Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Blaðsíða 30
Þ
að þýðir ekkert að fara í kring-
um hlutina. Ef við viljum að
fólk skilji verðum við að segja
hlutina eins og þeir eru,“ segir
Hans Miniar Jónsson, skírður Hólm-
fríður, en Hans sagði sögu sína í op-
inskáu viðtali í DV haustið 2010 og
hefur auk þess komið fram í fleiri
miðlum.
Hans er feiminn að eðlisfari en
segir sér ekki stætt á að þegja um
sín mál. „Auðvitað er alltaf til fólk
sem vill ekki skilja, læra né hlusta en
maður vonast til að aukin umfjöllun
veki til umhugsunar. Vissulega gæti
maður fengið að vera skrítinn í friði
ef enginn vissi neitt um transfólk en
til þess einfaldlega að fá að vera verð-
ur fólk að vita að maður sé til. Það
hefði örugglega verið auðveldara að
þegja en ég er bara þessi týpa sem á
erfitt með að gera ekki það sem gera
þarf. Sýnileikinn og það að tala opin-
skátt um hlutina gerir það að verk-
um að smábörn og ófædd transbörn
framtíðarinnar munu eiga auð-
veldara með að fá viðeigandi hjálp.
Réttlætiskenndin hefði ekki leyft mér
að komast upp með að sitja þegjandi
úti í horni.“
Hans segist ekki sjá eftir því að
hafa opinberað sín mál og segir við-
brögðin hafa verið jákvæð. „Ég er
sama manneskjan og ég var áður en
ég kom fram en mér finnst ég heil-
legri. Með því að koma hreint fram
hef ég losað mig við svakalegar
byrðar. Það er allt annað hljóðið
í manni þegar maður fær að vera
maður sjálfur,“ segir Hans sem er
giftur Kanadamanninum Matthew
Best auk þess sem hann á dóttur úr
fyrra sambandi. Dóttir hans kallar
hann ennþá mömmu og Hans seg-
ist ekki ætla að taka það frá henni.
„Hún hefur eigin rétt og verður að
fá að ráða hvað hún kallar mömmu
sína.“
Hans er á leið í sund þegar blaða-
maður nær tali af honum en í við-
talinu 2010 kom fram að hann hefði
ekki farið í sund um árabil og sakn-
aði sundsins. „Ég nánast bjó í sund-
lauginni sem krakki en allt í einu, í
kringum kynþroskann, fór ég að upp-
lifa mig sem illa gerðan hlut í bún-
ingsklefanum. Það varð alltaf erfiðara
og erfiðara að skella sér í laugina.
Að sjálfsögðu var erfitt skref að stíga
þarna inn í fyrsta skiptið eftir svona
langan tíma en um leið frábært,“ segir
Hans Miniar sem hefur nú látið slétta
úr bringunni á sér en áður hafði hann
reyrt niður á sér brjóstin.
Hans segir umræðuna um málefni
transfólks hafa verið mikla á Íslandi
að undanförnu. „Umræðan er mikil
og hún er þörf. Það er samt spurning
hversu lengi fólk nennir að hlusta en
við verðum að tala um það sem betur
má fara þar til það fer betur. Þetta þarf
ekki að vera eitthvað óeðlilegt. Ekki
nema fólk vilji mála það þannig. Hjá
börnum er þetta svo einfalt. Þú ert sá
sem þú ert og ert ástfanginn af þeim
sem þú ert ástfanginn af. Punktur. Það
er fullorðna fólkið sem er að flækja
hlutina og það að óþörfu,“ segir Hans
að lokum og er rokinn af stað í sundið.
indiana@dv.is
30 Viðtal 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
„Þetta þarf ekki að
vera eitthvað óeðlilegt“
n Dóttir Hans Miniars Jónssonar kallar hann ennþá mömmu
Með eiginmanninum Hans Miniar var skírður Hólmfríður. Hér er hann ásamt eiginmann-
inum, Matthew Best, en Hans gekk ennþá undir nafninu Hólmfríður þegar þeir fóru að vera
saman.
Þ
essar fréttir komu alls ekkert
illa við mig. Ég á sjö börn og
hvert og eitt þeirra á skilið sína
hamingju. Þetta breytti bara
aðeins hlutfallinu. Ég átti tvo syni
og fimm dætur en á í dag þrjá syni
og fjórar dætur,“ segir Anna Kristín
Hansdóttir, móðir Hans Miniar Jóns-
sonar, en Hans var alinn upp sem
stúlkan Hólmfríður.
Anna Kristín segir fólkið í kring-
um þau hafi einnig tekið fréttunum
með jákvæðum hætti. „Ég veit ekki
um neinn sem hefur tekið þessu illa.
Það urðu kannski margir hissa en
þeir þekktu hann ekki eins vel og ég,“
segir hún og bætir við að hún hafi
ekki átt erfitt með að breyta úr nafn-
inu Hólmfríður yfir í nafnið Hans.
„Hann spurði mig hvort ég mætti
nota nafnið Hans því Hans var pabbi
minn. Mér fannst það sjálfsagt mál.
Ég var hins vegar ansi lengi að mis-
mæla mig og segja „hún“ í staðinn
fyrir „hann“. Ég var dugleg að leið-
rétta aðra og bað aðra í kringum mig
að endilega leiðrétta mig líka og nú
er ég nánast alveg hætt að ruglast.
Það er einna helst þegar ég skoða
gamlar myndir af honum sem barni.
Þá er það pínu ruglandi hvort ég eigi
að segja hann eða hún og að sama
skapi þegar ég tala við dóttur hans
því hún kallar hann mömmu.
Ég fann ekkert fyrir því eins og
margir vilja meina að ég hefði misst
dóttur. Þetta er ennþá barnið mitt og
nákvæmlega sama manneskjan. Ég
vissi vel að það væri eitthvað í þessa
veruna ekki eins og það átti að vera
og var bara ánægð með að hann
skyldi finna sig.“
indiana@dv.is
Anna Kristín Hansdóttir er móðir Hans Miniar Jónssonar:
Öll börnin mín eiga
hamingju skilið
1989 Fyrsti Íslendingurinn fer í kynleið-
réttingaraðgerð. Aðgerðin er fram-
kvæmd erlendis.
1996 Þáverandi landlæknir setti af stað
starfshóp til að sjá um mál er vörðuðu
fólk sem vildi láta leiðrétta kyn sitt.
1998 Fyrsta kynleiðréttingaraðgerðin
gerð á Íslandi
2000 Önnur kynleiðréttingaraðgerðin
gerð á Íslandi
2003 Þriðja kynleiðréttingaraðgerðin
gerð á Íslandi
2007 Trans Ísland stofnað
2010 Fimm kynleiðréttingaraðgerðir á
Íslandi
2011Fjórar kynleiðréttingaraðgerðir á
Íslandi
2012 Ein kynleiðréttingaraðgerð hefur
verið framkvæmd á Íslandi það sem
af er ári. 10 einstaklingar eru í kynleið-
réttingarferli.
2012 Alþingi samþykkti frumvarp
velferðarráðherra til laga um réttarstöðu
einstaklinga með kynáttunarvanda.
Mikilvæg ártöl í baráttunni
Mæðgin Anna Kristín vissi að
það væri ekki allt eins og það ætti
að vera og varð fegin þegar Hans
fann sig.