Fréttablaðið - 14.02.2017, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 14.02.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —3 8 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 1 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 frÍtt N1 kortið færir þér bæði afslátt og punkta Besta fyrir náttúruna HeilbrigðisMál Ekki verður neinu fjármagni varið til upptöku nýrra lyfja hér á landi í ár þar sem ekki er gert ráð fyrir því í fjárlögum. Fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Land- spítala segir það bitna á sjúkling- unum sjálfum. Guðrún I. Gylfadóttir, formaður Lyfjagreiðslunefndar, segir ekkert svigrúm á þessu ári til að taka ný lyf í notkun. Hún hafi gert heilbrigðis- ráðherra grein fyrir þessari stöðu. Eins og staðan sé núna verði hins vegar þau lyf sem þegar er búið að samþykkja notuð. Þau nýju bíði enn um sinn. „Upptaka nýrra lyfja er kostn- aðarsöm og öll vestræn ríki vinna nú að því að stemma stigu við kostnaði við upptöku nýrra lyfja. Við höfum tekið upp fjölda lyfja á síðustu árum. Nú er hins vegar ekki svigrúm til upptöku nýrra lyfja,“ segir Guðrún. „Lyfjagreiðslunefnd vinnur eftir mjög skýrum ramma og það er stjórnvalda að setja fjár- magn til upptöku nýrra lyfja.“ María Heimisdóttir, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Land- spítalans, segir spítalann líta þetta sömu augum. „Að okkar mati mun þetta helst koma niður á sjúklingunum sjálfum,“ segir María. „Vissulega er bagalegt ef ný lyf verða ekki tekin upp hér á landi á þessu ári.“ Samkvæmt Frumtökum, samtök- um frumlyfjaframleiðenda, hefur Ísland dregist aftur úr varðandi upptöku nýrra krabbameinslyfja frá árinu 2013. Af 25 nýjum lyfjum við illkynja krabbameinum hefur Ísland tekið átta í notkun. Noregur hefur hins vegar veitt leyfi fyrir 24 lyfjum, Danir og Svíar 22 og Finnar hafa tekið upp 17 þessara lyfja. Óttarr Proppé heilbrigðisráð- herra segir stöðuna erfiða vegna alvarlegrar framúrkeyrslu á síðasta ári. Hún sé til skoðunar í ráðuneyt- inu um þessar mundir. „Það sem kom í ljós er að kostn- aðurinn á árinu 2016 fór alvarlega fram úr áætlunum. Kostnaður af lyfjum er því miður vandamál og viðvarandi vandamál að upptaka nýrra lyfja verður dýrari og dýrari,“ segir heilbrigðisráðherra en bendir á að hægt sé að laga stöðuna. „Á síðasta ári var samþykkt að auka innspýtingu í málaflokkinn og við erum að skoða það núna.“ sveinn@frettabladid.is Innleiðum mun færri lyf en nágrannaþjóðir Þrefalt fleiri ný krabbameinslyf hafa verið tekin í notkun í Noregi, Danmörku og Svíþjóð en á Íslandi frá árinu 2013. Ekkert svigrúm er sagt í fjárlögum til að taka upp ný lyf. Heilbrigðisráðherra segir alvarlega framúrkeyrslu hafa orðið 2016. Kostnaður af lyfjum er því miður vanda- mál og viðvarandi vandamál að upptaka nýrra lyfja verður dýrari og dýrari. Óttarr Proppé, heil- brigðisráðherra Veturinn hefur verið óvenju hlýr og snjóléttur í flestum landshlutum. Á vefmyndavélum sem sýna færð á vegum var vart snjóörðu að sjá á vegunum í gær. Á sama tíma í fyrra var vetrarfæri víðast hvar. Hlýindin eru slík að ferskum gulrótum skaut upp á Dalvík í miðjum febrúar og víða má sjá páskaliljur sem byrjaðar eru að gægjast upp úr moldinni. Sjá síðu 4 / MYNDIR/VEGAGERÐIN Fréttablaðið í dag skoðun Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens tjáir sig um laxeldi. 10 sport Meistaradeild Evrópu hefst aftur í kvöld. 12 tÍMaMót Ný útgáfa af Elsku stelpur, siguratriði Skrekks 2015, verður frumsýnd í dag. 14 lÍfið Ferðamenn komu til Íslands til að bíða í röð eftir Yeezy Boost. 22 plús 1 sérblað l fólk *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Útgerðarmenn skoða tilboð sjómanna og svara í dag kJaraMál Samninganefnd Sam- taka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) fundaði í gær til að ræða tilboð sjómanna í kjaradeilu aðilanna. Nefndin mun halda áfram að funda í dag til að reyna að binda enda á verkfallið sem nú hefur staðið yfir í slétta tvo mánuði. Sjómenn gerðu SFS tilboð í gær sem kallað var lokatilboð. Val- mundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að sjó- menn væru tilbúnir að slaka ákveð- ið mikið til en lengra væri ekki hægt að fara. Í tilboðinu felst að sjómenn slaka á kröfum um olíuviðmiðið en Val- mundur vildi ekki útskýra innihaldi tilboðsins nánar. „Við erum að reikna út hvað felst í tilboði sjómanna. Þegar þeirri vinnu er lokið geri ég ráð fyrir að við verð- um í sambandi við samninganefnd þeirra,“ segir Jens Garðar Helgason, formaður SFS. Hann taldi líklegt að samtökin myndu svara í dag. – jóe 1 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 3 A -B 8 8 4 1 C 3 A -B 7 4 8 1 C 3 A -B 6 0 C 1 C 3 A -B 4 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.