Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 40
38 Þjóðmál SUmAR 2009
yfir mörkin sem aðskilja vinstri og hægri
stefnu í stjórnmálum .
Afleiðingin af þessu er augljós . Sjálf stæðis-
flokk urinn hefur sífellt meiri tilhneigingu
til þess að sækja inn að miðjunni . Stefna
flokksins breytist í átt að því að verða
miðju stefna vegna þess að flokkurinn
leitast stöðugt við að auka fylgi sitt . til
þess hefur hann valið þessa leið . Útbreiðsla
hug sjóna hefur fallið í gleymskunnar dá og
popúlisminn tekið völdin .
Sem frjálshyggjumaður á ég erfitt með að
sætta mig við þetta . Flokkurinn er orðinn
að miðjuflokki og hugsjónin um aukið frelsi
einstaklingsins er virt að vettugi . Maður
veltir þess vegna fyrir sér hvaða kosti maður
hefur . Hvaða flokk á maður að styðja þegar
staðan er svona? Svarið við því liggur að
sjálfsögðu í augum uppi . Frjálshyggjumenn
verða að stofna sinn eigin stjórnmálaflokk .
Frjálshyggjan á undir högg að sækja eftir
hrun efnahagsins síðasta haust . Ekki vegna
þess að það sé hægt að kenna henni um það
sem misfórst . Þeir sem hafa kynnt sér orsakir
hrunsins gera sér fyllilega grein fyrir því að
þar var engri frjálshyggju um að kenna,
heldur sósíalisma í sinni verstu mynd . Samt
vill fólk kenna henni um . ástæðan fyrir
því er líka einföld . Sjálfstæðisflokkurinn
var við völd þegar hrunið átti sér stað og
frjáls hyggjumenn kjósa Sjálfstæðisflokkinn!
Frjáls hyggjumenn hafa þess vegna svert
orð spor stefnunnar með stuðningi við þann
flokk sem þeir töldu vera vænsta kostinn en
endaði með að bera mikla ábyrgð á hruni
íslenska fjármálakerfisins með miðjumoði
sínu .
Það er ekki frambærileg afstaða að kjósa
flokk af þeirri ástæðu einni að hann sé skásti
kosturinn . Frjálshyggjumenn eru það margir
að þeir þurfa ekki að sætta sig við slíkt . Þess
vegna ættu þeir að snúa bökum saman og
bjóða upp á það sem er best í stað þess að
sætta sig alltaf við það sem er illskást .
Skuldasúpa
útrásarvíkinga
Fram hefur komið að skuldir Þorsteins í Kók nema um 17 milljörðum .
Og að skuldir Magga ármanns eru um
22 milljarðar .
Pálmi í Fons skuldar um 22 milljarða í
northern travel Holding og 20 milljarða í
gjaldþroti Fons .
Og fjórði baugsmaðurinn, Hannes Smára-
son, virðist skulda nálægt 50 .000 . 000 .000
króna í þessum félögum sem eru í eigu
hans . . . en þetta eru félög sem vitað er um
og talsvert fleiri sem hafa farið í gegnum
nafnabreytingar og erfitt er að rekja!
Samtals eru þetta rúmlega 100 milljarðar
sem þessir drengir skulda og allir keyptu í
sömu félögunum sem tengjast baugi og
bulluðu upp genginu og hirtu arðgreiðslur
til erlendra eignarhaldsfélaga í sinni eigu
. . . þeir munu ekki borga krónu af þessum
skuldum .
Aðrir Íslendingar munu verða hundeltir
vegna húsnæðisskulda og verða á vanskila-
skrá um ókomna framtíð .
100 .000 .000 .000 krónur til vildarvina
baugsmanna .
Fl Group skuldar 217 milljarða umfram
eignir .
baugur skuldar 160 milljarða umfram
eignir .
teymi skuldar 40 milljarða og 30 millj-
arða án veða .
landic Property skuldar svo hundruð
milljarða til viðbótar .
Eru menn hissa að allt hafi hrunið
hérna?
bRÉF tIl EGIlS HElGASOnAR, bIRt á
VEFSÍðu HAnS, SiLFuREGiLS.iS .