Mjölnir - 14.05.1929, Blaðsíða 1

Mjölnir - 14.05.1929, Blaðsíða 1
* **»*«* ' ^MJOLNIRJi r ' P c P’ ö? Utg.: Jafnaðarmannafjelag Siglfirðinga. I. áró. Siglufirði, Priðjudaginn 14. maí 1929. 1. tbl. Avarp tii verkalýðs Siglufjarðar. Fjelagar! Auðvaldið hefur sína menningu. Verka- lýðurinn verður að skapa sjer sína. Auðvaldið drotnar enn yfir hugum verka- lýðsins og gerir alt sem því er unt til þess að svæfa stjettarmeðvitund hans. Auðvaldið ræður yfir öllurri menningarstofnunum, og notar þær til þess, að rnóta æskulýðinn eftir sinni mynd. Verkalýðurinn á ekki ann- ars úrkosta en að senda börn sin í barnaskól- ana, en þar eru þau alin upp í þeim anda að geta orðið góðir borgarar. þ. e. dyggir þjónar auðborgaranna. Verkalýðurinn hefir alment ekki efni á að kaupa írekari fræðslu handa börnum sínum. En auðvaldið hefir sjeð unglingunum fyrir fræðslu, er það skáld- sagnaruslið, sem brjálar hugi æskulýðsins og beinir hugum hans frá alvarlegum eínum, þeim verkefnum sem bíða hans. Fátt er verkalýðnum þarfara í baráttunni við auðvaldið en andleg vopn. blöð og bæk- ur. Bækur til þess að umskapa hugsunarhátt verkalýðsins og gefa honum þann andlega styrk, sem með þarf í baráttunni um að kollvarpa núverandi þjóðskipulagi, og blöðin í daglegu baráttunni fyrir bættum lífskjörum og til andsvara þeirra sífeldu árása, sem verkalýðurinn verður fyrir af hendi auð- borgaranna. Jafnaðarmannafjel. Siglfirðinga henrsjeð að verkalýðssamtökunum hjer hefir verið hætta búin, þar sem þau hafa ekki átt neinn máls- vara, hjer á staðnum, er styrkfi þau í bar- daganum við borgaraflokkana. A sumrum eru hjer samankomnir þús- undir verkamanna, bæði á sjó og iandi, og er ilt til þess að vita, að allur þessi sægur hefur ekki átt kost á öðrum blöðum, að neinu ráði, en íhaldsblöðum þeim, sem hafa komið hjer út við og við. Ur þessu viljum við bæta og, hefur Jafnaðarmannafjelagið þvi ráðist í að gefa út blað þetta, og ætlast það til að nokkur bót sje ráðin á blaðleysi verkalýðsins hjer. ,Eins og þið sjáið er blaðið smávaxið, enda ekki til annars en að ráða úr brýnustu þörfinni. Pessvegna verðum við að hagnýta okkur „Verkamanninn“ fram- vegis, að svo miklu leiti sem þvíverðurvið komið vegna staðhátta, enda mun ekki veita af. Fjelagar! Við göngum að því vísu, 'að þið munið taka blaði okkar vel, útbreiða það og styrkja eftir getum með greinum, um öll þau mál er okkur varðar, og eins fjár- hagslega, ef efni leyfa. Með því einu móti að við sjeum öll samhuga, getum við haldið þessu blaði út áfram, stækkað það og gert það að þeim hamri, sern á sínum tíma mun leggja fram sinn skerf til þess að mylja þrældómskeðjuna, sem heimsauðvaldið fjötr- ar verkalýðinn í. ^ Útg..

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/1195

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.