Glettni - 18.01.1939, Blaðsíða 1

Glettni - 18.01.1939, Blaðsíða 1
GLETTNI 1. tbl. Miðvikudag 18. jan. 1939 1. árg. ÁVARP TIL LESENDA Það er að vísu sannast míla, að ærinu blaðakostur er nú daglega og vikuhga á boð- stólum fj'rir Reykv.'kinga og aðra landsmenn, en kennir, sem vænta má, misjafnra grasa. Ber æfinlega mest á stjórnmálablöðunum, sem troðið er í 'hvern mann, þótt lysíin á þessari andlegu fæðu, pólilísku argaþra i, skcmmum og svívirðingum sé oft lítii. En óhætt má fullyrða það, að léttur skemmtilestur, smáblöð og tímarit, eru af öllum þorra manna vel þegið. Sýna það viðtökur þær, sem slík rit liafa fengið undanfarið, bæði innlend og út- Ijend. I trausti þess, að ekki sé fyllilega bor- ,íð í bakkafullan læk, leyfum vér oss að bjóða bæjarbúum og öðruin landsinönnum þetta blað. Það er ákveðin ætlun vor, að vanda eí.ir föngum til (efnisins í blaðið, en það er aðal- Iega ætlað til skenrmtilesturs og mun sneiða hjá alvarlegum áhyggiuefnum. Á ’þessum síð- ustu og verstu tímuin er nægur kvíðinn, al- varan og barlómurinn, þótt mönnum í frí- stundum leyfist að hvíla hugann með glað- legri viðfangsefnum. Stjórnmál verðaa elcki rædd í þessu blaði, enda fylgir það engiim stjórnmálaflokki. En hitt mun blaðið leyfa sér, að gera að gamni sínu græzkulaust um ýmisíegt í opinberu lí i, bæði menn og málefni og verður þar öllum gert jafn liátt undir höfði. Þá mun blaðið oftast birta smásögur, gainankvæði, skrítl- ur og frásagnir úr daglegu lífi. Þakksamlega verður á móti tekið hverskonar efni f-rá Ies- endum og það birt, sem er í samræmi við áðursagða efnisáætlun blaðsins. Verði blaðsins hefir verið svo í hóf stillt sem frekast máiti verða og er þess því að væní.a, að kaupendur þykist fá „nokkuð fyrir snúð sinn‘; og taki blaðinu eftir því. ÚTGEFENDUR. „LEIR ERU AÐ SEGJA ÞAГ — Maður nokkur á Norðurlandi þótti góður gestur á hverjum bæ, fyrir hve fréttafróður hann var, en vafasamt var talið sannleiks- giltíi þeirra, en venja hans var að byrjja frá- sögn þeirra með þessum orðuin: „Þeir eru að segja íþa|5 . . og munum vér birta hér í blaðinu ýmiskonar orðasveim og gróusögur undir þessari fyrirsögn, án ábyrgðar á sann- leiksgildi þeirra. ,,Þeir eru að segja það —“ að einhver bezta vísan, sem gerð hefir verið um Jónas pg Jórunni sé eftir Þuru í Garði, sagt er að hún sé svona: Ef skoðað er fólksins eðli innst og a'Uf í þess háttafari á jcrðinni margur Jóhás finnst en Jórunn er sjaldgæfari. ,,Þeir eru að segja það —“ að a'.vinnubótavinnan í Reykjavík sé svo ábatasöm fyrir bæjarfélagið, að útsvörin hljóti innan skamins að lækka að miklum mun, nema þeir noti þá ágóðann til að koma á hitaveitunni, þó þeinr bjóðist nú víða lári til þess. ,,Þeir eru að segja það að Hafnfirðingar ineð Ásgeir kauplausa í fararbroddi ætli að taka að sér rekstur ís- lenzku stórútgerðarinnar, og fara þeir mynd- arlega af stað með togarakaup og hlutafélaga- stofnanir. Að sögn fást hlutabréfin ekki keypt fyrir „gula“ seðla, heldur eingöngu banka- seðla. ÍlAWDSBÓKAGAFö ÍSXANÍS

x

Glettni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glettni
https://timarit.is/publication/1187

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.