Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 39

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 39
| 39FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2017 Skáldsagan Roots, eða Rætur, eft- ir Alex Haley kom út árið 1976 og sló samstundis í gegn. Sjónvarpss- erían birtist á skjánum ári síðar og sló rækilega í gegn í Bandaríkjun- um og víðar og er óhætt að segja að hún sé algjört költ og stór hluti af menningarsögu Bandaríkjanna. Serían sem nú er sýnd á RÚV er endurgerð BBC á upprunalegu þáttunum. Sagan hefst á nítjándu öld í Gambíu og fylgir eftir Kunta Kin- te sem var sendur sem ungling- ur í þrældóm til Bandaríkjanna. Síðar er fylgst með afkomendum hans, þar á meðal höfundinum sem rekur ættir sínar til Kinte fjöl- skyldunnar í Gambíu. og hver einasta króna sem gefin er úr vestrænu samfélagi margfaldast í þróunarlandi og Rauði krossinn og fleiri eru að gera kraftaverk víða, bæði í neyðaraðstoð og þróunarað- stoð.“ Innvígð í Kinte-fjölskylduna Eftir dvölina í Gambíu hefur Guð- rún ferðast mikið um Afríku en það blundaði alltaf í henni að skoða sögu Kunta Kinte betur. Árið 2000 vann hún sem útsendingastjóri á Stöð 2 og sama ár fór hún með vin- um sínum í fuglaskoðunarferð til Gambíu. „Ég greip með mér upptökuvél til að vinna efni. Ég hafði sett mig í samband við Lamin Cessay sem var 9. ættliður frá Kunta Kinte í þeim tilgangi að heimsækja Juffure sem var heimaþorp Kunta Kinte og spjalla við Bintu Kinte sem er 6. ættliður frá Kunta Kinte. Öll sam- skipti eru stirð vegna símaleysis en þetta hafðist að lokum og ég heim- sótti þorpið Juffure og Binte Kinte í nokkur skipti. Þetta var allt saman dásamlegt ævintýri, spenningurinn við að hitta Binte og koma í þorpið og svo vonbrigði mín með hvernig þetta var allt saman en svo í raun gleði og kímni yfir þessu öllu, í raun allt svo dapurt en líka svo dásam- legt. Jaffure er heilt þorp sem gerir út á Kunta Kinte túrisma. Nokkrir af Kinte ættinni eru á launaskrá hjá ríkinu bara fyrir að vera þeir sjálfir í þorpinu og sitja og gera sig breiða. Um leið og komið er í þorpið spretta fram sölumenn og leiðsögumenn og allt er til sölu, saga og minjagrip- ir. Það var búið að vara mig við að Juffure væri „Tourist trap“ og það var raunin. Binte var mikill karakt- er og okkur varð vel til vina, hún hló mikið og vildi vita um Ísland en inn á milli datt hún í sölugírinn og spurði ítrekað hvort ég ætlaði ekki að lokka fleiri túrista til Juffure frá Íslandi. Ég fékk símtöl á hótelið mitt frá Lamin þar sem hann tilkynnti mér að Binte vildi fá ilmvatn að gjöf í næstu heimsókn og ítrekað var ýjað að peningagjöfum til að styrkja þetta litla þorp,“ segir Guðrún sem hlýddi öllu, spilaði með og hafði gaman af. Hún heimsótti þorp- ið nokkrum sinnum, dvaldi lengi á staðnum og kynntist Kinte-fjöl- skyldunni vel. „Ég talaði enn smá mandinku og gat svolítið spilað mig á heimavelli sem hjálpaði. Í síðustu heimsókninni þá var fólki úr þorp- inu boðið í mat og haldin var veisla fyrir mig þar sem gambískur töfra- læknir (Marabout) töfraði svolítið, veifaði einhverju og dansaði svo nokkra hringi og þá sagði Lamin mér að ég hefði verið innlimuð inn Sýning um þrælasöluna, Exhibition on the slave trade. Safnið gengur undir nafninu Roots museum. í Kinte-klanið og ég mætti núna kalla mig Kinte. Konur dönsuðu og sungu og ég var heiðursgesturinn. Þetta var skemmtilega súrrealískt og ógleymanlegt.“ Margir leita upprunans í Juffure Sextán ár eru síðan Guðrún var í Juffure og segist hún ekki vita hvernig þorp Kinte fjölskyldunn- ar er í dag. „Alex Haley, höfundur Róta, er afkomandi þræla og telur sig hafa fundið uppruna sinn í Kinte ættinni í Juffure. Þegar ég var þarna þá var talað um að verið væri að rannsaka þetta nánar og vísinda- legar, en ég veit ekkert hvernig það endaði. Ég velti því hins vegar fyrir mér hvort Kunta Kinte sé ekki bara samnefnari fyrir alla þræla, forfeð- ur Alex Haley og allra Bandaríkja- manna af afrískum uppruna. Kinte er ekki óalgengt nafn í Vestur-Afr- íku og hvort Kinte-ættin í Juffure er sú eina rétta skiptir í raun engu máli. Það er stemning að koma til Juffure og hitta Kinte ættina og ár- lega er haldin Roots hátíð þar sem Bandaríkjamenn af afrískum upp- runa leita uppruna síns og fræðast um þrælahaldið. Í Juffure er safn um þrælasöluna og hægt er að heimsækja James Island sem heitir núna Kunta Kinte Island þar sem var fangelsi og þrælarnir biðu þar áður en langa ferðalagið yfir haf- ið hófst. Tilgangurinn er að halda sögunni á lofti og læra af reynslunni og honum er náð. Hvort ég ræði við mannanafnanefnd um að bæta Kin- te við nafnið mitt verður svo bara að koma í ljós.“ Allt að verða vitlaust? 20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki Omeprazol Actavis – Við brjóstsviða og súru bakflæði H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA / A ct av is 5 1 1 1 3 0 Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur virka efnið ómeprazól sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast „prótónpumpuhemlar“ og verka með því að draga úr sýruframleiðslu magans. Omeprazol Actavis er ætlað til notkunar hjá fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Frábendingar: Ofnæmi fyrir ómeprazóli eða öðru innihaldsefni lyfsins. Ofnæmi fyrir lyfjum sem innihalda aðra prótónpumpuhemla. Ef þú tekur lyf sem inniheldur nelfinavír (við HIV sýkingu). Varúð: Ekki taka Omeprazol Actavis lengur en í 14 daga án samráðs við lækni. Ef einkennin minnka ekki, eða ef einkennin versna, skaltu ræða við lækninn. Omeprazol Actavis getur dulið einkenni annarra sjúkdóma. Því skaltu ræða strax við lækninn ef eitthvað af eftirfarandi kemur fyrir þig áður en þú tekur eða meðan þú tekur Omeprazol Actavis: Ef þú léttist að ástæðulausu og átt í erfðleikum með að kyngja, færð magaverk eða meltingartruflanir, kastar upp mat eða blóði, hefur svartar hægðir (blóðlitaðar hægðir), ert með alvarlegan eða langvarandi niðurgang (ómeprazól hefur verið tengt við lítillega aukningu á smitandi niðurgangi), hefur verið með magasár eða gengist undir skurðaðgerð á meltingarfærum, ert á samfelldri meðferð við einkennum meltingartruflana eða brjóstsviða í 4 vikur eða lengur, þjáist stöðugt af meltingartruflunum eða brjóstsviða í 4 vikur eða lengur, ert með gulu eða alvarlegan lifrarsjúkdóm, ert eldri en 55 ára með ný eða nýlega breytt einkenni. Sjúklingar skulu ekki nota ómeprazól í fyrirbyggjandi tilgangi. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga og brjóstagjöf: Segðu lækninum frá því ef þú ert barnshafandi eða ert að reyna að verða barnshafandi áður en þú tekur Omeprazol Actavis. Læknirinn mun ákveða hvort óhætt sé fyrir þig að nota Omeprazol Actavis ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti. Skömmtun: Sýruþolnu hylkin má taka fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Mælt er með að hylkin séu tekin inn að morgni dags. Venjulegur skammtur er eitt 20 mg hylki eða tvö 10 mg hylki einu sinni á sólarhring í 14 daga. Hafðu samband við lækninn ef einkennin hafa ekki horfið á þessum tíma. Nauðsynlegt getur verið að taka hylkin í 2–3 daga samfellt áður en einkennin réna. Hylkin á að gleypa með glasi af vökva. Ekki má tyggja eða mylja hylkin. Aukaverkanir: Hafðu samband við lækni strax ef eftirfarandi einkenni koma fram: Öndun verður skyndi- lega hvæsandi, þroti í vörum, tungu og hálsi eða líkama, útbrot, yfirlið eða kyngingarörðugleikar (alvarleg ofnæmisviðbrögð). Roði í húð með blöðrum og húðflögnun. Einnig getur verið um að ræða verulega blöðrumyndun og blæðingar í vörum, augum, munni, nefi og kynfærum. Þetta getur verið „Stevens- Johnsons heilkenni“ eða „eitrunardrep í húðþekju“. Gul húð, dökkt þvag og þreyta sem geta verið einkenni lifrarsjúkdóms. Algengar aukaverkanir: Höfuð- verkur. Áhrif á maga eða þarma (niðurgangur, magaverkur, hægðatregða, vindgangur). Ógleði eða uppköst. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Nóvember 2015.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.