Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Blaðsíða 8
fimmtudagur 27. nóvember 20088 Fréttir
Þriggja manna nefnd með Hörð Torfason í forsvari fer með ákvörðunarvald um hverjir taka til máls á
vikulegum útifundum á Austurvelli sem þúsundir manna hafa sótt og sýndir hafa verið í beinni útsend-
ingu í sjónvarpi. Eiríkur Stefánsson er mjög ósáttur við fyrirkomulagið og gagnrýnir val Harðar á ræðu-
mönnum. Kolfinna Baldvinsdóttir tekur í sama streng. Formaður Fjölskylduhjálpar Íslands átti að tala
um fátækt á næsta útifundi en það boð var afturkallað vegna pólitískra tengsla.
MÓTMÆLENDUR
Í HÁR SAMANvalgEir örn ragnarSSonblaðamaður skrifar: valgeir@dv.is„Þarna eru ákveðnir aðilar sem geta ákveðið hverjir það eru sem fá að tala. Þeir velja þá sem þeim eru þóknanlegir. Þeir eru ekkert betri en stjórnmálamennirnir,“ segir Ei-ríkur Stefánsson, fyrrverandi for-
maður Verkalýðs- og sjómannafé-
lag Fáskrúðsfjarðar.
Eiríkur er mjög ósáttur við að
Hörður Torfason, skipuleggjandi
útifundanna á Austurvelli, hafi ekki
gefið honum tækifæri til að taka
til máls og gagnrýna kvótakerfið
á útifundunum, heldur hafi hann
frekar valið óreynda námsmenn
til þess að flytja ræður. „Þarna eru
19 og 20 ára unglingar sem eiga að
fara að tala við fólkið í landinu um
kreppuna. Fólk sem hefur aldrei
unnið almennilega vinnu eða dýft
puttanum í kalt vatn,“ segir hann.
Eiríkur segist hafa krafið Hörð
um að útskýra hvers vegna honum
stæði ekki til boða að tala á fundin-
um og hverjir það væru sem tækju
ákvarðanir um hverjir kæmu fram.
„Ég margspurði Hörð að því hverjir
veldu ræðumennina, en hann neit-
aði að segja mér það,“ segir Eiríkur.
Hann segir kröfuna um að allt eigi
að koma upp á borðið greinilega
ekki eiga við hjá Herði Torfasyni.
Þriggja manna nefnd
„Það bara eru starfsreglur sem ég
set. Það hefur verið starfað eft-
ir þeim frá byrjun og hann verð-
ur bara að sætta sig við það. Það
kemur ekki að þessum palli fólk
sem hefur unnið fyrir stjórnmála-
samtök,“ segir Hörður Torfason
um gagnrýni Eiríks.
Hörður segir rétt að hann hafi
fólk á bak við sig sem ákveði hverj-
ir megi koma fram á útifundun-
um. Hann vildi í fyrstu ekki gefa
upp hverjir skipuðu þessa nefnd.
„Ég er ekki tilbúinn að nefna það
eins og er.“ Þegar blaðamaður innti
Hörð frekar eftir svörum svaraði
hann því að hans helstu ráðgjafar
væru Ragnheiður Gestsdóttir rit-
höfundur og Lára Hanna Einars-
dóttir, þýðandi og leiðsögumaður.
„Það er ekki alltaf sama fólkið, en
þær tvær hafa hjálpað mér í lang-
an tíma og ég leita álits hjá þeim.
Ég kalla þær vinstra og hægra eyr-
að mitt.“
„Eiríkur er kverúlant“
Hörður bendir á að hann hafi búið
erlendis um langt skeið og þekki
því ekki íslenskt þjóðfélag út í gegn.
„Ég spyr álits og læt kanna þá sem
biðja um að koma fram, ég kalla
þetta síuna mína.“
Spurður um orð Eiríks sem
gagnrýnir að námsmenn séu fyrir-
ferðarmiklir í mótmælunum, svar-
ar Hörður: „Ég veit ekki betur en
þetta sé fólk úr öllum öngum þjóð-
félagsins, sem ég er að safna til. Yf-
irskriftin hefur verið Breiðfylking
gegn ástandinu.“ Hörður segir að
tilgangurinn sé að draga fram fólk
sem ekki hefur fengið tækifæri áður
til að koma sínum sjónarmiðum á
framfæri.
Hörður undrast framgöngu Ei-
ríks í málinu. „Eiríkur er kverúlant.
Frekja og yfirgangur kemur ekki
fólki á pallinn. Hann ætti að læra
smá kurteisi, að vera ekki að hringja
í fólk á miðnætti, eins og hann gerði
við mig. Hann er númer 50 í röðinni
að taka til máls. Það er gríðarlegur
fjöldi sem er búinn að biðja um að
fá að taka til máls, bróðir minn er
búinn að sækja um að vera þarna
en hann er bara í röðinni eins og
annað fólk.“
Boðið afturkallað
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formað-
ur Fjölskylduhjálpar Íslands, hafði
fengið boð um að taka til máls á
næsta útifundi en það boð var síð-
ar afturkallað. „Það er ansi hart að
það sé ekki hægt að koma á fram-
færi ákveðnum upplýsingum sem
ég hef aflað mér eftir að hafa verið
í hjálparstarfi og verið mjög mik-
ið inni í heimi þeirra sem fátækari
eru,“ segir Ásgerður.
Þegar skipuleggjendur mót-
mælanna fréttu að hún hefði starf-
að fyrir Frjálslynda flokkinn var
boðið afturkallað. Ásgerður Jóna
segist ekki hafa ætlað að koma fram
í pólitískum tilgangi heldur til þess
að vekja athygli á aðbúnaði fátækra
á Íslandi. „Þeir hins vegar meta
12 ár í sjálfboðavinnu fyrir fátæka
minna en eitt og hálft ár í starfi fyrir
minnsta flokk á Íslandi,“ segir hún.
Enga flokks-
pólitíkusa
Hörður segir ástæðu
þess að hann hafi
hætt við að bjóða
Ásgerði Jónu að
taka til máls á úti-
fundinum vera
skýra. „Hún er
á vegum Frjáls-
lynda flokksins,
hún hafði ver-
ið samþykkt, en
ég vissi ekki að
hún væri í Frjáls-
lynda flokknum.
Ég er búinn að segja
það alveg frá byrjun
að ef einhver er yf-
irlýstur með-
limur í
stjórnmálahreyfingu hef ég reynt
að draga úr því. Það er ekki það
sem fólk vill heyra, það á frekar
heima á borgarafundinum.“ Hann
bætir því hins vegar við að það sé
alltaf til endurskoðunar hverjir tali
á fundunum.
Kallar eftir nýju
fyrirkomulagi
Kolfinna Baldvinsdóttir, sem
skipulagði mótmæla-
göngu frá Austurvelli
að Ráðherrabú-
staðnum fyrir
nokkrum vik-
um, kallar
eftir nýju fyr-
irkomulagi á
mótmælun-
um. Hún gagn-
rýnir að það sé
á höndum eins
manns að ákveða
hverjir fái að taka til
máls á mótmælun-
um.
„Ég fór af stað með mín eigin
mótmæli þar sem við gengum að
Ráðherrabústaðnum og þá kom
upp fýla af hálfu Harðar Torfa-
sonar vegna þess að hann taldi að
framhjá honum hefði verið geng-
ið,“ segir hún. „Ég lagði áherslu á
að þetta væri samstarf ólíkra fé-
lagasamtaka, ég veit ekki í hvaða
tilgangi Hörður er þarna. Ég veit
ekki fyrir hvaða hreyfingu hann
talar. Mótmæli eru mótmæli en
það þarf líka að vera
skýrt og greinilegt
hverju er ver-
ið að mót-
mæla.“
Kolfinna
segist hafa
útskýrt fyr-
ir Herði að
hún hefði
ekki talið sig
þurfa leyfi
frá honum til
þess að standa
fyrir mót-
mælum.
Hörður Torfason „Það bara eru starfsreglur
sem ég set. Það hefur verið starfað eftir þeim
frá byrjun og hann verður bara að sætta sig
við það. Það kemur ekki að þessum palli fólk
sem hefur unnið fyrir stjórnmálasamtök.“
MYnD ÁSgEir
Eiríkur Stefánsson „Ég margspurði Hörð
að því hverjir veldu ræðumennina, en hann
neitaði að segja mér það.“
MYnD KriSTinn
Mótmæli um sjö þúsund
manns tóku þátt í mótmæl-
unum í síðustu viku.
MYnD KriSTinn