Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 1

Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 1
Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs sl. þriðjudag voru samþykkt drög að samningi milli Kópavogsskóla og Kópavogsbæj- ar um stóraukin áhrif foreldra- ráðs skólans á stjórn hans. Samningurinn er gerður í tilraunaskyni í tvö ár. Fram kom í máli Ármanns Kr. Ólafssonar forseta bæjarstjórnar, sem jafnframt er formaður skóla- nefndar, að samningurinn feli í sér þrennt sem ýmsir stjórnmála- flokkar boðuðu fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar. Í fyrsta lagi aukið sjálfstæði skóla, í öðru lagi valddreifingu og í þriðja lagi aukið íbúalýðræði. Um er að ræða hugmynd sem verið hefur í mótun um alllangt skeið. Það var svo sl. vor að formaður skóla- nefndar fól fræðsluskrifstofu að vinna að því að setja meginhug- myndir foreldraráðs Kópavogs- skóla, skólastjóra og skólanefndar í skriflegan búning. Megininntak samningsins felst í því að foreldraráð skólans hefur með mun skýrari hætti áhrif á skólastarfið um leið og sjálfstæði hans er fært í aukana. Í stað þess að forleldraráðið sé fyrst fremst umsagnaraðili um skólanámskrá verður það beinn þátttakandi í að leggja línurnar í skólastarfinu. Mun það jafnframt hafa aukin áhrif á ráðstöfun rekstrarfjár skólans. Samningurinn veitir foreldrasamfélaginu frekari mögu- leika til að hafa áhrif á uppbygg- ingu þeirrar aðstöðu sem nemendur hafa í skólanum. Samningurinn felur jafnframt í sér formfastara samstarf skólastjóra og foreldraráðsins. Til að auka lík- ur á farsælu samstarfi til framtíð- ar er í samningnum það nýnæmi að fulltrúi úr foreldraráðinu tekur beinan þátt í ráðningaferli nýs skólastjóra ef til þess kemur. Ein athyglisverðasta grein nýja samningsins er að foreldraráði skólans verður heimilt að leita samninga við bakhjarla til styrkt- ar skólastarfinu. Foreldraráðinu verður því heimilt að stofna sjóð til stuðnings skólastarfinu almennt eða ákveðnum þáttum þess. Til að undirstrika þá áherslu skólanefndar og bæjaryfirvalda að foreldrar komi með enn skýr- ari hætti að skólastarfinu og ábyrgð þess aukin þá felur samn- ingurinn það í sér að foreldraráði Kópavogsskóla verður greidd þóknun fyrir störf sín. Foreldra- ráðið skal kosið í leynilegri kosn- ingu á opnum auglýstum fundi. Í lok samningstíma mun óvil- hallur aðili meta árangur fyrirhug- aðs samnings. Á grundvelli þess mats mun skólanefnd og bæjar- stjórn taka ákvarðanir um fram- hald þess fyrirkomulags sem þarna er verið að reyna. 1. tbl. 1. árg. NÓVEMBER 2005Dreift frítt í öll hús í Kópavoginum ■ bls. 5 Íbúaþing í Kópavogi ■ bls. 11 Alltaf verið pólitískur Ódýrari lyf í Kópavogi Íbúum Kópavogs bjóðast lyf á lægra verði í lyfjaverslun Apótekarans að Smiðjuvegi 2. Verið velkomin! Smiðjuvegi 2, Kópavogi Opið alla virka daga kl. 10-18 Foreldraráð Kópavogsskóla fær aukin áhrif á stjórn skólans Frá fundi bæjarstjórnar Kópavogs. Forseti bæjarstjórnar og formaður skólanefndar, Ármann Kr. Ólafsson, kynnti hinn nýja samning um stjórn Kópavogsskóla. Við hlið hans sitja Sigurrós Þorgrímsdóttir bæjarfulltrúi og Ólafur Briem bæjarritari. Lyfjaval.is Sími 577 1160 OPIÐ 10-24

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.