Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 27

Náttúrufræðingurinn - 2014, Blaðsíða 27
27 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Hallmundarkviða, eldforn lýsing á eldgosi Greint er frá athugunum á fornu kvæði sem kallað hefur verið Hall- mundarkviða. Í því er lýsing á eldgosi og afleiðingum þess og þar kemur einnig fram viðhorf fornmanna til náttúruhamfara af þessu tagi. Talið hefur verið að Hallmundarhraun í Borgarfirði hafi runnið í umræddu gosi. Færð eru rök að því að kvæðið sé ort af sjónarvotti eldsumbrotanna. Það er fremur torrætt en þegar rýnt er í textann frá náttúrufræðilegu sjónarmiði kemur í ljós að lýsingar þess bæta ýmsu við þá mynd sem jarðfræðingar hafa gert sér af gosinu, aðdraganda þess og afleiðingum. Samkvæmt Hallmundarkviðu hófst það með jarðskjálftum og skriðuföllum í fjöllum, síðan braust út eldur í eða við jökul, hraun runnu, hellar urðu til, vatnsföll breyttu farvegi sínum, rask varð í byggð og mannskaði, heitar lindir, sem menn böðuðu sig í, spruttu upp undan hrauninu. Kvæðið er ekki einungis lýsing á þessum atburðum, það er líka mikilvæg heimild um vangaveltur og umræður fornmanna um eldvirkni, ástæður eldgosa og þau reginöfl sem þar takast á. Frá náttúrufræðilegu sjónarmiði er Hallmundarkviða einn merkilegasti texti fornritanna. Náttúrufræðingurinn 84 (1–2), bls. 27–37, 2014 Árni Hjartarson Inngangur Landnámsmenn Íslands komu frá Skandinavíu og Bretlandseyjum og þekktu ekki til eldfjalla og eldvirkni nema hugsanlega af afspurn sunnan frá Ítalíu. Fljótlega hafa þeir þó orðið vitni að eldsumbrotum, bæði með beinum og óbeinum hætti. Mikið gos varð á Veiðivatnasvæðinu í upp- hafi landnámstíðar og þótt frum- herjar landnámsmanna hafi ekki séð til gosstöðvanna frá láglendinu urðu þeir vitni að gjóskufallinu sem dreifðist vítt og breitt um landið. Fljótlega hafa menn einnig orðið vitni að gjóskugosum í Vatnajökli, Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli. Fyrstu hraungosin sem menn sáu hafa hugsanlega orðið á Reykjanes- skaga en eldgosahrina virðist hafa orðið í Brennisteinsfjöllum á 10. öld, svokallaðir Kristnitökueldar. Talið er að Tvíbollahraun og Hellnahraun sunnan Hafnarfjarðar hafi runnið þá.1,2 Aðalgígar þess eru í Grinda- skörðum og blasa við frá Reykjavík. Um svipað leyti varð mesta hraun- gos Íslandssögunnar þegar Eldgjá brann 934 og líklega hafa þær náttúruhamfarir bundið endi á landnámið. Eftir gosið hefur Ísland ekki þótt eftirsóknarvert til búsetu og þá dró mjög úr fólksflutningum til landsins. Hallmundarhraun í Borgarfirði er einnig talið hafa runnið á fyrstu áratugum byggðar í landinu, eins og nánar verður rætt um hér á eftir. Á landnámsöld hafa eldgos, eðli þeirra og orsakir, vafalítið orðið mikið umræðu- og umhugsunarefni fólksins sem var að koma sér fyrir í þessu nýja og einkennilega landi. Sennilega hafa einhverjir áttað sig á því að hér var um hliðstætt fyrir- brigði að ræða og þekkt var á Ítalíu Ritrýnd grein / Peer reviewed
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.