Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Blaðsíða 39
Helgarblað 9.–12. desember 2016 Menning 35
Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp,
í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku.
A
ndri Snær Magnason fetar
nýjar slóðir í nýútkomnu
smásagnasafni sínu Sofðu
ást mín. Í þetta sinn eru
textar hans mun nærri
upplifun okkar hinna á veruleik-
anum en við höfum átt að venjast
í verkum Andra og gerast sögurn-
ar einnig nær rauntíma, eða á 20. og
21. öldinni. Í öllum sögunum virðist
ein persóna samsvara höfundi sjálf-
um, hvort sem sú persóna er aðal-
eða aukapersóna, og varpar þannig
sjálfsævisögulegum blæ á bókina.
Þannig fer Andri töluvert nær sjálf-
um sér og samtíma sínum heldur en
í t.d. Lovestar og Engar smá sögur.
Þrátt fyrir raunveruleikann er tölu-
verð hugmyndaauðgi í sögum Sofðu
ást mín, svo unnendur fyrri ritverka
Andra Snæs fá því eitthvað fyrir sinn
snúð. Sögurnar eru í dæmigerðri
lengd fyrir nútímasmásögur, allt frá
tíu blaðsíðum upp í þrjátíu.
Margar sagnanna fjalla að
einhverju leyti um það hvern-
ig „venjuleikinn“ og hugsunarleysi
getur leitt mann í ógöngur, án þess
að maður taki endilega eftir því eða
verði jafnvel nokkurn tíma var við
það. Þannig eru persónur skyndilega
staddar farsímalausar á bensínlaus-
um bíl, í miðjum óbyggðum með alla
fjölskylduna vegna þess að egóið var
einu númeri of stórt (eða af því að
feðraveldið sagði þeim að gera það),
eða vakna upp í ástlausu sambandi
því að óvarlega var farið með þýð-
ingarmikil orð.
Margar sögurnar bera með sér
tilvísun í fyrirbæri sem kallað er
memento mori sem er fornlatneskur
frasi og minnir okkur á að þrátt fyr-
ir allt, þá erum við öll dauðleg. Bók-
in varar lesandann reglulega á að
óæskilegt sé að láta sig fljóta sof-
andi að feigðarósi og að mikilvægt
sé að kunna að meta bernskuna,
litlu hlutina, Legó kubbana og hvers-
dagsleikann því dauðinn er svo
sannarlega endakall okkar allra.
Þannig er ákveðinn predikunartónn
í verkinu sem getur verið erfitt að
sætta sig við. H ver vill láta segja sér
fyrir verkum nema í laumi? Káp-
an á bókinni ber memento mori
einnig skýr merki með upphleypta
glossaða höfuðkúpu dýrs á hlífðar-
kápunni, og sömu hauskúpu greypta
í svarta kápuna. Kápan er hönnuð af
Alexöndru Buhl sem hefur hannað
nokkrar af fallegustu bókarkápum
fyrir Forlagið, og er þessi engin
undantekning. Gagnrýnandi átti
erfitt með að leggja bókina frá sér
og stóð sig jafnvel að því margoft að
handleika hana á milli sagna.
Líkt og í fyrri verkum Andra er
deilt á ólifnað og ofneyslu þá sem
áberandi var rétt fyrir hrun, og virð-
ist aftur í uppsveiflu nú fáeinum
árum eftir hrun, eða eins og Augusto
Monterroso orðaði það í stystu smá-
sögu sinni: „Þegar hann vaknaði
um morguninn var risaeðlan enn
þarna“. Smásagan „Wild Boys“ birtir
póstmóderníska og hálf absúrdíska
heimssýn nýríkra Íslendinga sem
virðist þakin merkingarleysu og sið-
lausu tengslaleysi við raunveruleik-
ann. Samanburðurinn verður sterk-
ur þegar þessar sögur eru bornar
saman við aðrar smásögur í safninu
sem boða aftur á móti endurmat á
hvunndeginum, tungumálinu og
hinu einfalda. Þrátt fyrir predikunar-
tóninn er Sofðu ást mín einlægt smá-
sagnasafn sem enginn ætti að láta
framhjá sér fara. n
„Þrátt fyrir
predikunartóninn
er Sofðu ást mín einlægt
smásagnasafn.
Yfirvofandi
dauði í Legolandi Andri Snær Magnason
Mynd ÞorMAr Vignir gunnArSSon
kaflar bókarinnar eru
beinlínis æsispennandi.
Meyer hefur gott lag
á því að skapa trúverð-
ugar persónur. Það á við
um Benny lögreglufor-
ingja sem glímir við sína
djöfla en hann er alkó-
hólisti sem berst við að
halda sér þurrum. Unga
stúlkan getur ekki ann-
að en kallað á ríka sam-
úð lesenda. Ómennin
eru verulega andstyggi-
leg en slíkt fólk finnst
sannarlega, er ekki bara uppfinning
rithöfunda. Meyer kann fjarska vel
að skapa spennu en hefur einnig afar
næma taug sem sýnir sig best í frá-
sögn um fund stúlkunnar og gamals
manns. Sú frásögn er falleg og hlý en
allan tímann læðist viss ónotakennd
að lesandanum sem ótt-
ast að illa fari.
Frásögnin af
hremmingum hinnar
ungu stúlku rígheld-
ur athygli lesandans og
skyggir nokkuð á aðra
þætti hennar. Morðið á
áhrifamanninum í tón-
listarheiminum kallar til
dæmis ekki alveg á sömu
athygli, þótt þar sé margt
ansi laglega gert. Sam-
skipti hvítra og svartra,
sem á köflum eru átaka-
mikil, og ólík menningarviðhorf, eru
svo til umfjöllunar og þar kemur höf-
undur ýmsu til skila án þess að hella
sér ofan í predikun.
Þrettán tímar eru spennuþrungin
bók sem unnendur glæpasagna geta
ekki annað en notið þess að lesa. n
Spennuþrungin frásögn
Jóhanna María Einarsdóttir
johanna@dv.is
Bækur
Sofðu ást mín
Höfundur: Andri Snær Magnason
Útgefandi: Mál og menning
139 bls.