Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 24

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 24
Óháð og hlutlæg endurskoðun - Álitsgerð - Fulltrúaráð Samtaka evrópskra endurskoðenda samþykkti álitsgerð þessa þann 27. júní 1995, en ítalska sendinefindin var henni mótfallin. Consigl- io Nazionale dei Dottori Commercialisti og Con- siglio Nazionale dei Ragioneri e Periti Commerciali styðja það þó að álitsgerðin sé notuð sem umræðugrundvöllur. 1. Skilgreiningar 1.1 Endurskoðandi er sérfræðingur sem starfar í al- mannaþágu að vottfestingu. Þetta gerir hann annað- hvort samkvæmt lögum (lögbundin endurskoðun) eða vegna ákveðinna samninga (samningsbundin endur- skoðun). Þessari álitsgerð er ætlað að fjalla sérstaklega um það hvernig endurskoðendur gæta þess best að vera óháðir og hlutlægir í starfi. 1.2 Umfram allt er það hlutverk endurskoðenda að leggja fram hludægt mat og þeir sýna best hæfni sína til að inna það verk af hendi með því að vera óháðir og sjálfstæðir.1 Þessi álitsgerð mun því snúast jöfnum höndurn um: • Sjálfstæði í reynd, sem merkir að ganga að verki með því hugarfari að taka tillit til allra þátta sem verkið snerta og engra annarra; • Sjálfstæði í ásýnd, sem merkir að endurskoðandinn hefur ekki nein þau tengsl við verkefni eða aðila þess, að upplýstur þriðji aðili myndi draga hlutlægni hans í efa þess vegna. Þegar fjallað er um sjálfstæði í landslögum og stétt- arlegum siðareglum er það einungis sjálfstæði í ásýnd sem tekið er á. 1 Orðið „sjálfstæði" (í þeirri merkingu að vera óháður öðrum) hefur oft valdið misskilningi í umfjöllunum um þetta efni vegna þess að eitt og sér virðist það merkja algilt stig sem fag- menn verða að ná. Það vekur með fólki væntingar um að maður sem beitir faglegri dómgreind sinni skuli laus við öll viðskiptaleg, fjárhagsleg eða önnur tengsl sem virðast gera hann öðrum háðan. Það liggur í augum uppi að þetta er óger- legt, því allir þegnar þjóðfélagsins eru hver öðrum háðir og tengdir að einhverju marki, og því getur samhengislaus notk- un orðsins „sjálfstæði" í ákvarðanatöku valdð vonir sem ómögulegt er að uppfylla og leitt til misskilnings sem hefur vonbrigði og gagnrýni í för með sér. 2. Inngangur 2.1 Hlutiægni er afar nauðsynleg öllum sem hafa starfa af því að leggja faglegt mat. Þetta gildir sérstak- lega um endurskoðendur, því faglegt mat þeirra hefur iðulega áhrif á rétt ýmissa aðila. 2.2 Endurskoðendur þurfa að tryggja hlutiægni sína og þess vegna þurfa þeir að hafa ákveðin atriði í huga þegar þeir ígrunda að taka að sér verk sem kreíjast hlutlægs mats. Þetta á við hvort sem verið er að stofna til nýrra skuldbindinga eða samninga eða þá að ákveða hvort halda skuli áfram að sinna tilteknum verkum. Aðalatriði í þessu sambandi eru eftirtalin: • Væntingar þeirra sem eiga beinna hagsmuna að gæta í sambandi við verkið og hafa hag af niðurstöð- unum samkvæmt lögum. • Almannahagur og tengsl hans við verkið. Hér þarf að hafa tilskipanir og reglugerðir Evrópusam- bandssins í huga og einnig lög og reglugerðir aðild- arríkjanna. • Aðstæður við verkið. Hér er átt við aðstæður á við- komandl endurskoðunarstofu og hjá stéttinni í heild jafnt sem aðstæður í samfélaginu. • Þættir sem geta bagað hlutlægni, hvort sem þeir eru raunverulegir eða virðast svo vegna aðstæðna. • Varúðarráðstafanir sem hægt er að gera til að bregðast við áhættu. Þessi atriði verða rædd nánar hér á eftir en þess er vænst að leiðbeiningarnar um ráðvendni, hlutiægni og sjálfstæði sem aðildarfélög Samtaka evrópskra endur- skoðenda gefa félögum sínurn verði sífellt endurmem- ar og fái þannig stöðugt meira og þyngra vægi. Það er æskilegt að skipa áhætmþáttum í flokka vegna þess að því betur sem endurskoðendum tekst að koma auga á hætturnar, þeim mun betur mun þeirn ganga að meta hvort þær stefna hlutlægni þeirra í voða, til hvaða varúðarráðstafana eigi að grípa og við hvers konar aðstæður hugsanleg áhætta eða árekstrar gæm orðið þess valdandi að þeim bæri að vísa verkefn- inu frá. 22

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.