Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 9

Náttúrufræðingurinn - 2011, Blaðsíða 9
61 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Náttúrufræðingurinn 81 (2), bls. 61–68, 2011 Rannveig Ólafsdóttir og Micael Runnström Ritrýnd grein Endalaus víðátta? Mat og kortlagning íslenskra víðerna Einstök náttúra og víðáttumikil víðerni eru eitt helsta aðdráttarafl erlendra ferðamanna er sækja heim land og þjóð og þar með burðarás íslenskrar ferðaþjónustu, sem nú er orðin þriðji stærsti atvinnuvegur landsins. Margt bendir til að með breyttri og fjölþættari landnýtingu hálendisins undanfarna áratugi og auknum kröfum um bætt aðgengi ökutækja hafi jafnt og þétt verið gengið á víðernisauðlind landsins. Þekking á umfangi og gæðum íslenskra víðerna er grundvallaratriði fyrir sjálfbæra nýtingu víðernisauðlindarinnar. Þetta á ekki síst við hvað varðar skipulag sjálfbærrar ferðamennsku á hálendinu. Í þessari grein eru kynntar niðurstöður af greiningu og kortlagningu íslenskra víðerna þar sem stuðst er við svokallaða útsýnisgreiningu (e. viewshed analysis). Markmið kortlagningarinnar var annars vegar að meta hversu stór hluti landsins er laus við sjónræn áhrif mannvirkja og hins vegar að athuga hversu stór hluti friðlýstra svæða er laus við slík áhrif. Niðurstöðurnar sýna að 33% landsins eru laus við sjónræn áhrif mannvirkja. Hlutfall slíkra svæða innan þjóðgarða er um 65% og eru þau að mestu bundin við Vatnajökulsþjóðgarð; innan friðlanda er hlutfallið 32% og 18% innan fólkvanga. Skýra stefnumörkun um nýtingu víðerna og náttúruverndarsvæða til útivistar og ferðamennsku skortir. Án slíkrar stefnumörkunar er hætta á að svæðin glati aðdráttarafli sínu sem og því verðmæti sem verið er að vernda. Inngangur Margir telja íslensk víðerni (e. wilderness) vera á meðal síðustu ósnortnu svæða Evrópu. Þetta álit endurspeglast meðal annars hjá erlendum ferðamönnum sem heimsækja landið en samkvæmt viðhorfskönnunum meðal þeirra er einstök náttúra og ósnortin víð- erni eitt helsta aðdráttaraflið þegar ákvörðun um Íslandsferð er tekin.1,2 Þessi ósnortna ímynd er og hefur verið meginuppistaða í kynningum á Íslandi og íslenskum afurðum erlendis. Því má spyrja: hve ósnortin eru íslensk víðerni? Margt bendir til þess að með breyttri og fjölþættari landnýtingu hálendisins undan- farna áratugi og auknum kröfum um betra aðgengi vélknúinna 1. mynd. Horft í vestur frá Kaldaklofsfjöllum. Í baksýn ber Hekla við himinn. – A view to the west from Kaldaklofsfjöll. Mt. Hekla is seen in the background. Ljósm./Photo: Rannveig Ólafsdóttir. 81_2#profork070711.indd 61 7/8/11 7:41:18 AM

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.