Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.07.1985, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 04.07.1985, Blaðsíða 1
Þessi mynd var tekin í Njarðvíkurhöfn sl. mánudag af löndun úr b.v. Ymi, en t.v. sést ísbergið sem beið eftir að taka 100 tonn af frystum fiski frá fyrirtxkinu. fisktegundum og þá rákum við okkur strax á ýmsa van- kanta og var fólksleysið sá stærsti og versti. Við töld- um að þetta myndi lagast núna eftir að skólarnir hættu og skólakrakkarnir kæmu á vinnumarkaðinn. Við höfðum gert ráðstafan- ir til þess að hafa nægt hrá- efni og þ.á.m. hpfum við fengið togarann Ými til að leggja upp hjá fyrirtækinu og hefur hann nú landað þrisvar sinnum. Höfum við því 2 togara sem afla fyrir okkur, Dagstjörnuna og Ými, ásamt dragnótabát- um og síðan höfum við tekið karfa af humarbát- um, þannig að hráefnið hefur verið nægt, en það sem hefur skort er starfs- fólkið. Þetta hefur skapað það að húsið hefur ekki getað unnið með fullum afköst- um eins og nauðsynlegt er. Á síðastliðnu ári höfum við lagt í mikinn kostnað við vélvæðingu í sambandi við frekari pakkningar á neyt- endapakkningum, sem aðr- ar þjóðir eru komnar inn á, sbr. Danina. Settum við hér upp fyrstu pökkunarsam- stæðuna, en því miður hefur hún verið keyrð of Framh. á 19. síðu Stokkavör hf.: Kaupir frystihús Baldurs hf. í Keflavík Sjöstjarnan hf.: Mikil fólksekla kemur í veg fyrir fulla nýtingu hússins Hámarks vél- og tæknivæðing tekin upp -mun einbeita sér að vinnslu á ferskum fiski til útflutnings Kristinsson, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins, tali ný- lega. Einar sagði að þeir hefðu í ársbyrjun ætlað að fram- leiða mikið af loðnu fyrir Japansmarkað, en þangað hefði vantað mikið magn af frystri loðnu og voru þeir búnir að gera góðan sölu- samning. Síðan varð ekk- ert úr þessu sökum sjó- mannaverkfallsins sem var einmitt á þeim sama tíma og loðnan synti hér hjá og hún var í frystingarhæfu standi fyrir Japansmarkað. „Við höfðum undirbúið okkur mjög vel í þessa frystingu", sagði Einar, „þannig að þetta kom mjög illa við fyrirtækið og setti okkur mjög verulega úr skorðum. Að loknu verkfalli var reynt að keyra af stað aftur og þá með hefðbundnum Nýtt hlutafélag Stokkavör hf., hefur keypt frystihús Baldurs hf. í Keflavík. Að hinu nýja hlutafélagi standa Björn Ólafsson fram- kvæmdastjóri Baldurs hf. Eiríkur Hjartarson framkvæmdastjóri útflutningsfyrirtækisins ístros og Heklu hf. ásamt Stefni hf. sem er fyrirtæki í eigu Eiríks og Heklu hf. Mun Björn Ólafsson verða framkvæmda- stjóri og stjórnarfor- maður Stokkavarar hf. en hann er eigandi að 75% hlutafjár, en hinir aðilarnir eru saman með 25%. Hið nýja fyrirtæki mun einbeita sér að vinnslu á ferskum fiski Að undanförnu hefur verið tilfinnanlegur skort- ur á vinnuafli hjá Sjöstjörn- unni hf. í Njarðvík, en þar hefur verið mikil vinna og er framundan. Auk þess er fyrirtækið að vél- og tækni- væðast og endurskipu- leggja vinnslurásina og breyta vinnuaðstöðunni í takt við tímann. Að þessu tilefni tókum við Einar til útflutnings og mun Stefnir hf. annast þann útflutning. Munu tveir bátar leggja upp hjá fyrirtækinu, Gullþór og Baldur að hluta. Er áætlað að fyrirtækið veiti milli 25 og 30 at- vinnufyrirtæki þegar það verður komið í fullan gang. v Er gaman til þess að vita að enn skuli finnast bjartsýnismenn meðal útvegsmanna á Suður- nesjum, þar sem hrun sjávarútvegsins blasir víða við. - epj. í frystihúsi Stokkavarar við Hrannargötu verður framvegis unninn ferskur fiskur til útflutnings. Lögreglan kyrrsetti bát í Keflavíkurhöfn - var tekinn af skrá sem flskiskip 1979 og hafði því ekki haffærisskírteini Straumnesið við bryggju í Keflavík, eftir að hafa verið kyrrsett þar í síðustu viku. 10 tonna bátur Straum- nes frá Reykjavík var kyrr- settur í Keflavíkurhöfn af lögreglunni í síðustu viku og var þar enn þegar síðast fréttist. Hefur bátur þessi ekki haft haffærisskírteini síðan 1979, en hafði þó heimild til notkunar sem vinnubátur innan hafnar- svæðisins í Grindavík. Bátur þessi sem smíðað- ur var fyrir 60 árum hefur verið gerður út frá Suður- nesjum nokkrum sinnum á sínum ferli s.s. á árunum 1944-50, hét hann Sægeir og var þá gerður út frá Keflavík og síðan aftur á árunum 1974-76 undir nafninu Kolbeinsey. En frá 1982 hefur eigandi bátsins verið í Grindavík og þann tíma hefur hann haft nafn- ið Straumnes. Skv. sjómannaalmanaki Fiskifélagsins var bátur- inn dæmdur ónýtur í okt. 1979 og samkvæmt skrá Siglingamálastofnunar var skipinu fargað það ár, eins og er með skip sem fara í gegnum úreldingasjóð. En í ársbyrjun 1982 er báturinn kominn á flot á ný og nú í Grindavík, en skv. lögum um úreldingu fiskiskipa má ekki nota skipið áfram sem slíkt og því var báturinn nú skráður sem vinnubátur, jafnframt því sem gefið var leyfi til takmarkaðra nota, þ.e. að skipið notaðist aðeins innan hafnarsvæðis- ins í Grindavík. Fyrir örfáum vikum urðu menn síðan varir við að hafin var útgerð með bátinn og landaði hann m.a. í Keflavík á þeim tíma, þó hann hefði hvorki haffærisskírteini né afk- kvóta til að veiða eftir. Á bátnum er ekkert skrán- inganúmer en á stýrishúsi hans stendur að hann sé frá Reykjavík. Eins og fyrr segir hefur lögreglan nú kyrrsett hann í Keflavíkurhöfn og er nú unnið að rannsókn málsins og að rannsókn lokinni verður málið sent embætti bæjarfógetans í Keflavík og sýslumannsins í Gull- bringusýslu til umfjöllunar eins og hvert annað saka- mál. - epj.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.