Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 104

Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 104
104 Valsblaðið2012 Starfiðermargt Lárus Blöndal, Steindór Aðalsteinsson, Torfi Magnússon, Bjarni Sigurðsson, Guðmundur Sigurgeirsson og Sigurður Örn Sigurðarson og eru verkefni þeirra mörg og vel unnin. Störf þessa fjölmenna hóps gerir verkefnin skemmtileg og áhugaverð. Öllu því góða fólki sem starfa fyrir deildina eru þökkuð góð störf. Meistaraflokkur karla Ágúst Björgvinsson þjálfaði meistaraflokk karla keppnistímabilið 2011 til 2012. Miklar breytingar voru á mannskap fyrir tímabilið og Valsmenn í efstu deild í fyrsta sinn um skeið. Veturinn var erfiður, illa gekk að finna erlenda leikmenn sem virt- ust hæfa og falla vel að liðinu og því mik- ið um breytingar á hópnum á tímabilinu. Margir leikmenn fengu þó mikilvæga reynslu á því að leika í úrvalsdeild sem vafalítið á eftir að nýtast þeim á komandi misserum. Því var ljóst að tímabilið 2012 til 2013 yrði Valur í fyrstu deild. Keppnistímabilið 2011–2012 var mikil- væg reynsla fyrir körfuknattleiksdeild Vals. Í fyrsta sinn í mörg ár var Valur með bæði kvenna- og karlalið í efstu deild. Karlaliðinu gekk ekki vel, miklar breytingar urðu á mannskap og féll liðið aftur í fyrstu deild. Kvennaliðið var að berjast við að ná einu af fjórum efstu sæt- unum til að komast í úrslitakeppnina, sem tókst ekki. Því fór liðið fyrr í sum- arfrí en ráð var fyrir gert. Kvennaliðið endaði í fimmta sæti mótsins og tók endasprett of seint. En þessi reynsla var leikmönnum og deildinni mikilvæg. Ágúst Björgvinsson var áfram þjálfari bæði kvenna- og karlaliðsins og strax á vordögum var farið í að stilla saman strengi og undirbúa nýja sókn í körfu- knattleik í Val. Sævaldur Bjarnason var ráðinn aðstoðarþjálfari hjá karlaliðinu en hann er öllum hnútum kunnugur hjá fé- laginu. Hann þjálfaði í mörg ár yngri flokka Vals og fór til Breiðablik í 4 ár og snýr nú aftur heim. Við fögnum komu Sævaldar og eru miklar væntingar gerðar til starfa hans. Hafdís Elín Helgadóttir var ráðin aðstoðarþjálfari fyrir meistara- flokk kvenna. Hafdís þekkir körfuknatt- leik betur en flestir aðrir (eiginlega allir). Hún spilaði til fjölda ára með ÍS, Val og landsliði Íslands. Það er gríðarlegur feng- ur að fá Hafdísi til starfa. Stjórn körfuknattleiksdeildar Vals 2012–2013: Svali H. Björgvinsson, forsvarsmaður Einar Örn Jónsson Sigþór Björgvinsson Gunnar Skúlason Hjörtur Fr. Vigfússon Úr stjórn gengu Lárus Blöndal, Stein- dór Aðalsteinsson, Grímur Atlason og Bjarki Gústafsson og þakkar körfuknatt- leiksdeildin þeim vel unnin störf á liðn- um árum. En ásamt stjórninni er vaskur hópur góðra Valsmanna sem kemur að störfum deildarinnar og rétt er að nefna nokkra; Valsmennlaufléttirílund:uppbygging körfuknattleiksdeildarVals Skýrsla körfuknattleiksdeildar 2012 Meistaraflokkur karla í körfuknattleik 2012–2013: Efri röð frá vinstri: Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfari, Benedikt Skúlason, Þorgrímur Guðni Björnsson, Chris Woods, Birgir Björn Pétursson, Atli Rafn Hreinsson, Bergur Ástráðsson, Sævaldur Bjarnason aðstoðarþjálfari. Neðri röð frá vinstri: Jens Guðmundsson, Hlynur Logi Víkingsson, Rúnar Ingi Erlingsson, Ragnar Gylfason, Benedikt Blöndal, Kristinn Ólafsson og Bjarni Geir Gunnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.