Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2011, Blaðsíða 112
112
ákveðin vandamál sem finnast annars vegar í klassískum þeisma (e. classical
theism) eða guðstrú og hins vegar í algyðistrú (e. pantheism). Það vandamál
sem reynt er að forðast í klassískum þeisma er hinn mikli aðskilnaður milli
Guðs og heims, en í algyðistrú hinn algeri samruni Guðs og heims. Við
skulum nú líta nánar á guðshugmyndir Sallie McFague með þá spurningu
í huga hvaða áherslubreytingar þar megi finna miðað við það sem kalla má
klassískan, kristinn þeisma.
Heimurinn sem líkami Guðs
Sallie McFague kynnti hugmynd sína um heiminn sem líkama Guðs fyrst
fyrir um tuttugu og fimm árum.47 Síðan þá hefur hún haldið áfram að
þróa sams konar hugmyndalíkan, nú síðast í bókinni A New Climate for
Theology.48 Undirstaða þessarar hugmyndar er biblíutúlkun sem byggist
á nokkrum versum í Jóhannesarguðspjalli þar sem talað er um Orðið sem
tók á sig hold og gerðist maður.49 Hér á McFague við að Jesús frá Nasaret
hafi verið Orð Guðs og það orð hafi holdgast og orðið að manneskju.
Kristin holdtekjuguðfræði fjallar að hennar mati um þetta undur: Að Guð
hafi gerst manneskja í heiminum. Guðfræðileg ályktun McFague varðandi
þetta biblíuvers er að ef kristið fólk trúi því að Guð hafi gerst maður þá
leiði af því að auðvelt sé að hugsa sér heiminn sem líkama Guðs.50 Hvernig
útskýrir hún þá ályktun? Það gerir hún með því að vísa til innsta eðlis guð-
dómsins sem sé einmitt að holdgast í heiminum. Þá merkingu hafi kristið
fólk ætíð lagt í líf, dauða og upprisu Jesú. Kristin sköpunarkenning, ítrekar
McFague, er í raun af sama meiði og holdtekjukenningin: Báðar leitist þær
við að skýra það að Guð sé uppspretta og markmið alls lífs og allrar tilvist-
ar. Ekki aðeins mannsins heldur heimsins alls. Þar með hafnar McFague
hellenískri tvíhyggju efnis og anda sem og fjarlægum upphöfnum Guði og
heldur því fram að heimurinn sé líkami (hold) af líkama (holdi) Guðs. Að
Guð hafi gerst líkami í einni persónu, Jesú Kristi, megi skilja svo að hann
47 Sallie McFague, Models of God og The Body of God.
48 Sallie McFague, A New Climate for Theology. McFague byggir þekkingu sína á lofts-
lagsbreytingum á skýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu Þjóðanna um loftslagsbreyt-
ingar (iPCC) frá 2007. Milliríkjanefndin komst að þeirri niðurstöðu að afleiðingar
loftslagsbreytinga verði mjög alvarlegar og jafnvel óafturkræfar ef meðalhiti jarðar
hækki um meira en 2°C frá því sem hann var fyrir iðnvæðingu. Hægt er að nálgast
skýrsluna á slóðinni:http://www.utanrikisraduneyti.is/verkefni/althjoda-og-orygg-
ismal/audlinda-og-umhverfismal/loftslagsbreytingar (sótt 2.8.2011).
49 Jóhannesarguðspjall, 1.14: „Og Orðið varð hold, hann bjó með oss …“.
50 Sallie McFague, A New Climate for Theology, bls. 72.
SólveiG AnnA BóASdóttiR