Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 22
22 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 8. desember 2016 Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is Það lítur ekki út fyrir að mikið hafi hægst um hjá Andra Snæ Magnasyni þótt hann sé ekki leng-ur í forsetaframboði og aftur orðinn „almennur borgari“ eins og hann orðar það hlæjandi. Síminn hringir stanslaust á meðan við spjöllum, facebook-skilaboðin hrúgast inn og seinna um daginn á hann eftir að mæta bæði í sjón- varps- og útvarpsviðtal. „Það hefði orðið lágmarks lífsstílsbreyting að verða forseti,“ segir hann og glottir. Spurður hvort ekki hafi verið erfitt að vera linnulaust í kastljósi fjölmiðla með alla fjölskylduna í þrjá mánuði lætur hann lítið yfir því. „Fjölskyldan var hin róleg- asta. Þetta var náttúrulega þriggja mánaða törn en krakkarnir urðu mjög auðveldlega „tjillaðir“ á þessu. Unglingar búa bara í sínum algórythma, í sinni snapchat-bólu, og þau vissu varla að þetta væri að gerast. Það eru líka allir vanir því að ég sé að vesenast eitthvað. Stóra breytingin var að þurfa að etja konunni minni út í sviðsljósið, það hafði hún aldrei þurft að gera áður, minnugur þess hvernig var að gefa út mína fyrstu bók þá veit ég að það er alltaf dálítið átak að stíga inn í kastljósið. Fyrir mig var þetta kannski aðeins brjálaðra en gott jólabókaflóð, þar sem maður er stundum að lesa upp þrisvar á dag.“ Andri Snær segir að það áhuga- verðasta við að taka þátt í kosninga- baráttu til forsetakjörs hafi verið að fá innsýn inn í hinn pólitíska veruleika. „Með því að bjóða þig fram ertu að krefjast þess að þjóðin myndi sér skoðun á þér, en ég var svo sem búinn að standa í því áður í sambandi við Draumalandið. Það var undarleg upplifun þegar styrk- leikum manns er snúið upp í veik- leika og svo er þessi þjóð náttúru- lega alltaf að fá æði og skipa sér í bylgjur, það er bara happdrætti hvar bylgjan lendir.“ Enginn leiðinlegur status um stjórnmálamann Andri Snær segist í sjálfu sér ekki sjá eftir því að hafa boðið sig fram, þetta hafi verið góður skóli, en auð- Andri Snær Magnason upplifði það á eigin skinni, þegar hann bauð sig fram til forsetaembættis í vor, að það er hægara sagt en gert að brjóta á bak aftur fyrirframgefnar hugmyndir fólks um annað fólk. Hann segir þó ástæðuna fyrir því að sögurnar í nýja smásagnasafninu, Sofðu ást mín, eru persónulegri en nokkuð sem hann hefur skrifað áður ekki vera þá að hann vilji að fólk sjái hann í réttu ljósi. Það hafi bara verið kominn tími á þennan persónulega tón. Það er enginn dæmigerður Myndir | Hari vitað sé alltaf sárt að tapa. „Það kom upp í mér keppnisskapið þegar ég fór að ná tökum á þessu og mig langaði til að sigra. Fyrst eftir að ég bauð mig fram fannst mér þetta erfitt, gat eiginlega hvorki talað né skrifað og vissi ekkert lengur hver ég var. Það tók dálítinn tíma að finna réttan tón til að koma skoðunum mínum á framfæri, ekki of upphafinn og ekki of almennan. Það var líka merkilegt að kynnast því hvernig fjölmiðlar virka í svona baráttu og hvernig skoðanakann- anir eru notaðar til að ákveða hver er marktækur og hver ekki. Ég ber mun meiri virðingu fyrir stjórn- málamönnum eftir þessa reynslu, ég held ég hafi ekki einu sinni sett leiðinlegan status um nokkurn stjórnmálamann á facebook síðan í apríl. Þannig að kannski gerði þetta mig að betri manni.“ Það voru mjög margir sem tönnl- uðust á því í forsetabaráttunni að Andri Snær ætti miklu frekar heima á þingi en sem forseti. Hvað fannst honum um það? „Það var kannski aðferð til að koma manni út úr um- ræðunni og kannski var sumt fólk sem er umhverfissinnað jafnvel til í að jaðarsetja sjálft sig með því að láta eins og umhverfismálin væru ekki sameinandi fyrir þjóðina, eða eitthvað sem þjóðhöfðinginn ætti að leggja áherslu á, heldur ætti heima í einhverjum litlum stjórn- málaflokki, helst í stjórnarand- stöðu. Ég sá þetta alltaf fyrir mér sem áhugavert verkefni vegna þess að forsetatitlinum fylgir að geta kallað nánast hvern sem er í heim- inum á sinn fund til að ræða mál- in og þess vegna, meðal annars, er embættið áhugavert sem vettvang- ur til að taka þátt í umræðunni í heiminum. Þetta eru einfaldlega brýnustu viðfangsefni þessarar aldar.“ Þekkir flokkunaráráttuna Andri Snær viðurkennir að fram- boð Davíðs Oddssonar hafi breytt tóninum í fólki mikið, margir hafi sagt það hreint út að burtséð frá skoðunum myndu þeir kjósa þann sem líklegastur væri til að fella Dav- íð. En heldur hann að Davíð hafi boðið sig fram til að hindra kjör hans sjálfs? „Ja, ef maður veit að þessir menn eru herfræðingar sem hafa lesið sinn Machiavelli þá hefur þeim annað hvort mistekist ætlun- arverkið eða tekist. Ég veit það Þótt það sé sárt að tapa sér Andri Snær ekki eftir því að hafa boðið sig fram til for- setaembættisins. Það hafi verið góður skóli. Hlíðasmára 8 | Skipholti 70 | Spönginni 13 Sími 554 7200 | Það eru girnileg jól framundan í Hafinu Stútfullar búðir af stórum hátíðarhumri. Heimalagaður reyktur og grafinn lax, sósur og ómótstæðileg humarsúpa. Opnunartími yfir hátíðarnar: Alla virka daga frá 10-18:30 Aðfangadag frá 09-12 Gamlársdag frá 10-14 2016

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.