Víkurfréttir - 28.11.1991, Blaðsíða 18
Víkurfréttir
28. nóv. 1991
18
i—
Iþróttir
SFS BIKARMEISTARI
-sigraði í bikarkeppnina með mesta stigafjölda sem náðst hefur
Sundfólkið í Sundfélaginu
Suðurnes stóð sig frábærlega í
Bikarkeppninni í sundi sem
fram fór í Sundhöll Reykjavíkur
um helgina. Fyrirfram hafði
verið búist við þvf að félagið
yrði í baráttunni um efsta sætið,
en félagarnir gerðu gott betur en
það. Þeir náðu samtals 29.029
stigum, sem er meira en hefur
náðst nokkru sinni áður í Bik-
arkeppninni. I öðru sæti hafnaði
lið Ægis, með 27.415 stig, og
Skagamenn, fyrrum þrefaldir
meistarar, urðu þriðju með
23.905 stig.
Karlalið SFS bar höfuð og
herðar yfir önnur lið, og unnu
strákarnir í 12 af 13 sund-
greinum. Stúlkurnar stóðu sig
einnig vel og unnu þrjár greinar.
Eðvarð Þór Eðvarðsson varð
stigahæsti maður mótsins með
2.627 stig.
Annars varð árangur ein-
stakra sundmanna þessi:
Eðvarð sigraði í 100 m
baksundi, lOOmbringusundiog
200 m baksundi.
Arnar Freyr Ólafsson sigraði
í 200 m flugsundi, 200 m skrið-
sundi, og 200 m fjórsundi.
Magnús Már Ölafsson sigr-
aði í 100 m flugsundi og 100
m skriðsundi, og varð annar í
200 m skriðsundi.
Ævar Örn Jónsson sigraði í
800 m baksundi og varð annar
í 100 og 200 m. baksundi.
Þeir fjórmenningar skipuðu
einnig boðsundsveit SFS, sem
sigraði í 4x100 m fjórsundi og
4x100 m skriðsundi.
Hjá kvenfólkinu stóð Bryn-
dís Ólafsdóttir sig vel. Hún
sigraði í 100 m skriðsundi, varð
önnur í 200 m skriðsundi, og
þriðja í 200 m flugsundi.
Elín Sigurðardóttir sigraði í
200 m baksundi og varð þriðja
í 100 m flugsundi.
Ungu stúlkurnar stóðu sig
líka vel, Eydís Konráðsdóttir
sigraði í 100 m baksundi,
Berglind Daðadótttir varð önn-
ur í 100 m bringusundi og
Eygló Anna Tómasdóttir varð
önnur í 200 m bringusundi.
Auk ofantalinna, vann
Magnús Konráðsson til tveggja
verðlauna, fyrir 2. sæti í 200 m
bringusundi og 3. sæti í 100 m
bringusundi, og Gunnar Ar-
sælson einnig, fyrir2. sæti í 100
m skriðsundi og 3. sæti í 200
m flugsundi, þrátt fyrir flensu.
Karen valin golf-
maður ársins
Stjórn Golfsambands íslands hefur valið
Karen Sævarsdóttur sem Golfmann íslands. Er
þetta í fyrsta skipti sem konu hlotnast þessi
heiður. Karen er íslandsmeistari kvenna og
íslandsmeistari unglinga og hefur unnið nær
ulla titla sem hún hefur reynt við á árinu.
Arangur Karenar í golfi er hreint með ó-
líkindum. Yfirburðimir sjást best þegar forgjöf
hennar er skoðuð, en hún er 4,6.
Brids:
• Karen
Sævarsdóttir.
Sveit Torfa sigraði
með glæsibrag
Sveit Torfa S. Gíslasonar sigr-
aði með fáheyrðum yfírburðum á
minningarmóti um Guðmund Ing-
ólfsson, sem lauk sl. mánudag.
Fékk sveilin 156 stig af 175
mögulegum. Þetta gerir að með-
altali 22.28 stig í leik eða 89.14%
í skor! Þess má geta að í firra vanst
mótið á 68% skori en nú varð
sveitin í öðru sæti með 78.85%
skor, sem hefði nægt til yf-
irburðasigurs í fyrra. Staða efstu
sveita varð þessi að lokum.
1. sv. Torfa S. Gíslasonar.....156
2. sv. Fast.þj. Suðurnesja......138
3. sv. Kjartans Ólafssonar......123
4. sv. Björns Blöndal.<..........103
Um næstu helgi stendur mikið
til hjá Bridsfélagi Suðumesja, en
þá verður haldin árshátíð og spil-
aður verður árs-
hátíðartvímenningur, þar sem öll-
um er boðin þátttaka. A
laugardaginn komanda verður sem
sagt spilaður tvímenningur með
peningaverðlaunum. Spilað verð-
ur ó húsi oddfellow-manna í
Grófinni og verður byrjað kl.
19:30. Um kvöldið munu síðan
bridsarar halda árs- og upp-
skeruliátíð í K-17. Boðið er upp á
máltíð og ball á kostakjörum eða
kr. 1.800 á mann. Áætlað er að
húsið opni kl. 19:30 og borðhald
hefjist kl. 20:00. Nú þegar stefnir
í góða þátttöku, en fyrir þá sem
ekki eru búnir að gera upp hug
sinn er bent á að hafga samband
við formann félagsins, Ola Þór
Kjartansson í síma 12020 eða Jó-
hannes skemmtinefndafrömuð í
síma 12621.
Næsta mánudag mun síðan
hefjast jólatvímenningur félagsins
sem verður 2-3 kvölda barómeter.
Spilamennskan hefst kl. 19:30 og
er spilað í Gistihúsinu Kristínu í
Njarðvík. Nýir spilarar eru vel-
komnir.
Stjórnin.
Sigurlið Sundfélagsins Suðurness saman komið eftir glæsilegan sigur.
DV-mynd GS.
Bridsfélacgið
Muninn
Haustsveitakeppnin hélt á-
fram miðvikudaginn 20. nóv-
ember og sem fym þá hcldur sveit
Ameyjar forystu með fullt hús
stiga eða 50 stig.
1. sveit Ameyjar..............50 stig
2. sveit Gunnars Guöbj........31 stig
3. sveit FMS..................27 stig
4. sveit Karls. G. Karlss.....18 stig
5. sveit Jóhannes Ben.........17 stig
6. sveit Halldórs Aspars......16 stig
7. sveit Ingimars Surnar......14 stig
Sveit Jóhannesar Bene-
diktssonar sat hjá í þessari um-
ferð. Þriðja umferðin var spiluð
í gær og þá átti sveit FMS að sitja
hjá.
Opna Suð-
urnesja
mótið í pílu
Opna Suðumesjamótið í pílu-
kasti verður haldið nú um helg-
ina í Edenborg. Hafnargötu 30,
Keflavík. Keppt verður bæði í
einmenning og tvímenning
(501).
Á laugardeginum verður leik-
in tvím. og hefst keppnin kl.
12.00 og síðan einni. á sunnu-
daginum og hefst hann á sama
tfma þ.e. kl. 12.00. Skráning
keppenda er í síma 12000 á
Edenborg.
íslandsmótið verður síðan
haldið í Keflavík 14. og 15. des-
ember nk.
Fyrsta tap
HKN
- ÍR-ingar sterkir á
heimavelli
HKN menn sóttu ekki gull í
greipar ÍR-inga í laugardalshöllinni
á sunnudagskvöldið. HKN náði sér
aldrei á strik í leiknum og ÍR sigr-
aði örugglega, 26:19.
Strákamir í HKN þurfa þó ekki
að örvænta, þetta er fyrsti leikurinn
sem þeir tapa í Islandsmótinu.
HKN situr nú í öðru sæti 2. deildar
með 12 stig eftir sjö leiki.
Liðið leikur næst hér heima á
laugardaginn, gegn Ögra Liðinu
hefur ekki gengið sem best í mót-
inu og hefur enn ekki unnið leik.
Hefst leikur liðanna kl. 14.
- fréttir
Þrír tipparar fengu
13 rétta hérlertdis og
hlutu rúmar átta
milljónir í sinn hlut
og er það sænska
pottinum að þakka.
Má búast við traffík
við sölukassana fyrir
næstu helgi og helgar
þegar svona tölur
geta komið í hlut ís-
lenskra tippara.
Minnum Suðumesja-
tippara á getrauna-
númer sinna fé-
laga....
UMSJÓN:
PÁLL KETILSSON
Jafnir í vitleysu
Þeir félagar í ÍBK, Ingvar
Guðmundsson og Kristinn
Guðbrandsson skildu jafnir í
síðustu leikviku og reyna því
aftur með sér núna. Þeir
fengu báðir 8 rétta. Um-
sjónamaður getraunaleiksins
gerði mistök á mistök ofan
við vinnslu greinarinnar.
Fyrir það fyrsta víslaði hann
röðum tipparana og í annan
stað gleymdi hann einu
„rnerki" við leik Tottenham
og Sheff. Utd. en þar tippaði
Kiddi tvöfalt, á heimasigur
og útisigur og fékk rétt á sig-
ur Sheffieid. Þetta leiðréttum
við hér með og því halda þeir
félagar áfram í leiknum.
Undirritaður biðst afsökunar
á mistökunum og lofar því að
svona komi ekki fyrir aftur.
Ingvar fær leik með sínu
liði á seðlinu, Derby. en
báðir tippa þeir á sigur þar.
Kristinn Ársenal-aðdáandi
fær ekki sitt lið á seðilinn
núna en segir að það skipti
ekki máli því Ingvar detti út
núna...
9.H
Ingvar Kristinn
Chelsea-Notth. Forest 2 i
Coventry-Southampton i i
Crystal Palace-Man. Utd. 1X2 12
Leeds-Everton IX 1
Liverpool-Norwich 1 1
Man. City-Wimbledon 1 1
Notts County-Q.P.R. 12 1X2
Oldham-Aston Villa 2 X2
Sheff. Utd.-Luton i 1
West Ham-Sheff. Wed. 2 1
Blackbum-Middlesbro 1X2 1X2
Bristol City-Charlton 2 1
Derby-Leicester i 1