Skólavarðan


Skólavarðan - 01.12.2015, Blaðsíða 46

Skólavarðan - 01.12.2015, Blaðsíða 46
46 DESEMBER 2015 KrakkaRÚV er yfirheiti yfir alla þjónustu RÚV við börn, hvort sem er í sjónvarpi, útvarpi eða á vef. Kjarninn í starfseminni er vefurinn www.krakkaruv.is þar sem nálgast má skemmtilegt og fræðandi barnaefni á íslensku á aðgengilegan hátt. Á vefnum er fjölbreytt úrval tölvuleikja sem reyna bæði á rökhugsun og ímyndunarafl, ásamt nægri útrás fyrir sköpunarkraftinn í fjölmörgum þrautum sem hvetja börn til skapandi verka. Eftir að hafa rýnt í alþjóðlegar rannsóknir á fjölmiðla- og tækjanotkun barna varð ljóst að spjaldtölvan er það tæki sem flest þeirra eru með í höndunum ásamt snjallsímanum hjá þeim eldri. Hefðbundið sjónvarp í línulegri dagskrá hentar þeim hins vegar síður. Af þeim sökum ákváðum við að vefur og nýrri miðlar yrðu þungamiðja þjónustunnar auk þess sem það gefur kost á meiri gagnvirkni. Markmið KrakkaRÚV: • Að gleðja íslensk börn, fræða og hvetja til skapandi verka. • Að miðla gæðaefni fyrir börn á íslenskri tungu jafnhliða í nýjum og hefðbundn- um miðlum. • Að vera örugg höfn fyrir íslensk börn, á íslensku. • Að bjóða börnum í ævintýralegt ferðalag á vit nýrra heima sem opnar augu þeirra fyrir tækifærum lífsins og fjölbreytileika þess. • Að stuðla að auknu fjölmiðlalæsi barna. • Að búa til góðar minningar og verða órjúfanlegur hluti af æsku íslenskra barna. • Að vera vettvangur fyrir samstarf við félagasamtök og mennta- og menn- ingarstofnanir um barnaþjónustu. Stefna KrakkaRÚV er að hafa frumkvæði að samstarfi við mennta- og menningarstofn- anir landsins. Á Íslandi starfa fjölmargar stofnanir sem keppast við að veita börnum fjölbreytta og vandaða þjónustu á sviði fræðslu- og menningarmála og er KrakkaRÚV kjörinn samstarfs- vettvangur. Það er alltaf heitt á könnunni í Efstaleitinu fyrir þá sem vilja spjalla meira um hvernig hægt sé að efla þjónustu við börn á Íslandi. Stuðlað að fjölmiðlalæsi Krakkafréttir eru fréttaskýringaþáttur sem ætlaður er fyrir átta ára og eldri. Markmiðið með Krakkafréttum er að upplýsa og fræða börn um heiminn eins og hann er, stuðla að auknu fjölmiðlalæsi og kveikja áhuga á fréttum. Kennarar vita betur en flestir aðrir að börn taka eftir öllu. Þau heyra lykilorð, nema hvernig fullorðnir meðtaka þau orð og oftar en ekki fer ímyndunaraflið á flug. Krakkar eru líka forvitnir og vilja skilja hvernig heimurinn virkar og hvað er að gerast. Íslensk börn fylgjast með fréttum en hafa ekki alltaf forsendur til að skilja umfjöllunarefnið. Það á ekki síst við þegar flókin eða erfið mál eru til umfjöllunar. Krakkafréttir eru leið okkar á RÚV til að mæta þörfum og forvitni barna, en við vilj- um líka fjalla um þeirra heim og áhugamál. Fjögur kvöld í viku birtast þau Guðmundur Björn og Ísgerður klukkan tíu mínútur fyrir sjö og fjalla um fréttir. Við erum rétt lögð af stað í langferð en tilgangurinn er að upplýsa, skemmta og fræða börn á öllum aldri. Með hæfilegri blöndu af „fullorðins- málum“ sem við setjum fram með hætti sem börn skilja, umfjöllun um börn, smáskammti af vísindavef og slettu af gamni vonumst við til að takast þetta ætlunarverk. Ábendingar frá kennurum Við leggjum áherslu á að tala ekki niður til barna heldur nálgast þau eins og viti bornar manneskjur sem hafa einfaldlega ekki sömu forsendur og fullorðnir til að vinna úr málum. Við vonumst líka til þess að krakka- fréttir geti verið tól í höndum foreldra og kennara, leið til að tengja til að mynda lífsleiknikennslu við atburði líðandi stundar. Það sem af er höfum við fjallað um hryðju- verk í París og stríð í Sýrlandi, flóttamenn, hrekkjavöku, knattspyrnukempu, presta og samkynhneigð, kvikmyndir og margt fleira. Krakkar grípa mörg þessara lykilorða á lofti þegar þau eru í umræðunni og kennarar fá ugglaust margar spurningar um þessi málefni, sem geta mörg hver verið snúin. Krakkafréttir gætu verið fróðleg leið til að takast á við þessar spurningar. Að sama skapi viljum við gjarnan heyra frá kennurum, bæði um það sem vel er gert og það sem miður fer, en ekki síður viljum við ábendingar um umfjöllunarefni. Það getur verið allt frá flóknum samfélagstengd- um spurningum sem krakkar varpa fram til jákvæðra og skemmtilegra viðburða sem þeir standa fyrir - og raunar flest þar á milli. KRAKKAR VILJA SKILJA HVERNIG FRÉTTIR VIRKA Sindri Bergmann Þórarinsson verkefnisstjóri KrakkaRÚV Sindri Bergmann Þórarinsson verkefnisstjóri KrakkaRÚV. FRÆÐSLUEFNI OG ERINDI FYRIR: snjalla kennara SK Ó LA ALLS STAÐ AR FO RELD RA O G FO RRÁÐ AM EN N NE M EN DU R Á Ö LL UM A LD RI heim iliogskoli.is Sjá NÁNAR saft.is Sjá NÁNAR FJÖLSKYLDUGAMAN: AÐ NÁ TÖKUM Á VEFNUM EM BLA TÖ LVUHUN DURIN N SAMFÉLAGS- MIÐLAR 10 H EILRÆ Ð I VÍRUS EKKERT H ATUR N ÁM SEFN I LEGGJUM BÖRNUM LIÐ VIÐ LÆSI ÖRUGG OG ÁBYRG FARSÍMANOTKUN Björgunarleiðangurinn NETEINELTI.IS SN JALLTÆ KI Í SKÓ LASTARFI #D eleteCyberbullying APP Fræðsla og námsefni frá Heimili og skóla og SAFT Bindi 2 Bindi 1 Bindi 3FRÆ Ð SLUPAKKI U M N ÝJA AÐ ALN ÁM SSK RÁ VIRKIR FO RELD RAR – BETRI GRU N N SKÓ LI VIRKIR FO RELD RAR – BETRI FRAM H ALD SSKÓ LI VIRKIR FO RELD RAR – BETRI LEIK SKÓ LI

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.