Gerðir kirkjuþings - 01.12.1958, Blaðsíða 1

Gerðir kirkjuþings - 01.12.1958, Blaðsíða 1
ÁLYKTANIR OG ÁFGREIDD MÁL RYRSTA KIRKJUÞLNGS ÞJÚDKIRKJU ÍSLARDS, er haldið var dagana 18.-31- okt. 1958. Frumvarp um biskupa Djóðkirkju Islands, lagt fram af kirkju- málaráðherra og biskup”il Kirkjumálanefnd þingsins, þeir Magnús Már Lárusson, Þórarinn Þórarinsson, jónas Tómasson, jón Auðuns og Þorsteinn Gísla- son, skilaði nýju frumvarpi, er koma skyldi í stað hins, og var það samþykkt af kirkjuþinginu með nokkrum breytingum, og var það afgreitt í heild, sem hér segir; Frumvarp til laga um biskupsdæmi Þ.jóðkirk.junnar. 1. gr. Tveir skulu vera biskupar í hinni evangelísk-lútersku Þjóð- kirkju á Islandi. Situr annar í Reykjavík og nefnist Skál- holtsbiskup, en hinn á Akureyri og nefnist Hólabiskup. Biskupunum skulu búin dvalarskilyrði í Skálholti og á Holum. Skulu þeir dveljast þar, þegar þeim þykir henta og ber skylda til samkvæmt 6. gr. Heimilt er kirkjumálaráðherra að ákveða, að Hólabiskup skuli sitja á Hólum, enda hafi það áður verið samþykkt af þjónandi þjóðkirkjuprestum og safnaðarfulltrúum biskupsdæmisins. 2. gr. Skálholtsbiskup hefur stoórn og yfirsókn frá Austur-Skafta- fellsprófastsdæmi til Norður-ísafjarðarprófastsdæmis, að báðum meðtöldum, og er það Skálholtsbiskupsdæmi, en Holabiskup um hinn hluta landsins, sem er Hólabiskupsdæmi. 3- gr. Kosningarrétt við biskupskjör hafa prófastar og þjónandi prestar þjóðkirkjunnar í því biskupsdæmi, er veita á. Hver kjósandi kýs einn þeirra, er kjörgengir eru til embættisins. Réttkjörinn biskup er sá, sem fær meira en helming greiddra atkvæða. Nú fær enginn það atkvæðamagn, og skal embættið þá veitt þeim þeirra þriggja, er flest fengu atkvæði, sem hlut- aðeigandi stjórnarvöld telur bezt til þess fallinn. Kjörgengir til biskupsembætta eru allir þeir, sem kjörgengi hafa til prestsembættis í Þjóðkirkjunni.

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.