Frjáls Palestína - 01.07.2001, Blaðsíða 1

Frjáls Palestína - 01.07.2001, Blaðsíða 1
PALESTÍNA MÁLGAGN FÉLAGSINS ÍSLAND-PALESTÍNA – 1. TBL. 12. ÁRG. – JÚLÍ 2001 FR JÁ LS V opnahlé er það kallað en kúgunin heldur áfram; innilokunin, skerðing grundvallarmannréttinda, eyðilegging íbúðarhúsa, möguleikar fólksins á að og framfleyta sér og sínum ónýttir, ólífutré eru rifin upp, jafnvel hæsnabú eru rudd með jarðýtu og allt gjöreyðilagt. Allar aðgerðir Ísraelshers miða að því að brjóta palestínsku þjóðina á bak aftur, freista þess að kúga hana til uppgjafar með ofbeldi, skelfingu og morðum. Einn af ógeðfelldari hryðju- verkamönnum sögunnar, stund- um nefndur slátrarinn Sharon, baðar sig í ljósi valdsins og of- beldisins eftir að Ísraelar kusu hann forsætisráðherra. Nú er hann í Washington og eftir að hafa í sjónvarpsviðtölum kallað forseta Palestínu morðingja og sjúklegan lygara, bætir hann því nú við að menn megi ekki gleyma því að þar sem Arafat sé annnars vegar þá sé ekki við þjóðhöfðingja að eiga heldur foringja hryðju- verkasamtaka. Þeir sletta skyrinu sem eiga það. Það er ekkert vopnahlé og það eru heldur ekki neinar friðarvið- ræður í gangi. Það sem í uppsigl- ingu er mótast af því hvers konar forystu Ísraelar hafa kosið sér og hvers konar öfl hafa undirtökin í ísraelsku þjóðlífi. Ennfremur hvaða hernaðarmátt Ísrael hefur tryggt sér með fulltingi banda- rískra stjórnvalda og síonista, það er þeirra gyðingasamtaka sem styðja í einu og öllu yfirgang Ísraela gagnvart sínum nágrönn- um. Horfur á raunverulegum frið- arviðærðum eru ekki góðar við þessar aðstæður. Palestínumenn eru sem fyrr tilbúnir til slíkra við- ræðna þrátt fyrir allt sem á undan hefur gengið. Þeir gera ekki kröfu til annars en að Ísraelar fari að lþjóðalögum og samþykktum Sameinuðu þjóðanna og skili svæðunum sem her- tekin voru af Ísrael árið 1967; Gazaströnd, Vest- urbakkanum og þar með Austur-Jerúsalem. Hér er um að ræða 22% af upphaf- legu landi Palestínu, sem þýðir að Ísraelsríki mun ná yfir 78% þess lands sem var Palestína árið 1947, er Sameinuðu þjóðirnar samþykktu tillögu um að skipta landinu nokkurn veginn jafnt á milli gyðinga og araba. Í kröfum Palestínumanna er því gert ráð fyrir mikilli eftirgjöf, því þar er sæst á hernámið 1948. Þær eru því sanngirnis- og rétt- lætiskröfur sem nær allar þjóðir heims styðja.Það eru í raun ein- ungis Ísrael og Bandaríkin sem eru á móti á vettvangi Sameinuðu þjóðanna en þar hafa Bandaríkin í reynd afhent Ísrael neitunarvald sitt. Þjóðum heims, ekki síst Ís- lendingum, er skylt að efla stuðninginn við baráttu Pal- estínumanna fyrir afnámi hernámsins og rétti flótta- manna til að snúa heim aftur. Núverandi ástand ógnar grundvelli alþjóðasamfé- lagsins, réttarsamfélaginu og heimsfriði. Sveinn Rúnar Hauksson Kúgunin heldur áfram Útifundur á Austurvelli Myndirnar eru frá fundi sem Félagið Ísland-Palestína stóð fyrir á Austur- velli 9. desember sl., til að minnast þess að þann dag árið 1987 hófst Intifda Palestínu- manna. Á litlu myndinni eru þeir Steingrímur Her- mannsson, einn ræðumanna á fund- inum, og Sveinn Rúnar Hauksson, formaður FÍP. Auk Steingríms héldu ræður Þorvaldur Hlynur Árnason prófastur og þing- mennirnir Þórunn Valdimarsdóttir og Steingrímur J. Sig- fússon

x

Frjáls Palestína

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls Palestína
https://timarit.is/publication/1150

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.