SU kemur næst og er að hefja sitt
22. rall. Fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað að auk togaranna munu hafrann-
sóknaskipin, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson,
annast rallið að þessu sinni.
Togararall eða stofnmæling botnfiska á Íslands-
miðum hefur farið fram á hverju ári frá 1985 og er
það mikilvægur þáttur í árlegu mati á stofnstærð
botnfiska við landið. Löngum hafa svonefndir Jap-
anstogarar verið leigðir til þátttöku í rallinu en Bjart-
ur og Ljósafell eru einmitt af þeirri gerð, segir á
heimasíðu SVN.
Bjartur NK í togararall í 25. skipti
STOFNMÆLING BOTNFISKA Á ÍSLANDSMIÐUM AÐ HEFJAST