Þjóðmál - 01.03.2014, Blaðsíða 62
Þjóðmál voR 2014 61
Undarlegt má það kallast ef þeir sem nú ganga um í Loftleiðahúsinu minn
ast ekki veglega þessara sögulegu tíma í
íslenskri flugsögu nú þegar fimmtíu ár eru
frá stofnun Loftleiða . Þeir hljóta þó að
spyrja sjálfa sig: Væru til Flugleiðir ef ekki
hefðu verið til Loftleiðir?“
Þessi orð skrifaði ég í Morgunblaðið á 50
ára afmæli Loftleiða, 10 . mars 1994 . Því
miður eru þau enn í fullu gildi . Það virðist
vera staðfastur ásetningur ráðamanna í Flug
leiðum (nú Icelandair) að gera sem minnst
úr sögu Loftleiða og minnast afmælis ára
sem tengjast Loftleiðum með hang andi
hendi .
Hinn annálaði Loftleiðaandi hvarf vissu
lega við sameiningu íslensku flugfélaganna,
Loftleiða og Flugfélags Íslands, í nýju félagi,
Flugleiðum, árið 1974, en þá náði Flug
félagsarmurinn fullum yfirráðum í félaginu í
kjölfar arfavitlauss eignamats og valdabrölts
Sigurðar Helgasonar (eldri) . En maður hefði
haldið að nýjar kynslóðir og menn sem ekki
tengdust þeim átökum, sem þá voru innan
Flugleiða, kynnu að meta Loftleiðaævintýrið
að verðleikum og gerðu sem mest úr því,
fyrirtæki sínu til framdráttar . Ef allt væri
með felldu ætti að vera stór stytta af Alfreð
Elíassyni, stofnanda og for stjóra Loftleiða,
fyrir framan höfuðstöðv ar Icelandair við
Reykjavíkurflugvöll og Loft leiðahótelið ætti
að vera helgað sögu Loft leiðaævintýrisins .
En enginn er spámaður í sínu föðurlandi,
eins og þar stendur . Árið 1987 gaf hin virta
Smithsonianstofnun í Band aríkjunum út
bók ina Rebels and Reformers of the Airways
eftir R .E .G . Davies . Þar er fjallað um 25
helstu frumkvöðla flugsögunnar, menn sem
brutu blað í flugrekstri með því að róa gegn
straumi tímans . Af heims þekkt um mönnum
sem þarna er sagt frá má nefna Howard
Hughes og Freddie Laker, en meðal hinna
minna þekktu er Alfreð Elíasson . Kaflinn
um Alfreð ber yfir skriftina: Airline of the
Sixth Happiness (Hamingjuflugfélagið) .
Höf und urinn segir það algengan mis skiln
ing að Freddie Laker sé frumkvöðull lágra
flug far gjalda á flugleiðinni milli Evrópu og
Ameríku, það séu Loftleiðir Alfreðs Elías
sonar sem eigi þann heiður . Sjálfstæði Alfreðs
og hugrekki hafi verið annálað en helsta afrek
hans hafi verið að skapa flugfélag sem var
Jakob F . Ásgeirsson
„Stærsta ævintýri
lýðveldisins“
— 70 ár frá stofnun Loftleiða